Ef
ég skyldi einhverntíma komast í vandræði
þá vildi ég vera meðal ítala.
- Halldór Laxness.
Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa
ort og skrifað
um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Við
erum búin að vísa mörgum í
hús til ykkar því af þeim vefjum
ítölskum sem við skoðum þá
held ég að ykkar geri betur en flestir að
vísa til vegar á Ítalíu og
ekki síst í Róm.
...hagnýtur
og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús
stiga út á upplýsingagildið
og skemmtilegheitin ...
Við
prentuðum út margar síður af þessum
snilldarvef og notuðum sem biblíu á
10 daga ferðalagi okkar um Róm.
Rómarvefnum er ætlað að vera alhliða leiðarvísir um Ítalíu og Róm, þar sem litið er yfir sögu og listir, borgarlíf og staðhætti, og svo margt fleira.
Vef þennan hef ég spunnið öllum þeim sem hafa áhuga á að kynna sér sögu og menningu Rómar á aðgengilegan hátt, hvort sem netverjar eru á spásseríi um borgina fögru, á leiðinni þangað eða bara heima að fræðast. Sá þáttur vefjarins er einmitt þannig fram settur að hentar ekki síður til að ...
sitja kyrr á sama stað en samt að vera ferðast.
Róm er höfuðborg Ítalíu og því verður ekki hjá því komist að Rómarvefurinn helgi sig skaganum öllum og þeim eyjum sem til Ítalíu heyra. Það er ljúft markmið, en við byrjum á Róm um miðjan skagann og vinnum okkur þaðan útfrá. Hér á að vera einum stað ferðavefur, leiðarvísir, lista-, menningar- og söguvefur og hagnýtur upplýsingavefur um allt frá verði kaffibolla al banco til þess hvaða páfi ríkti hvenær og hvað merkilegt hann kann að hafa gjört; allt frá því hvernig maður ber sig að á kaffibarnum úti á horni og hvar nálgast megi frekari upplýsingar um viðkomandi páfa.
Ferðavefur um Ítalíu og Róm þarf fyrst og fremst að fjalla um og taka á Róm samtímans. Hann þarf að innihalda allar þær nauðsynlegu og hagnýtu upplýsingar sem ferðamaður kann að þarfnast á meðan dvöl hans stendur - hvort sem dvöl sú varir í viku, tvær eða þrjár. Eða skemur, því ófáir ferðamenn eiga þess aðeins kost að stoppa í einn dag eða tvo og vilja því geta nýtt tíma sinn sem best. En slíkur ferðavefur þarf og einnig að gagnast þeim sem ætla að dvelja í borginni um lengri eða skemmri tÍma. Í vefnum verða sérstaklega gefnar upp allar mögulegar upplýsingar sem að Íslendingum kunna að snúa, auk þess sem rakið er sérstaklega þar sem saga Rómar og Íslendinga samtvinnast í nútíð og þátíð.
Það er trú höfundar að íslenskum ferðamönnum - nútíma Rómferlum - og öllu áhugafólki um Ítalíu finnist fengur í Rómarvef sem segir sögu borgarinnar og bregður upp myndum íslenskra skálda af borginni sem stöðugt heillar. Höfundur vonar að vefurinn verði netverjum ekki aðeins hagnýtur, heldur líka skemmtilegur aflestrar. Eftir því sem tími vinnst til verður aukið við í myndum og efni.
Eldaðu
ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur
best og segja má að eitt af því
sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg
notkun hráefnis og krydda.
Söguás:
1929
Mússolíní og Píus páfi
XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs
sem sjálfstætt ríki innan ítalska
ríkisins með samningi sem kenndur er við
Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm
svo til allan febrúarmánuð og nær
hámarki á Martedí Grasso,
sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist
aðallega vera hátíð smáfólksins;
telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla
og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver
er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn
sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en
tók síðan að stunda viðskipti
og sá sér þá hag í að
stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum
og helsti ferðamáti íbúa innan
borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf
klaustur-
lífs
Það féll í hlut Benedikts frá
Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri
á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk
trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið
við altarisgöngu verður brauðið að
holdi Krists í munni honum vegna þess að
presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd
kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður
sögunnar. Hann fæddist í smábænum
Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina
og hefur æ síðan verið við þann
bæ kenndur.
ÁBÓTINN
SAGÐI ...
Rómaborg er
yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir
að virða sem þorp, því að jörð
og steinar og stræti öll eru roðin
í blóði heilagra manna.