E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center
ÍS-ÍT: islandaoggi.com

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
  SAGA RÓMAVELDIS
Pompei anno 79
  Rómversku borgirnar Pompei og Herculaneum stóðu í miklum blóma árið 79 eftir Krist þegar eldfjallið Vesúvíus tók skyndilega upp á því að vakna af aldalöngum dvala.

Rómversku borgirnar Pompei og Herculaneum stóðu í miklum blóma árið 79 eftir Krist, þegar eldfjallið Vesúvíus tók skyndilega upp á því að vakna af aldalöngum dvala á hádegi 24. ágúst. Fjallstindurinn sprakk án fyrirvara og upp úr iðrum jarðar þeyttust ósköpin ölll af ösku og eimyrju. Vegna þess að vindurinn var vestlægur slapp Herculaneum í bili en spýjan úr fjallinu helltist yfir Pompei.

POMPEIBORG UPPGRAFIN Séð frá suðri norður yfir borgina fornu til Vesúvíusar hins forna sem árið 79 e. Kr. kaffærði borg og bý í eldi og eimyrju.
Eftir hálfan sólarhring hafði safnast upp þykkt lag af þessum ófögnuði og flestir íbúarnir höfðu notað tækifærið og flúið eins og fætur toguðu. En, um það bil tvö þúsund manns biðu þó þess sem verða vildi í Pompei og héldu sig einkum í kjöllurum húsa sinna og annars staðar þar sem skjól var að finna.
STROLLAÐ UM STRÆTI POMPEIBORGAR Gangstéttarhellur aðeins eldri en þær í Austurstrætinu í Reykjavík.
Þar kom að risastór mökkur af heitri ösku og gasi þeyttist úr fjallinu og streymdi niður vesturhlíðar þess, beint í áttina að Herculaneum. Allir íbúar þar brunnnu eða köfnuðu og borgin grófst fljótlega undir ösku og vikri. Þeir sem eftir voru í Pompei fórust morguninn eftir þegar eigurgas streymdi yfir borgina. Strax á eftir fylgdi aska og vikur sem gróf hina dauðu nánast í einu vetfangi.
RÚSTIR POMPEIBORGAR - VESÚVÍUS Í BAKGRUNNI <STÆKKA>
Á síðustu öldum hafa fundist leifar þeirra tvö þúsund karla, kvenna og barna sem fórust í Pompei. Askan harðnaði utan um lík þeirra sem gerði það að verkum að býsna nákvæm mót mynduðust utan um líkamsleifarnar, sem smám saman rotnuðu. Fornleifafræðingar fylltu þessi mót með gifsi og þá byrtust ótrúlega nákvæmar myndir af fólkinu eins og þar var á dánarstundu.


Heimild: Byggt á Fréttablaðinu, 24. ágúst 2004. Myndir frá Pompei úr safni Katarínu og Kars Kinyon (12/10/04): www.catandcharlie.com/pompei.html

Þess má geta að íslenski eldfjallafræðingurinn Haraldur Sigurðsson er einn mesti sérfræðingur í jarðsögu og virkni Vesúvíusar. Stutt er síðan (2003) sýnd var á RÚV heimildamynd um þetta mikla sprengigos og þær rannsóknir og uppgötvanir sem Haraldur hefur lagt að mörkum til vísindanna.

 

 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 08.06.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband