| |
|
| |
|
 |
LEITA
í VEFNUM |
 |
|
|
| |
| Sláðu inn það
efnisorð sem þú hefur áhuga
á að fræðast um í Rómarvefnum. |
|
|
 |
NÝTT
í VEFNUM |
 |
|
|
 |
|
08.05.09 Mussolini
og launsonurinn. Lesa
17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og
annað sem hægt er að gera í Róm.
Lesa
15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér
í beint samband við fornöldina. Lesa
04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er
mikil og hefur stórbatnað síðustu árin.
Lesa
02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að
heimsækja í Verónu. Lesa |
|
 |
FERÐAVEFIR |
 |
|
|
| |
|
 |
SKÁLDIÐ
SAGÐI ... |
 |
|
|
Ef
ég skyldi einhverntíma komast í vandræði
þá vildi ég vera meðal ítala.
- Halldór Laxness.
Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa
ort og skrifað
um Ítali og Ítalíu. |
|
|
 |
UMSAGNIR |
 |
|
|
 |
|
Við
erum búin að vísa mörgum í
hús til ykkar því af þeim vefjum
ítölskum sem við skoðum þá
held ég að ykkar geri betur en flestir að
vísa til vegar á Ítalíu og
ekki síst í Róm.
...hagnýtur
og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús
stiga út á upplýsingagildið
og skemmtilegheitin ...
Við
prentuðum út margar síður af þessum
snilldarvef og notuðum sem biblíu á
10 daga ferðalagi okkar um Róm.
Meira |
|
|
| |
|
|
| Panþeon |
| |
Algyðishofið er lang best varðveitta hof
hinnar fornu Rómar og töfrum líkast
þar sem stendur í þröngri byggð
inni í miðjum gamla bæ Rómar. |
|
 |
| AUGAÐ Sólin
stafar sig inn um auga Algyðishofsins og lýsir
upp steypta hvelfingu þess. |
Algyðishofið forna og fræga stendur í
þéttri byggð inni í miðjum gamla
bæ Rómar, Centro storico. Hofið er frekar ódæmigert
fyrir rómversk hof og því allsérstakt.
Það er töfrum líkast að koma inn á
Rotondatorg og sjá þetta aldna hof taka á
móti sér af festu og reisn næstum tveggja
þúsalda. Panþeon ber aldur sinn vel, en engum
dyljast þó árin í andliti þess.
Panþeon lét fyrst reisa Markús Agrippa,
herstjóri og tengdasonur Ágústusar keisara,
en síðar ræðismaður Rómar. Bygging
hofsins hófst árið 27 f.Kr. og var þá
í sígildum ferhyrndum stíl með reistu
þaki. Það var Hadríanus keisari
sem lét endurbyggja hofið frá grunni eftir
að hið fyrra skemmdist og var það gert einhvern
tímann í keisaratíð hans á árunum
118-28 e.Kr.
 |
|
| PANÞEON
Alggyðishofið stendur í þéttri
byggð inni í miðjum gamla bænum,
við torgið Piazza della Rotonda. Þar er
huggulegt að setjast niður á útikaffihúsi
eða við gosbrunninn um mitt torgið og virða
fyrir sér þetta aldna hof og mannlífið
allt um kring. Mynd: RV |
Það er náttúrlega algjört
svindl og í raun menningarlegur glæpur að fá
sér McDonald's í Róm. En ef brotaviljinn
er einbeittur er upplagt að fá sér borgara
og bjór á litlum stað við Rotondatorgið,
beint á móti Panþeon; bjórinn fæst
ekki ódýrari á þessu torgi en einmitt
þarna á Makka dóna.
Greinin er í vinnslu. > Á Google
Video getur þú séð stutta kvikmynd
innan úr Panþeon. |
| |
|
|
| Þrívíddarmódel
af Panþeon sem gert var vegna kvikmyndunar á sögunni
Englar og djöflar eftir Dan Brown. |
| |
|
|
|