|
|
 |
|
...Úúútsýni!
aftur á Til
að byrja með
Það
er ekki frá því að maður geti fengið
snert af innilokunarkennd eftir nokkra dvöl í bænum
án þess að hafa ratað upp á einhverja
hæðina til nauðsynlegrar yfirsýnar. En þá
er stutt upp á næstu hæð til úrvals
útsýnar.
Helstu útsýn er að hafa frá Janikúlum,
Monte Mario, Avantínhæð (hjá kirkju Söntu
Sabínu) og frá Pinciogarðinum fyrir ofan Popolotorg.
Maríófjall er hæsta hæðin í
borginni og þar er starfrækt stjörnuskoðunarstöð.
Þaðan er gott útsýni suður yfir alla
borgina, hægt að fá sér kaffi á bar
eða snæða á fínum veitingastað.
Auðvelt er að taka leið 913 frá Ágústusartorgi
(Piazza Augusto Imperatore) niðri í bæ.
Frábært útsýni er að hafa ofan úr
hjálmi Péturskirkjunnar, nema að lækning
við innilokunarkenndinni kann að vera dýru verði
keypt vegna langra ganga og þröngra upp, upp ... En gangan
er nú ekki svo mikil og útsýnið fullkomlega
þess virði. Þeir sem ekki treysta sér, geta
hins vega látið sér nægja að fara upp
á þakið, sem er áfangi á leiðinni
upp á hvolfþakið. Þar eru salerni, minjagripaverslun,
símar og póstkassar ... og útsýn all
góð.
|
|
 |
|
Greinar |
 |
Greinarnar
í Rómarvefnum eru frásagnir og stuttar ritgerðir
ýmiskonar sem fara öllu ítarlegar í efnið
en lesa má í handbókarhluta vefjarins.
Veldu þér eina!
Júbileum í Róm,
Kirkjan á Íslandi og
páfinn í Róm, Á
hlaupum um Róm, Bíó
í Róm, Guðað
á ítalska skjáinn, Ansans
ansjósur, Pepperóní
hvað?, Pöstusaga, Palió |
 |
|
Pistlar |
 |
Pistlarnir
á Rómarvefnum eru ýmist örlítil viðbót
við handbók vefjarins eða hinn eða þessi
mannlífs-
vinkillinn.
Veldu þér einn (sumir fá
sér tvo)!
Soffía með Lærin,
Borgin útboruð, Úti
að aka, Svik og prettir, Paceþríhyrningurinn,
Úúútsýni!,
Jól í Róm, Fljúgandi
flöskur um áramót, Nornin
Befana, Presepio |
| |
| |
|