|
|
 |
|
...Nornin Befana
Presepio, Áramót
Aðfararnótt
Þrettándans flýgur nornin Befana á milli
húsa Ítalíu, rennir sér niður reykháfa
og skilur eftir sitthvað gott í jólasokkum góðu
barnanna, en þeim óþekku gefur hún kolamola
(sem nú til dags eru svart sykurfrauð). Sagan af Befönu
er gott dæmi um tilurð þjóðsagna og alþýðuskýringa.
Sjötti janúar er dagurinn sem guðdómleiki
Jesúbarnsins opinberaðist vitringunum þremur, heitir
á ítölsku Epifania di Nostro Signore,
en það eru gjafirnar hennar Befönu sem dagurinn snýst
um í rauninni og börnin eru spenntust fyrir.
Hvernig skyldi trúarsetningin epifanía breytast
í norn að nafni Befana. Jú, einhvern tímann
fyrr á öldum er merking orðsins epifanía
var ekki lengur lifandi í hugum fólksins þá
hafði það þörf fyrir að finna þessu
skrýtna gríska orði og deginum sem hét
eftir því áþreifanlega skýringu.
Sögum ber ekki alveg saman um hana Befönu, en líklegt
er að kerlingin hafi orðið á vegi vitringanna
á leið þeirra til Jesúbarnsins. Þeir
bjóða henni að slást í för með
sér, en sú gamla segist hafa öðrum erindum
að sinna en sér svo eftir því að hafa
ekki orðið þeim samferða til fundar við þetta
yndislega barn, hendist út úr húsi sínu
á svuntunni og siglir á kústi sínum
í kjölfar vitringanna. En hún var of sein og
hefur allar götur síðan leitað Jesúbarnsins.
Til að bæta upp fyrir að hafa misst af Jesú
gefur hún börnum gjafir á þeim degi sem
vitringarnir færðu frelsaranum sínar. Maður
getur vel ímyndað sér að hún Befana
hafi verið illilegri í gamla daga og fært þeim
óþekku margt verra en kol, en eitthvað hefur hún
mildast með árunum og Befana nútímans er
sem sagt hin vænsta norn. Á jólamarkaðnum
á Navónutorgi fær maður fínustu Befönur
að taka með sér heim að láta hanga uppi
á jólum.
Myndin af Befönu kemur frá Jólalandi.com,
en
þar má líka lesa svolítið um nornina
ítölsku.
|
|
 |
|
Greinar |
 |
Greinarnar
í Rómarvefnum eru frásagnir og stuttar ritgerðir
ýmiskonar sem fara öllu ítarlegar í efnið
en lesa má í handbókarhluta vefjarins.
Veldu þér eina!
Júbileum í Róm,
Kirkjan á Íslandi og
páfinn í Róm, Á
hlaupum um Róm, Bíó
í Róm, Guðað
á ítalska skjáinn, Ansans
ansjósur, Pepperóní
hvað?, Pöstusaga, Palió |
 |
|
Pistlar |
 |
Pistlarnir
á Rómarvefnum eru ýmist örlítil viðbót
við handbók vefjarins eða hinn eða þessi
mannlífs-
vinkillinn.
Veldu þér einn (sumir fá
sér tvo)!
Soffía með Lærin,
Borgin útboruð, Úti
að aka, Svik og prettir, Paceþríhyrningurinn,
Úúútsýni!,
Jól í Róm, Fljúgandi
flöskur um áramót, Nornin
Befana, Presepio |
| |
| |
|