Ef
ég skyldi einhverntíma komast í vandræði
þá vildi ég vera meðal ítala.
- Halldór Laxness.
Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa
ort og skrifað
um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Við
erum búin að vísa mörgum í
hús til ykkar því af þeim vefjum
ítölskum sem við skoðum þá
held ég að ykkar geri betur en flestir að
vísa til vegar á Ítalíu og
ekki síst í Róm.
...hagnýtur
og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús
stiga út á upplýsingagildið
og skemmtilegheitin ...
Við
prentuðum út margar síður af þessum
snilldarvef og notuðum sem biblíu á
10 daga ferðalagi okkar um Róm.
2. púnverska stríðið var háð á árunum 218-201 f. Kr. Þar var barist um hvort Róm eða Karþagó yrði leiðandi afl á Miðjarðarhafi. Róm vann stríðið og varð á endanum að heimsveldi. Karþagó tapaði og var á endanum lögð í eyði.
SCIPIO AFRICANUS (236 f.Kr.-184/3). Silfurpeningur sem talinn er geyma samtímamynd af herstjóra Rómverja, sleginn í Nýju Karþagó á austurströnd Spánar.
Afleiðingar Cannae urðu margvíslegar. Orustan markaði í raun vatnaskil í stríðinu. Flestir bandamenn Rómverja á S-Ítalíu sviku lit og fóru yfir til Karþagómanna. Þeirra á meðal voru flestir Samnítarnir og borgin Kapúa í Kampaníu. Makedóníumenn undir stjórn Filippusar V hugsuðu sér gott til glóðarinnar og gerðu bandalag við Karþagómenn. Rómverski sjóherinn vaktaði hins vegar Adríahaf og hindraði að Filippus gæti ráðist á Ítalíu. Rómverjar sáu líka til þess að Filippus hefði nóg að hugsa um á Grikklandi. Var stríðið við hann kveðið niður 205 f. Kr. Missti Hannibal þar af öflugum bandamanni.
Rómverjar bjuggust nú við því að Hannibal myndi banka á dyr hjá þeim. Hann kom þó aldrei því hann taldi sig ekkigeta náð borginni. Hannibal þurfti á liðstyrk frá Karþagó að halda því að her hans var orðinn útkeyrður. Rómverjar höfðu á hinn bóginn nær óþrjótandi mannafla. Eftir Cannae lagði enginn rómverskur her í beina orustu við Hannibal. Því var engin stórorusta háð við hann á Ítalíu það sem eftir lifði stríðsins. Einn rómverskur her var látinn fylgjast með Hannibal á meðan aðrir herir sáu um að vinna aftur þær borgir sem voru í uppreisn. Hannibal vantaði hafnarborg til þess að geta fengið liðsauka frá Karþagó. Tók hann því borgina Tarentum með hjálp flugumanna árið 212 f. Kr. Svöruðu Rómverjar þá með því að setjast um Kapúu. Reyndi Hannibal þá að draga að sér athygli umsátursliðsins með því að halda með her sinn í átt að Róm. Rómverjar létu ekki blekkjast og neyddu Kapúu til uppgjafar 211 f. Kr. Fabíus tók svo Tarentum aftur árið 209 f. Kr.
Sikiley öll var í uppreisn gegn Rómverjum, og var borgin Sýrakúsa mest borga þar. Sendu Rómverjar her til Sikileyjar árið 214 f. Kr, undir stjórn Marcellusar, og settust um borgina jafnt á landi sem og sjó. Lék þá Arkímedes, stærðfræðingurinn frægi og íbúi Sýrakúsu, Rómverja grátt með því að hanna ýmis vígtól sem hindruðu þá í að taka borgina með áhlaupi. Rómverjarnir brugðu því á það ráð að svelta borgina inni. Entist umsátrið í tvö og hálft ár eða til 212 f. Kr.
