Ef
ég skyldi einhverntíma komast í vandræði
þá vildi ég vera meðal ítala.
- Halldór Laxness.
Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa
ort og skrifað
um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Við
erum búin að vísa mörgum í
hús til ykkar því af þeim vefjum
ítölskum sem við skoðum þá
held ég að ykkar geri betur en flestir að
vísa til vegar á Ítalíu og
ekki síst í Róm.
...hagnýtur
og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús
stiga út á upplýsingagildið
og skemmtilegheitin ...
Við
prentuðum út margar síður af þessum
snilldarvef og notuðum sem biblíu á
10 daga ferðalagi okkar um Róm.
Undir Piazza Navona, einu fegursta torgi Rómar, liggja rústir einstæðs mannvirkis í sögu Rómar; íþróttaleikvangur Dómitíanusar keisara frá 1. öld.
Navónutorg liggur inni í miðjum gamla bænum, centro storico, í Róm og hlýtur að teljast eitt fegursta torg borgarinnar. Torgið sjálft er ílangt og reglulega lagað, annar endi þess hálfhringur, líkt og kór í basilíku. En það var hvorki tilviljun né úthugsað borgarskipulag sem réð þessari lögun torgsins. Nei, lögun þess á sér skýringu sem verður að leita enn lengra aftur í söguna og dýpra, eins og svo oft í þessari borg. Torgið liggur nefnilega ofan á rústum leikvangs Dómitíanusar sem keisarinn lét byggja seint á fyrstu öld e.Kr. og hefur lögun sína nákvæmlega frá honum - og nafnið reyndar líka.
Leikvangar og leikhús Rétt áður en við hugum að leikvangi Dómitíanusar þarna undir steinilögðu torginu, skulum við til rétt átta okkur á þeim tegundum leikvanga og leikhúsa sem tíðkuðust í Róm til forna. Á paðreimi, eins og hinum mikla Circus Maximus, sem var elsti og stærsti leikvangur Rómverja til forna, fóru fram æsilegar keppnir kappakstursvagna af því tagi sem fólk man e.t.v. eftir úr myndinni um Ben-Húr. Í hringleikhúsi eins og Kólosseum fóru aðallega fram blóðugir bardagar upp á líf eða dauða; skylmingaþræla á milli eða við óargadýr. Á kappleikvangnum, stadíum, voru hins vegar háð keppnishlaup og aðrar íþróttir öllu friðsamari. Og í leikhúsunum, eins og t.d. í leikhúsi Pompeiusar við Flóruvelli (Campo deFiori) eða Ódeoni Dómitíanusar var sungið, leikið og spilað og í því fyrrnefnda tróð sjálfur Neró upp.
CIRCUS AGONALIS Leikvangur Dómitíanusar á Marsvöllum. Sunnan við leikvanginn er hálfhringlaga tónlistarhúsið Ódeon sem sami keisari lét reisa á síðari hluta 1. aldar e.Kr..
Circus Agonalis Ólíkt föður sínum og fyrri keisurum var það Dómitíanusi metnaðarmál að koma á friðsamlegum kappleikjum, íþróttahátíðum sem fram færu á fjögurra ára fresti líkt og Ólympíuleikarnir. Lítil hefð var fyrir ástundun þess konar grískra íþrótta í Róm og nokkur andstaða við þá innan raða íhaldsamra ráðsmanna.
Dómitíanusi varð það fyrst úr verki að reisa yfirbyggt leikhús á Marsvöllum, vestan við baðhýsi Nerós og Agrippu. Það hét Ódeon upp á grísku og þar fóru fram tónlistarkeppnir Júpiteri Kapítólhæðar til dýrðar, Certamen Capitolino Iovi, og gátu 10.000 manns fylgst með. Árið 86, 20 árum eftir að Neró keisari hafði tekið þátt í Ólympíuleikunum á Grikklandi, stofnaði Dómitíanus til íþróttakappleikanna Certamen gymnicum og þar á meðal keppnisgreina var kvennnahlaup að hætti Spartverja. Þá hefur hann að líkindum þegar verið búinn að láta reisa leikvang þann sem við hann er nú kenndur. Stadion, skeið, er forn grísk-latnesk lengdareining, 185 m, 607 rómversk fet, og af henni er dregið heitið á þeim leikvöngum þar sem runnin voru skeið (ít. stadio, e. stadium). Leikvangur Dómitíanusar er einstakur að því leyti sem viðkemur notkun hans til iðkunar (friðsamlegra) íþrótta.
LEIKVANGUR DÓMITÍANUSAR Hér eru teiknaðar upp rústir (svartar) leikvangsins undir byggingunum (gráar) sem umlykja Navónutorg, Piazza Navona. Hægt er að skoða rustirnar í kjöllurum nokkurra bygginganna, t.d. við innganginn að torginu norðan megin og undir Agnesarkirkjunni. <STÆKKA>
GÆGIST GRJÓT Hér gægist steinhlaðinn aðalinngangur Leikvangs Dómitíanusar upp úr jörðinni langt undir Navónutorgi. <STÆKKA>
Keppendur á leikum Dómitíanusar voru margir grískir atvinnuíþróttamenn; sigurvegararnir krýndir lárviðarsveig, tákni sigursins og tignarmerki Júpíters. Leikarnir urðu nokkuð lífsegir og voru haldnir næstu aldirnar, og þess heldur eftir að kristnir keisarar lögðu af blóðugu bardagaleikina. Dómitíanus bannaði reyndar að bardagar skilmingaþræla væru hafðir til einkaskemmtunar í Róm og annarstaðar í ríkinu þurfti að sækja um leyfi til þess sérstaklega.
Þrátt fyrir að vera stadíum var leikvangurinn nú samt nefndur Circus Agonalis (keppnishringleikhús). Hann var tveggja hæða og ílangur, en talið að á milli 20-30.000 manns hafi komist fyrir á marmaralögðum pöllum hans. Aðalinngangurinn á sjálfan völlinn var norðan frá, í kverkinni, hvar gengið er inn á torgið í dag. Hægra megin, áður en gengið er inn á torgið, í kjallara hússins sem myndar kverk torgsins, 5 metrum neðar núverandi götuhæð, má enn sjá aðalinnganginn að leikvangnum forna. Inngangurinn er hlaðinn úr kalksteini, travertino, sínhvorumegin við hann marmarasúla og blasir við frá götunni. Vilji maður hins vegar sjá meira af rústunum verður að hitta á þá daga þegar kjallarinn er opin almenningi. Rústir leikvangsins liggja meira eða minna í kjöllurum húsanna kringum torgið og er m.a. hægt að skoða rústir leikvangsins neðan úr kjallara Agnesarkirkju. En hvað eiga nöfnin Agona og Navona sameiginlegt? Jú, Agonalis varð víst með tímanum að (i)nAgona og svo Navona.
DÓMITÍANUS keisari í Róm árin 81-96.
Dómitíanus Títus Flavíus Dómitíanus var tekinn til keisara árið 81 og ríkti næstu fimmtán árin. Hann var þriðji og síðastur í röð hinna framtakssömu Flavíusfeðga sem ríktu í Rómaveldi árin 69 - 96 e.Kr. og tóku við völdum af ætt Júlíusar og Kládíusar sem hafði runnið sitt skeið á enda með Neró. Þeir voru dugmiklir stjórnendur og byggðu heilmikið í Róm. Þeirra þekktasta verk er án efa Flavínska hringleikhúsið, Kólosseum.
