Ef
ég skyldi einhverntíma komast í vandræði
þá vildi ég vera meðal ítala.
- Halldór Laxness.
Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa
ort og skrifað
um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Við
erum búin að vísa mörgum í
hús til ykkar því af þeim vefjum
ítölskum sem við skoðum þá
held ég að ykkar geri betur en flestir að
vísa til vegar á Ítalíu og
ekki síst í Róm.
...hagnýtur
og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús
stiga út á upplýsingagildið
og skemmtilegheitin ...
Við
prentuðum út margar síður af þessum
snilldarvef og notuðum sem biblíu á
10 daga ferðalagi okkar um Róm.
Vertu dagskrárgerðarmaður á Rómarvefnum, en vefurinn óskar eftir efni í vefinn í formi kvikmynda, útvarpsefnis og texta. Vertu með og miðlaðu af reynslu þinni!
Rómarvefurinn er margmiðlunarvefur. Í því felst að auk efnis í formi texta og mynda miðlar vefurinn kvikmyndum og hljóðefni, en það getur verið tónlist eða tal og helst sambland af hvoru tveggja.
Almenn og betri nettenging á heimilum landsins gerir þá tækni sem fyrir hendi er í vefmiðlun mun raunhæfari nú í dag en var fyrir nokkrum misserum síðan. Þessa tækni vill Rómarvefurinn nýta til miðlunar á upplýsinga- og afþreyingarefni.
Rómarvefurinn leitar því til netverja eftir efni í þeirri trú að þið þarna úti hafið áhuga á því að miðla öðrum af reynslu ykkar. Við fölumst semsagt eftir pistlum og greinum um hvaðeina sem varðar Ítalíu - eða önnur Surðurlönd - og ekki bara þetta heldur leiðsöguefnis eða annars í formi kvikmynda eða hljóðefnis fyrir netið.
Nútíma tækni og almenn tölvu- og tækjaeign gerir venjulegu (og óvenjulegu) fólki kleift að taka upp og klippa saman sitt eigið sjónvarps- eða útvarpsefni og vefurinn er frábær miðill til að koma þessu efni á framfæri.
Varstu á Ítalíu og átt fullt af myndefni? Ertu á leiðinni út og átt myndavél og/eða upptökutæki? Flott, þá skaltu íhuga það að búa til dagskrárefni fyrir Rómarvefinn. Þetta getur verið stutt kvikmynd eða útvarpsþáttur þar sem þú tekur fyrir eitthvað efni sem vekur áhuga þinn á eða varðandi Ítalíu.
Ef þú hefur áhuga á því að láta ljós þitt skína, láta í þér heyra, hjálpa öðrum, miðla, vera skapandi, þá áttu samleið með Rómarvefnum og ættir bara að drífa í því að skrifa, taka upp spjall og/eða hugleiðingar, mynda eitthvað áhugavert á Ítalíu ... eða hvaðeina annað sem þér kann að detta í hug. Þú ert jú uppfull/ur af hugmyndum!
Eldaðu
ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur
best og segja má að eitt af því
sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg
notkun hráefnis og krydda.
Söguás:
1929
Mússolíní og Píus páfi
XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs
sem sjálfstætt ríki innan ítalska
ríkisins með samningi sem kenndur er við
Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm
svo til allan febrúarmánuð og nær
hámarki á Martedí Grasso,
sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist
aðallega vera hátíð smáfólksins;
telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla
og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver
er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn
sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en
tók síðan að stunda viðskipti
og sá sér þá hag í að
stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum
og helsti ferðamáti íbúa innan
borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf
klaustur-
lífs
Það féll í hlut Benedikts frá
Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri
á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk
trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið
við altarisgöngu verður brauðið að
holdi Krists í munni honum vegna þess að
presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd
kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður
sögunnar. Hann fæddist í smábænum
Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina
og hefur æ síðan verið við þann
bæ kenndur.
ÁBÓTINN
SAGÐI ...
Rómaborg er
yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir
að virða sem þorp, því að jörð
og steinar og stræti öll eru roðin
í blóði heilagra manna.