Spánn Stríðið var ekki bara háð á Ítalíu. Eins og áður sagði hafði Publíus Scipíó sent bróður sinn Gnaeus með her sinn til Spánar árið 218 f. Kr. Hann náði að vinna aftur þau landsvæði Spánar sem voru norðan Ebró-árinnar og vann nokkra sigra á Hasdrúbal Barka. Árið 217 f. Kr. kom Publíus Scipíó til Spánar með 8.000 manna lið. Náðu þeir bræður í sameiningu að hindra það að herlið frá Karþagómönnum færi að styrkja Hannibal á Ítalíu. Árið 215 f. Kr. unnu þeir stóran sigur á Hasdrúbal við Iliturgi á S-Spáni sem varð til þess að staða Rómar á Spáni styrktist verulega. Karþagómenn neyddust því til að senda Hasdrúbal liðsauka til Spánar sem hafði verið ætlaður Hannibal.
Scipíó-bræður héldu áfram að berjast á Spáni og tóku Sagúntum aftur árið 212 f. Kr. Árið 211 f. Kr. skiptu þeir liði til þess að reyna að vinna lokasigur á Hasdrúbal og taka Nýju Karþagó. Báðir rómversku herirnir voru sigraðir og Scipíó-bræður dóu. Sonur Publíusar Scipíós, Publíus Cornelíus Scipíó (hinn yngri) var valinn til þess að taka við herstjórninni á Spáni.
Stríðslok 210-201 f.Kr.
Publíus Cornelíus Scipíó var einungis 24 ára og hafði aldrei haft herstjórnarvald (imperium) þegar hann var valinn sem herforingi Spánarhersins. Hann var einn af þeim fáu sem höfðu lifað af Cannae. Scipíó taldi að það myndi vera þjóðráð að taka Nýju Karþagó. Hann komst að því að allir herforingjar Karþagómanna á Spáni voru í tíu daga fjarlægð frá borginni. Scipíó hafði ennfremur kannað aðstæður þar vandlega. Tók hann borgina með umsátri frá landi og sjó.
Árið 208 f. Kr. mætti Scipíó Hasdrúbal í orustu við Baecula. Scipíó hafði lært mikið af Cannae og beitti svipuðum brögðum og Hannibal hafði beitt til þess að vinna sigur. Hasdrúbal ákvað að flýja með um þriðjung liðs síns og halda til Hannibals á Ítalíu, sem þurfti liðsaukann. Hann hafði misst Tarentum árið 209, og margir bandamanna hans á Ítalíu voru að hugsa um að snúa aftur til Rómar. Hasdrúbal eyddi vetrinum 208-207 í Gallíu og hélt yfir Alpafjöllin um vorið. Þeir bræður voru í bréfaskriftum um hvar heririnir ættu að hittast en Rómverjar náðu sendiboðum Hasdrúbals. Sendu þeir þá konsúlinn Gaius Claudíus Neró með herlið til þess að hitta meðkonsúl sinn, Markús Livíus, sem var að gæta Hasdrúbals. Hasdrúbal fékk veður af því að tveir konsúlar stæðu gegn sér og ákvað að flýja en neyddist svo að berjast við Metaurus-fljót. Útkoman var hryllilegur ósigur fyrir Karþagómenn. 57.000 manns dóu ásamt Hasdrúbal, sem barðist allt til dauðans. Sagt er að Neró hafi farið með her sinn aftur til Hannibals og látið kasta höfði Hasdrúbals inn í búðir hans. Þannig frétti Hannibal af komu bróður síns til Ítalíu. Hann hélt sig nú á tánni á S-Ítalíu, nánar tiltekið í Brúttíum-héraði, þann tíma sem hann átti eftir að dvelja á Ítalíu.
Á Spáni var hart barist. Eftir sigur Scipíós við Baecula höfðu margir spænskir höfðingjar gengið til liðs við Rómverja. Árið 206 f. Kr. mætti Scipíó herforingjanum Hasdrúbal Giskó og liði hans við Ilipa. Vann hann þar stóran sigur og seinna um árið hafði hann náð borginni Gades, (í dag Cadiz) syðst á Spáni. Var Spánn þá endanlega genginn Karþagómönnum úr greipum.