Dómitíanus hélt áfram uppbyggingu borgarinnar og lét klára þær byggingar sem faðir hans og bróðir höfðu byrjað á og bætti sjálfur um betur. Auk þessa lét hann gera við eða endurreisa eldri byggingar - þ.á.m. Algyðishof Agrippu (Panþeon) sem brann í eldunum 82 og átti eftir að brenna aftur áður en Hadríanus endurbyggði svo rammlega að það hefur staðið fram á þennan dag. Dómitíanus lét byggja enn eina keisarahöllina á Palatínhæðinni og þótti engin smásmíði. Varð hún opinbert aðsetur keisaranna næstu þrjár aldirnar, fram að falli Vestrómverska ríkisins 476. Höll þessi er ein af helstu fornminjum sem sjá má á Palatínhæð nú til dags.
Dómitíanus þótti hefja keisaratíð sína afskaplega vel og vera röggsamur stjórnandi. En svo þótti óstjórn hans vera orðin óþolandi á hinum seinni árum (og voru Rómverjar þó flestu vanir) að jafnvel eiginkona hans, Dómitía, er grunuð um að hafa átt þátt í morði hans.
Allt frá lýðveldistímanum var öllum þeim sem sóttust eftir embætti innan borgar eða ríkis nauðsyn á að vinna sér lýðhylli. Það gerðu kvestorar, ræðismenn og keisarar með matargjöfum og blóðugum bardögum manna og dýra, alþýðunni til skemmtunar í leikhúsum borgarinnar. Vespasíanus hafði látið byggja hið mikla Kóloseum til þessa og ekki var syni hans öðruvísi farið. Hann var þó kannski föðurbetrungur að því leyti að hann vildi koma á vopnlausum íþróttakappleikum eins og gerðust á Grikklandi. Dómitíanus stofnaði því til kappleika sem skyldu vera haldnir á fjögurra ára fresti. Lét hann byggja undir þá leikvanginn sem nú er við hann er kenndur og liggur undir Navónutorgi.
OBILISKA DÓMITÍANUSAR OG FJÓRFJLÓTABRUNNURINN Stórfenglegt höggmyndaverk barokkmeistarans Bernínís á Navónutorgi í Róm frá því um miðja 17. öld, en efst trónir óbiliska keisarans.
Fjórfljótabrunnur Bernínís á miðju Navónutorgi og leikvangur Dómitíanusar virðast í fljótu bragði ekki eiga neitt sameiginlegt, en þeir tengjast nú á a.m.k. einn hátt. Einsteinungurinn sem toppar fjórfljótaverk Bernínís er af egypsku graníti brotinn og þótt hann hafi ekki verið þar nema nokkrar aldir (frá 1648) tengist hann torginu með óbeinum hætti. Það var Dómitíanus sem flutti óbiliskann inn frá Egyptalandi og setti upp, að því talið er, við ættarhof Flavína á Kvirinalhæð. Þaðan var hann síðan fluttur í Sirkus Maxentíusar við Appíuveg. Það þykir vera verkfræðilegt undur hvernig Berníní tókst að gera undirbyggingu einsteinungsins eins létta og raun ber vitni.
Eldaðu
ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur
best og segja má að eitt af því
sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg
notkun hráefnis og krydda.
Söguás:
1929
Mússolíní og Píus páfi
XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs
sem sjálfstætt ríki innan ítalska
ríkisins með samningi sem kenndur er við
Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm
svo til allan febrúarmánuð og nær
hámarki á Martedí Grasso,
sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist
aðallega vera hátíð smáfólksins;
telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla
og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver
er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn
sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en
tók síðan að stunda viðskipti
og sá sér þá hag í að
stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum
og helsti ferðamáti íbúa innan
borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf
klaustur-
lífs
Það féll í hlut Benedikts frá
Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri
á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk
trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið
við altarisgöngu verður brauðið að
holdi Krists í munni honum vegna þess að
presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd
kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður
sögunnar. Hann fæddist í smábænum
Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina
og hefur æ síðan verið við þann
bæ kenndur.
ÁBÓTINN
SAGÐI ...
Rómaborg er
yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir
að virða sem þorp, því að jörð
og steinar og stræti öll eru roðin
í blóði heilagra manna.