Ef
ég skyldi einhverntíma komast í vandræði
þá vildi ég vera meðal ítala.
- Halldór Laxness.
Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa
ort og skrifað
um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Við
erum búin að vísa mörgum í
hús til ykkar því af þeim vefjum
ítölskum sem við skoðum þá
held ég að ykkar geri betur en flestir að
vísa til vegar á Ítalíu og
ekki síst í Róm.
...hagnýtur
og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús
stiga út á upplýsingagildið
og skemmtilegheitin ...
Við
prentuðum út margar síður af þessum
snilldarvef og notuðum sem biblíu á
10 daga ferðalagi okkar um Róm.
PÁFINN Í NÝJU JÓRVÍK Corleone fór út í viðskipti við páfa, en það var ekki alveg það gáfulegasta sem hann gat gert.
20. maí 2003 Plott í pott Víða var plottað síðustu helgi, og ekki bara í bakherbergjum Framsóknar og Sjálfstæðis í kjölfar kosninga. Á sama tíma og þeir félagar Davíð og Halldór voru að ganga frá lausum endum í nýja lopapeysu sinnar þriðju ríkisstjórnar saman, sýndi Ríkissjónvarpið þríleik Coppola um Guðföðurinn. Svo fengum við smákrimmana í Jersey, Sópranó og félaga, í ábót á mánudagskvöldið - svona til að stramma okkur af eftir plottpottrétti helgarinnar.
Myndirnar þrjár um Corleonefjölskylduna eru raunar ein og sama myndin í eins og þremur litbrigðum, eða svo. Síðasta Guðföðursmyndin er um margt merkileg - og mun betri en mig minnti - hafi menn og konur yfirleitt áhuga á páfapólitík.
Þriðja myndin um Guðföðurinn gerist í New York og á Sikiley í lok 8. áratugar síðustu aldar. Corleone reynir allt sem hann getur að stíga upp úr forinni upp til lögmætra viðskipta, en það verður til að hann sekkur æ dýpra. Hann kaupir sig inn í alþjóðlegt fyriræki sem Páfagarður á góðan hlut í og með góðri blessun bankastjóra Guðs. En þá fyrst byrjar sukkið: Hann er kominn á kaf í ítölsk og kirkjuleg stjórnmál. Og hann sem er bara mafíósi! Páfi á að leggja blessun sína yfir viðskiptin, en hann gerist veikur og deyr, sem betur fer fyrir innstu koppana í búri ítalskra stjórnmála og Páfagarðs. Corleone finnst að það sé einhvern veginn betra að gefa almennilegt færi á sér og fer því til Sikileyjar - e tutta la famiglia. Næsti páfi er vinveittur Jórvíkursveininum hreina og vill allt fyrir hann gera. Óvinir vilja hins vegar allt í mót honum vinna og gera sér lítið fyrir og eitra fyrir pontifexinum að rómverskum sið. Fórnarlambið mafíósinn tekur upp nauðvörn og gerir út nokkra góða frá Sikiley að stytta í lífinu hjá vondu köllunum í Róm. Enginn vinnur og allir tapa.
Já, sagan um Davíð og Golíat, ríka og fátæka, ríki og kirkju, aumingja mafíósana og vondu evrókratana lifir góðu lífi, í lifandi myndum sem steindauðum. Saga þriðju Guðföðursmyndarinnar er samin inn í atburði sem áttu sér stað innan Ítalíu og Páfagarðs í lok 8. áratugarins og í byrjun þess níunda og urðu til þess að leynifélag frímúrara var leyst upp og Vatíkansbanki varð gjaldþrota.
Annars hefur Ríkissjónvarpið verið merkilega með á nótunum í kvikmyndasýningum undanfarið. Rétt eftir að Ameríkanar réðust inn í Írak var helgardagskráin svona: 1) Forsetavélin: Vondu kallarnir ræna flugvél forseta BNA, en sá lætur ekki einhverja komma fylla öskubakka vélarinnar af ótnýtu sovésku tyggjói og bjargar auðvitað málunum með því að plaffa pakkið niður. 2) Sjálfstæðisdagurinn: Geimverur ráðast á Ameríku (nema hvað!), sem kann sko að svara fyrir sig og drepur að sjálfsögðu helvítis útlendingana (vill svo til að á enskri tungu er alien notað um hvort tveggja útlending og geimveru).
En, Sjónvarpið er friðelskandi sjónvarpsstöð og sýndi því nokkrum vikum seinna meistaraverk Sjaplíns, Einræðisherrann - um það bil sem þeir Charles Spencer Chaplin og maðurinn sem hann líktist svo mjög í ytra útliti og líkti líka svo vel eftir, Hitler, áttu sameiginlegt 114 ára afmæli; Sjaplín fæddur 16. apríl 1889, en Hitler þann 20. sama ár.
Maí 2003
ÞJÓÐREMBULEGT SLAGORÐ? Athyglisvert er, í ljósi vinskapar Davíðs Oddssonar og Silvios Berlusconi, að kjörorð Sjálfstæðisflokksins fyrir kosningarnar 2003 eru Áfram Ísland.
