E F N I
NÝTT á vefnum
Hvað hafa skáldin okkar skrifað um Ítalíu og Róm; söguna og menninguna sem hefur yljað okkur um aldir:

Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.

- HKL

Hafðu samband
Húsnæðisskipti
Ef þú býrð á Íslandi og ert að leita þér að húsnæði á Ítalíu eða öfugt; býrð á Ítalíu og vantar húsnæði á Íslandi í skiptum fyrir þitt - þá er þessi vettvangur kjörinn til að óska eftir slíku.

Lumarðu á ferðasögu?
Rómarvefurinn óskar eftir ferðasögum Ítalíufara og reyndar öllum þörfum ábendingum. Sendu okkur línu.

...Presepio

Befana, Áramót

Jatan er helsta táknmynd jólanna í suðurlöndum en ekki jólatréð líkt og hér. Settar eru upp litlar og stórar eftirmyndir af fjárhúsinu þar sem Jesús fæddist og var lagður í jötu. Siður þessi virðist ekki ætla að víkja fyrir jólatrénu germanska sem tekið er að breiða úr sér á Ítalíu, ekkert frekar en að okkar siður tapist þrátt fyrir að fjölskyldan heilaga hafi komið sér fyrir í sumum af búðargluggum bæjarins hér heima. Nei, þau taka sig bara ágætlega út sem viðbót við fyrri sið; n.k. siðbót!



Sagt er að heilagur Frans frá Assísí hafi komið á þeim sið að búa til n.k. leikmynd af fæðingarstað frelsarans, þ.e. fjárhúsinu, ásamt öðrum persónum jólaguðspjallsins og fylgifénaði. Leikmynd grámunksins góða mun hafa verið í fullri stærð og enn eru settar upp slíkar; sú stærsta í Róm er náttúrlega á Péturstorginu. Siður þessi varð brátt vinsæll, sérstaklega á Suður-Ítalíu, og litlum fjárhúsum komið upp á hverju heimili. Leikmynd og eftirmyndir Jesúbarnsins og foreldranna, fjárhirða, engla, asna og vitringa kallast á ítölsku presepio eða presepe og eru af öllum stærðum og gerðum; litlar og látlausar, íburðamiklar og fagurlega skreyttar, jafnvel vélvæddar með rennandi vatni og tilheyrandi ljósadýrð.

Í fyrstu var presepiogerðin heimaföndur en hefur með öldum og árum orðið að sérhæfðri nytjalist. Til heimabrúks eru stytturnar algengastar í tindátastærð og úr plasti. Fæstir standa í því að föndra þetta sjálfir, enda framboðið mikið og fylgihlutirnir óteljandi. Nú felst gamanið í því að sviðsetja presepióið eftir eigin smekk, bæta við húsdýrum eða leikmunum hver jól og vera með flottara en hinir. Hver jól er haldin sýning á eitthundrað presepióum, gömlum sem nýjum, við Popolotorgið í Róm, en langskemmtilegast er að heimsækja kirkjur Rómar og skoða presepíóin þeirra, eins ólík og þau eru. Eitt frægasta presepíóið er í Maríukirkjunni Santa Maria Maggiore, en það gerði listamaðurinn Arnolfo frá Cambio á 13. öld og talið það elsta sem varðveist hefur. Presepio er víða sett upp á Maríudaginn 8. desember, en það er að sjálfsögðu ekki fyrr en á jóladag sem Jesúbarnið kemur sér fyrir í jötunni. Vitringarnir bætast svo í hópinn á síðasta degi jóla, þann 6. janúar.

Greinar
Greinarnar í Rómarvefnum eru frásagnir og stuttar ritgerðir ýmiskonar sem fara öllu ítarlegar í efnið en lesa má í handbókarhluta vefjarins.

Veldu þér eina!
Júbileum í Róm, Kirkjan á Íslandi og páfinn í Róm, Á hlaupum um Róm, Bíó í Róm, Guðað á ítalska skjáinn, Ansans ansjósur, Pepperóní hvað?, Pöstusaga, Palió
Pistlar
Pistlarnir á Rómarvefnum eru ýmist örlítil viðbót við handbók vefjarins eða hinn eða þessi mannlífs-
vinkillinn.


Veldu þér einn (sumir fá sér tvo)!
Soffía með Lærin, Borgin útboruð, Úti að aka, Svik og prettir, Paceþríhyrningurinn, Úúútsýni!, Jól í Róm, Fljúgandi flöskur um áramót, Nornin Befana, Presepio
 
 
Upp, upp mín sál|Um vefinn|Allir vegir liggja til Rómarvefjarins|Ciao!