E F N I
NÝTT á vefnum
Hvað hafa skáldin okkar skrifað um Ítalíu og Róm; söguna og menninguna sem hefur yljað okkur um aldir:

Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.

- HKL

Hafðu samband
Húsnæðisskipti
Ef þú býrð á Íslandi og ert að leita þér að húsnæði á Ítalíu eða öfugt; býrð á Ítalíu og vantar húsnæði á Íslandi í skiptum fyrir þitt - þá er þessi vettvangur kjörinn til að óska eftir slíku.

Lumarðu á ferðasögu?
Rómarvefurinn óskar eftir ferðasögum Ítalíufara og reyndar öllum þörfum ábendingum. Sendu okkur línu.
Jól í
Róm

Jólatónninn er gefinn þegar novello vínið ítalska, rauðvín úr sumaruppskerunni, kemur á markaðinn í byrjun nóvember.

ÞAÐ VERÐUR EKKI annað sagt en að það sé jólalegt í Róm um hátíðirnar þótt enginn sé snjórinn - það gerist jú víðar að hann vanti. Jólatónninn er gefinn þegar novello vínið ítalska, rauðvín úr sumaruppskerunni, kemur á markaðinn í byrjun nóvember. Á sama tíma tekur ilmur af ristuðum kastaníuhnetum að berast úr götugrillum sölumanna, en ungvínið og hneturnar eiga sérstaklega vel saman.

Cartolina di natale - af vef ítalskra skólabarna.
Á aðventu er fallegu skautasvelli komið fyrir uppi á Pinciohæð þar sem sér yfir Popolotorg og áfram yfir borgina, en jólamarkaður opnaður á Navónutorgi. Á þessu fegursta torgi borgarinnar eru sölubásar með sælgæti, brúðum og böngsum allskonar, myndastyttum og fylgihlutum í presepio - og lítið tívolí fyrir yngstu börnin.

Hver gata eða verslunarhverfi bæjarins hefur sína sérstök skreytingu; jólaljósin gleðja augu og hjarta manns, sumstaðar kyndlar á húsveggjum sem hæfa aldri híbýlanna og manni finnst maður allt eins geta átt von á því að ganga í flasið á, segjum, landa sínum Thorvaldsen við næsta húshorn. Það er jólalegt í búðum bæjarins, varla þarf að taka það fram, svo mikilvæg sem jólin eru kaupmönnum; tísku- og gjafavöruverslanir láta ekkert vanta, en matarbúðirnar bókstaflega úttroðnar af pylsum og svínalærum, kökum og súkkulaði, léttum vínum og höfugri; kaffibúðir troðfullar frá gólfi og uppúr af kökukössum og listilega innpökkuðu súkkulaði til jólagjafa, að ógleymdu kaffinu sjálfu sem fæst sérmalað eftir vigt. Úti á götu eru blómasalar með bása og bjóða jólatré og jólarósir.

Desemberveður Rómar er milt, hægt að sitja úti á kaffihúsum undir hitablásurum og virða fyrir sér mannlífið á milli þess sem maður gæðir sér á kaffi, ís, léttvíni eða líkjör.

Lestu líka um Jesú, Maríu og Jósep í hinu ítalska presepio, um nornina Befönu og áramót í Róm. Sjá líka um Hátíðir og merkisdaga Rómar og Ítalíu.

Greinar
Greinarnar í Rómarvefnum eru frásagnir og stuttar ritgerðir ýmiskonar sem fara öllu ítarlegar í efnið en lesa má í handbókarhluta vefjarins.

Veldu þér eina!
Júbileum í Róm, Kirkjan á Íslandi og páfinn í Róm, Á hlaupum um Róm, Bíó í Róm, Guðað á ítalska skjáinn, Ansans ansjósur, Pepperóní hvað?, Pöstusaga, Palió
Pistlar
Pistlarnir á Rómarvefnum eru ýmist örlítil viðbót við handbók vefjarins eða hinn eða þessi mannlífs-
vinkillinn.


Veldu þér einn (sumir fá sér tvo)!
Soffía með Lærin, Borgin útboruð, Úti að aka, Svik og prettir, Paceþríhyrningurinn, Úúútsýni!, Jól í Róm, Fljúgandi flöskur um áramót, Nornin Befana, Presepio
 
 
Upp, upp mín sál|Um vefinn|Allir vegir liggja til Rómarvefjarins|Ciao!