Scipíó konsúll árið 205. f. Kr. Hélt þá Scipíó aftur til Rómar og tryggði sér kosningu sem konsúll fyrir árið 205. f. Kr. Eyddi hann því ári í að safna liði og þjálfa hermenn sína. Scipíó áttaði sig einnig á því að til þess að geta unnið riddaralið Karþagómanna, myndi hann þurfa aðstoð frá Númidíumönnum. Reyndi hann leynilega að ná samningum við tvo höfðingja þeirra, Syphax og Masinissa. Syphax hafði samþykkt að hjálpa Scipíó en braut loforð sitt og giftist dóttur Hasdrúbal Giskó. Varð Scipíó því að treysta á stuðning Masinissa, sem hafði minni herafla en Syphax. Scipíó hélt loks yfir til Afríku árið 204 f. Kr. með liði sínu.
Scipíó settist um borgina Útíku en gat ekki tekið hana. Varð hann því að finna ráð til þess að jafna mismuninn á liði sínu og sameiginlegu liði Karþagó og Númidíumanna sem var stefnt gegn honum. Hann ákvað því að koma þeim að óvörum og brenna búðir þeirra að næturlagi. Gekk það eins og í sögu og hafði Scipíó þar með náð að þurrka næstum því út tvo stóra heri. Karþagómenn söfnuðu nýju liði gegn Scipíó, en sá her var sigraður með svipaðri hertækni og Scipíó hafði notað við Baecula. Í kjölfarið missti Syphax konungdæmi sitt. Karþagómenn sáu nú sitt óvænna og báðu Scipíó um frið. Hann setti harðar kröfur á hendur þeim sem voru samþykktar. Þá átti öldungaráðið í Róm eftir að fjalla um friðarsáttmálann. Hannibal hélt því heim til Afríku árið 203 f. Kr. með 15.000 stríðsreynda menn. Karþagómenn töldu að sér væri borgið og brutu því friðarsáttmálann. Hannibal tók sér stöðu við Zama.
Hannibal mætir Scipíó við Zama í Afríku Scipíó mætti Hannibal við Zama. Herir þeirra voru svipaðir að stærð að því að talið er. Hannibal raðaði fótgönguliði sínu í þrjár breiðfylkingar og setti fremst um 80 stríðsfíla. Þeir áttu að sækja að Rómverjunum og valda usla í liði þeirra. Aftan við þá voru málaliðar frá ýmsum löndum. Hermenn frá Karþagó komu svo næst og aftast voru þeir menn sem höfðu barist með Hannibal á Ítalíu. Á vængjunum hafði hann riddaralið sitt, Númidíumenn honum á vinstri hönd en Karþagómenn á hægri. Scipíó raðaði sínu liði eftir rómverskri hefð, en breytti þó aðeins til þess að fílar Hannibals myndu geta hlaupið í gegn um lið hans án þess að valda tjóni. Lét hann Númidíumenn undir stjórn Masinissa vera sér á hægri hönd en rómverskt riddaralið sér á vinstri. Orustan hófst á því að fílarnir voru látnir sækja fram. Scipíó lét menn sína þá blása í lúðra til þess að hræða skepnurnar. Sumir fílarnir hræddust og sneru við og réðust þess í stað á Númidíumenn Hannibals. Nýtti Masinissa sér það og hrakti þá af vígvellinum og elti. Hinir fílarnir réðust áfram stjórnlaust og ollu nokkrum skaða. Sumir fóru á riddaralið Karþagómanna. Nýtti rómverska riddaraliðið það til þess að sigrast á því og hrekja það líka af vígvellinum. Nú voru fótgönguliðarnir komnir í harðan bardaga. Málaliðarnir gáfu undan og flýðu að næstu breiðfylkingu, skipaða Karþagómönnum, en þeir vildu ekki leyfa málaliðunum að fara í gegn. Varð úr bardagi á milli sumra málaliðanna og Karþagómanna. Náðu Karþagómenn að verja sig ágætlega gegn tvöföldum óvini. Karþagómennirnir misstu einnig móðinn og flúðu í átt að hermönnum Hannibals. Hann sagði hermönnum sínum að meina þeim að flýja í gegn um breiðfylkingu sína, sem og þeir gerðu. Neyddust þá Karþagómennirnir til að taka sér stöðu við hlið hinna stríðsreyndu hermanna Hannibals. Myndaðist þannig löng breiðfylking hermanna. Scipíó endurskipulagði þá lið sitt til að mæta allri línunni. Enn var jafnt í liðum. Féllu margir á báða bóga og var tvísýnt um úrslit en á þeirri örlagastundu sneri riddaralið Rómverja og Númidíumanna við og réðist aftan að Karþagómönnunum. Varð úr hryllileg slátrun á Karþagómönnunum. Um 20.000 Karþagómenn féllu og svipaður fjöldi var tekið til fanga. Sagt er að Rómverjar hafi einungis misst rétt yfir 1.500 manns.