Bláa höndin og Berlusconi Þær takast þéttingsfast í hendur, sú bláa og sú berlúskóníska, á heimili Silvíós Berlusconi á hinni fögru eyju Sardiníu í Miðjarðarhafinu, og forsætisráðherrann ítalski smellir kossi á sína hvora kinnina síns íslenska starfsbróðurs og systurflokksmanns, eins og ítalskir gera við vini sína. Þetta er í september anno 2002.
Haustar í Reykjavík, fínt að skreppa suður til Rómar, vinna einn dag og skreppa svo í einkaheimsókn til Silvíós í sólina á Sardiníu. Hei, kosningar í nánd og hann Silvíó lumar sko örugglega á nokkrum trikkum til að klekkja á Sólrúnu.
Fín villa hjá þér Silví ... - Ó, og sundlaug líka! Við eigum líka eina svona í Vesturbænum, Silvíó, en það er alltaf eitthvert fólk að synda í henni. Hvernig gengur ykkur í boltanum annars? Veistu, þínir strákar og mínir eru báðir í röndóttu. Góð hugmynd að láta flokkinn þinn heita Áfram Ítalía, hljómar eitthvað svo kunnuglega. Ætli við getum notað þetta? Veistu um einhverja sem eru góðir í að gata fjöll? Heyrðu, fyrst ætla ég að segja þér söguna um beljuna Búkollu og skessuna með stóra tappatogarann. - Jú, takk, ég þigg örlítð meira í glasið. Makalaust gott veður hjá þér hérna, Silvíó.
Mars 2003 Suðurlandamál í Kárahnjúkum Búist er við að allt að 1.000 manns vinni fyrir Impregilo meðan á framkvæmdum við Kárahnjúkavirkjun stendur. Vegna verkefna fyrirtækisins í Suður-Ameríku er talsverður fjöldi þeirra sem vinna hjá fyrirtækinu spænskumælandi en enska er þó gjaldgeng í flestum tilfellum.
5. febrúar 2003 Rómaveldi á 1. öld Í febrúar hefur Ríkissjónvarpið sýnt ágæta bandaríska þætti um Rómaveldi á fyrstu öldinni e.Kr. Rómarvefurinn efndi af því tilefni til samstarfs við www.Ruv.is um kynningu á þáttunum á vefnum, en Ruv-vefurinn setti í staðinn upp auglýsingu um þættina og Rómarvefinn og tengil hingað. Í Rómarvefinn eru nú komnar nokkrar nýjar síður sem RV hefur útbúið og tengjast viðfangsefni þáttanna. Þetta er listi yfir keisara 1. aldar með myndum og söguás sama tímabils. Auk þessa hefur RV viðað að sér efni af veraldarvefnum varðandi þetta efni. s.s. um skattlagningu í Rómaveldi og lyf og heilsu Rómverja.
15. febrúar 2003 RV kynnir starfsemi Íslensku Óperunnar Rómvarvefurinn hefur tekið upp samstarf við Íslensku Óperuna um að vefurinn kynni og haldi á lofti starfsemi hennar. Í framtíðinni safnast svo vonandi meira af skemmtilegu og fræðandi efni í vefinn um óperuna sem slíka; tónlistina og tónskáldin, óperuformið og sögurnar sem sungnar eru.
Febrúar 2003 Sópranó gengið Sópranó gengið hefur nú snúið aftur í sjónvarp allra landsmanna og á mánudagskvöldum sem fyrr. Og allt virðist vera til staðar sem áður: einn er laminn og annar drepinn, fjölskyldan snæðir saman eitthvað ítalskt og gott og fer svo á fjörurnar hvert við annað, foringinn heimtar fleiri afbrot og meiri tekjur, en fer svo til sála að leyfa sópraninum í sínum bassabúki að hljóma um stund, vandræði með börnin og löggan á allra hælum, oft sem heyrandi í holti. Og íslenskar flugfreyjur gera stuttan stans.
Þessir þættir eru að mörgu leyti hræðileg skemmtun, því trúlega eru þeir ekki fjarri lagi. En, það er eitthvað svo gott við þessa þætti og skemmtanagildi þeirra ótvírætt. Er það kannski þessi góða blanda af góðri og oft vel skrifaðri og framsettri sögu, frábærum leikurum sem túlka svo afar sérstakar persónur, velútilátnu ofbeldi og kynlífi; getum kannski farið að kalla þessa klassísku blöndu oflíf eða kynbeldi?
Mánudagar eru hjá fæstum í sérstöku uppáhaldi og henta því fullkomlega sem nokkurs konar gulrót í gegnum daginn, allt þangað til sest er niður fyrir framan imbann eftir að seinni voðafréttir dagsins hafa verið upp sagðar, með un bel piatto di pasta e un po' di vino. Tutto a posto! (kp)
Febrúar 2003 Ástin á sér engan aldur Dómstóll í Róm dæmdi á dögunum par, 86 ára karl og 74 ára vinkonu hans, í 50 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir ósiðsemi á almannafæri, en þau voru staðin að ástríðufullum ástaleik inni í bíl í almenningsgarði. Mbl.is sagði frá 14.2.2003.
