E F N I
NÝTT á vefnum
Hvað hafa skáldin okkar skrifað um Ítalíu og Róm; söguna og menninguna sem hefur yljað okkur um aldir:

Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.

- HKL

Hafðu samband
Húsnæðisskipti
Ef þú býrð á Íslandi og ert að leita þér að húsnæði á Ítalíu eða öfugt; býrð á Ítalíu og vantar húsnæði á Íslandi í skiptum fyrir þitt - þá er þessi vettvangur kjörinn til að óska eftir slíku.

Lumarðu á ferðasögu?
Rómarvefurinn óskar eftir ferðasögum Ítalíufara og reyndar öllum þörfum ábendingum. Sendu okkur línu.

...Pace-
þríhyrningurinn

aftur á Navónutorg

Vestan við Navónutorg, á svæði sem er eins og þríhyrningur í laginu og markast af Navónutorgi í austri, Corso Vittorio Emanuele II í suðri, Tíber austan megin og via dei Coronari að norðan, er mikið vetingahúsa- og barhverfi, stundum kennt við þekktan bar, Café Pace, sem aftur kennir sig við götuna sem hann stendur við, via della Pace (Friðargata). Það sem helst einkennir þetta svæði eru „nútímalegir“, þ.e. amer-írsklegir, barir sem þarna er að finna. Ágætis ganga um þetta svæði, „Triangolo della Pace“, er frá piazza Pasquino rétt við Navónutorg upp via Banchi Nuovi og þaðan yfir á og upp via dei Coronari; ein af frægari antikbúðagötum Rómar, og þá er maður kominn aftur að Navónutorgi.

Greinar
Greinarnar í Rómarvefnum eru frásagnir og stuttar ritgerðir ýmiskonar sem fara öllu ítarlegar í efnið en lesa má í handbókarhluta vefjarins.

Veldu þér eina!
Júbileum í Róm, Kirkjan á Íslandi og páfinn í Róm, Á hlaupum um Róm, Bíó í Róm, Guðað á ítalska skjáinn, Ansans ansjósur, Pepperóní hvað?, Pöstusaga, Palió
Pistlar
Pistlarnir á Rómarvefnum eru ýmist örlítil viðbót við handbók vefjarins eða hinn eða þessi mannlífs-
vinkillinn.


Veldu þér einn (sumir fá sér tvo)!
Soffía með Lærin, Borgin útboruð, Úti að aka, Svik og prettir, Paceþríhyrningurinn, Úúútsýni!, Jól í Róm, Fljúgandi flöskur um áramót, Nornin Befana, Presepio
 
 
Upp, upp mín sál|Um vefinn|Allir vegir liggja til Rómarvefjarins|Ciao!