Stríðslok 201 f.Kr. Stríðinu var í raun lokið. Hannibal hélt til Karþagóborgar í fyrsta sinn í 35 ár. Hvatti hann ráðamenn borgarinnar til að biðja um frið. Scipíó setti þeim friðarskilmála sem kváðu meðal annars á um að Karþagómenn ættu að láta Rómverja fá mestallan flota sinn og alla stríðsfíla þeirra. Einnig áttu Karþagómenn að borga gríðarlega háar stríðsskaðabætur. Að auki máttu þeir ekki segja neinum aðila utan Afríku stríð á hendur og aðeins í Afríku gæfu Rómverjar vilyrði sitt. Í raun var Karþagó gerð að undirsáta Rómar. Stríðinu var formlega lokið árið 201 f. Kr. Scipíó fékk auknefnið Afrícanus, eftir landsvæðinu þar sem hann hafði unnið hættulegasta andstæðing Rómar.
Friðarskilmálarnir, og þá sérstaklega ákvæðið um stríðsrekstur Karþagó, þóttu harðir. Í raun má segja að þeir hafi neytt Karþagómenn aftur í stríð við Róm fimmtíu árum seinna en það stríð var óvinnanlegt frá upphafi. Árið 146, eftir þriggja ára hart stríð, lagði Scipíó Aemilíanus, barnabarn Scipiós Afrícanusar, Karþagó í rúst. Var þá púnversku stríðunum endanlega lokið.
Af hverju vann Róm stríðið? Tvær meginástæður liggja þar að baki. Í fyrsta lagi hafði Róm nær óþrjótandi mannafla sem hægt var að kalla í herinn, á meðan Hannibal hafði takmarkaðan herstyrk sem þynntist út eftir því sem leið á stríðið. Í öðru lagi hélt Róm allan tímann uppi öflugum hernaði á Spáni og hindraði þannig að Karþagómenn gætu styrkt við bakið á Hannibal á Ítalíu sem skyldi. Í 2. púnverska stríðinu var í raun barist um hvort Róm eða Karþagó yrði leiðandi afl á Miðjarðarhafi. Róm vann stríðið og varð á endanum að heimsveldi, og finnast rómversk áhrif greinilega enn þann dag í dag. Karþagó tapaði og var á endanum lögð í eyði.
Eldaðu
ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur
best og segja má að eitt af því
sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg
notkun hráefnis og krydda.
Söguás:
1929
Mússolíní og Píus páfi
XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs
sem sjálfstætt ríki innan ítalska
ríkisins með samningi sem kenndur er við
Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm
svo til allan febrúarmánuð og nær
hámarki á Martedí Grasso,
sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist
aðallega vera hátíð smáfólksins;
telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla
og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver
er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn
sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en
tók síðan að stunda viðskipti
og sá sér þá hag í að
stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum
og helsti ferðamáti íbúa innan
borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf
klaustur-
lífs
Það féll í hlut Benedikts frá
Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri
á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk
trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið
við altarisgöngu verður brauðið að
holdi Krists í munni honum vegna þess að
presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd
kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður
sögunnar. Hann fæddist í smábænum
Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina
og hefur æ síðan verið við þann
bæ kenndur.
ÁBÓTINN
SAGÐI ...
Rómaborg er
yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir
að virða sem þorp, því að jörð
og steinar og stræti öll eru roðin
í blóði heilagra manna.