Páfa-SMS Ítalska símafyrirtækið TIM hefur tekið í notkun SMS-þjónustu þar sem ítalskir GSM-notendur geta fengið tilvitnanir úr stólræðum Jóhannesar Páls páfa II.
Janúar 2003 Enginn friður Innheimtulögfræðingar þýska fyrirtækisins GEZ í Köln þykja hafa gengið lengra í óbilgirni en aðrir í stétt rukkara með því að krefja kaþólskan dýrling sem lést á áttundu öld um greiðslu afnotagjalda af áskriftarsjónvarpi. Rukkunarbréfin voru stíluð á frú Walburgu, St. í rómversk-kaþólsku kirkjunni í Ramsdorf.
Séra Karl Terhrost prestur við kirkjuna segir að í fyrstu hafi hann leitt þessi bréf hjá sér en þegar innheimtulögfræðingarnir hótuðu lögsókn og 1000 evra sekt þá taldi hann sig knúinn til þess að skrifa þeim aftur og benda þeim á að dýrlingurinn, sankti Walburga, hafi verið fædd árið 710 og tekin í dýrlingatölu árið 880, hún noti ekki sjónvarp og skuldi því enga sjónvarpsreikninga.
Klara frá Assisi er verndardýrlingur sjónvarpsins, en skyldi hl. Ísidór vera mögulegur dýrlingur netsins? - Rúv sagði frá.
Desember 2002 Leiðin til Rómar tilnefnd Bók Péturs Gunnarssonar, Leiðin til Rómar, var á fimmtud. sl., 5. desember, tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fagurbókmennta. Bókin er vel að tilnefningunni komin ef hún er jafn fróðleg og gefandi lesning og fyrri bókin í þessum skáldsögulega sagnabálki sem hófst með Myndinni af heiminum þarsíðustu jól. Sannarlega tilhlökkunarefni fyrir Rómarfíkla. (Nokkrar tilvitnanir í fyrri bókina er að finna í Ritað um Róm hér í Rómarvefnum).
Desember 2002 Kvikmyndahátíð í Róm á laugardagskvöld Afhending Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna fer að þessu sinni fram í Róm, þann 7. desember n.k. Fulltrúi Íslands í keppninni er Hafið e. Baltasar Kormák. Finninn Aki Kaurismäki og mynd hans Maður án fortíðar hefur hlotið flestar tilnefningar evrópsku kvikmynda-akademíunnar. - RV og Mbl.is
Desember 2002 Nína í Róm Það var önnur hátíð sem var haldin í Róm fyrir 11 árum síðan: Evróvisjón, þar sem Eyvi og Stebbi sungu hana Nínu sína. Söngfuglarnir góðkunnu, Eyjólfur Kristjánsson og Stefán Hilmarsson, afhentu á dögunum Hard Rock Café forláta jakka sem þeir klæddust þegar þeir sungu lagið Drauminn um Nínu í Evrópsku söngvakeppninni í Róm árið 1991. Með fylgdi blátt ennisband sem Eyjólfur bar. Jakkarnir verða teknir til varðveislu í veitingastaðnum þar sem er vísir að poppminjasafni.
Ítalir eru hættir að taka þátt í Evróvisjón og gekk ekkert sérstaklega vel heldur þegar þeir voru með. Evróvisjón er hins vegar sniðin eftir frægri ítalskri sjónvarpssöngvakeppni sem kennd er við bæinn Sanremó á Ítalíu. Sú keppni er með eindæmum vinsæl á Íalíu og víðar og þar vinna Ítalir alltaf. Gaman að geta þess að eitt það síðasta lag sem Ítalir sendu í Evróvisjón, lagið um sjávarfólkið, Gente di mare, er nú á góðri leið með að komast í hóp sígildra íslenskra jólalaga sem Svona eru jólin - og er ekki einasta ítalska lagið sem klæðist jólabúningi á íslenskum söngvörum. - RV og Mbl.is
Eldaðu
ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur
best og segja má að eitt af því
sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg
notkun hráefnis og krydda.
Söguás:
1929
Mússolíní og Píus páfi
XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs
sem sjálfstætt ríki innan ítalska
ríkisins með samningi sem kenndur er við
Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm
svo til allan febrúarmánuð og nær
hámarki á Martedí Grasso,
sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist
aðallega vera hátíð smáfólksins;
telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla
og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver
er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn
sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en
tók síðan að stunda viðskipti
og sá sér þá hag í að
stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum
og helsti ferðamáti íbúa innan
borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf
klaustur-
lífs
Það féll í hlut Benedikts frá
Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri
á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk
trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið
við altarisgöngu verður brauðið að
holdi Krists í munni honum vegna þess að
presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd
kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður
sögunnar. Hann fæddist í smábænum
Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina
og hefur æ síðan verið við þann
bæ kenndur.
ÁBÓTINN
SAGÐI ...
Rómaborg er
yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir
að virða sem þorp, því að jörð
og steinar og stræti öll eru roðin
í blóði heilagra manna.