E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center
ÍS-ÍT: islandaoggi.com

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
Engilsborg
  Engilsborg í Róm, Castel Sant'Angelo, er tignarlegur
kastali og eitt af kennileitum borgarinnar þar sem
hann situr á vesturbakka Tíbers.

ENGILSBORG Horft af Engilsbrú, sem Hadríanus lét reisa árið 132, upp til hins tignarlega og forna kastala.

Þessi tunnulaga kastali hefur gegnt ýmsum hlutverkum í gegnum aldirnar; verið grafhýsi, virki, heimkynni páfa og nóbilmanna, geymt sakamenn og korn, safn og sýningarsali, skjalasafn og nú veitingastað á svölunum. Framan við Engilsborg er samnefnd brú sem tengir kastalann gamla bænum. Eftir henni endilangri raða sér tíu englar sem lærisveinar Bernínís barokkmeistara hjuggu úr marmara. Kastalinn er fornt grafhýsi Hadríanusar keisara og eftirmanna hans, hinna svo kölluðu Antonína; nítjánhundruð ára gömul öskustó.

Nafn kastalans
Engilsborg er ekki kennd við marmaraengla Bernínís, heldur einn ákveðinn engil. Sá er Mikjáll erkiengill sem sagan segir að hafi opinberast borgarbúum efst í grafhýsinu í mikilli óáran seint á 6. öld. Það var í páfatíð Gregoríusar mikla (590 - 604), nánar tiltekið árið sem hann var gerður að páfa, að mikil pest lagðist á borgarbúa. Dag einn er eftirlifendur gengu í prósessíu um borgina og báðu fyrir rénun plágunnar - og væntanlega yfir brúna á leið sinni til Péturskirkjunnar gömlu - birtist þeim engill efst í grafhýsinu og var með brugðið sverð. Þóttust borgarbúar hafa þar séð Mikjál erkiengil og höfðu sem teikn þess að nú hefði borgin greitt sinn syndatoll að sinni. Upp frá þessu var hið gamla grafhýsi keisaranna, sem hafði verið fellt inn í borgarmúr Árelíusar og gert að virki á 4. öld, kallað Engilsborg - eða svo stendur skrifað í fornu handriti frá árinu 852, er Sepulchrum Hadriani varð að Castellum Sancti Angeli.

ENGILSBORG OG PASETTO Hér sést hvar pasettóið liggur upp að norð-vestur útskoti virkisveggjar Engilsborgar. Pasettóið er tengibrú millum Engilsborgar og Páfagarðs, en páfar fyrri alda þurftu stundum að flýja úr höllum Vatíkansins í öruggara skjól kastalans forna. Mynd: www.greatbuildings.com

Mikjáll erkiengill var mjög í heiðri hafður hjá Langbörðum, sem voru mjög öflugir í landinu norðanverðu frá 6. fram á 8. öld, og var tignaður sem nokkurs konar stríðsguð. Teodólinda var prinsessa Langbarða og vann með Gregóríusi að því að kristna sitt fólk. Mikjálsmessa er 29. september.

Til minningar um söguna og nafn kastalans stendur tilkomumikil bronsstytta af Mikjáli á þaki kastalans og er með brugðið sverðið eins og forðum. Stytta þessi er eftir Peter Anton Verschaffelt og er frá 1752. Þar á undan, frá árinu 1544, stóð þar hins vegar vaktina marmaraengill Rafns frá Úlfarsfelli, Raffaello da Montelupo, sem enn er hægt að berja augum á neðri hæðum Engilsborgar.
GRAFHÝSI HADRÍANUSAR Módel af grafhýsinu eins og það er talið hafa litið út þegar það og brúin var reist snemma á 2. öld.

Grafhýsi verður að virki
Snemma á miðöldum var grafhýsi Hadríanusar keisara fellt inn í varnarmúr borgarinnar og notuðu páfarnir það sem virki og skjól á ófriðartímum. Milli Vatíkanshalla og kastalans var hlaðinn múrveggur sem minnir á rómverska vatnsleiðslu og liggur gegnum Borgohverfið. Múr þessi eða brú, sem löngum hefur verið kölluð pasetto, var hvort tveggja samgöngu- og, á tíðum ófriðartímum, flóttaleið páfanna úr Páfagarði yfir í öruggara skjól Engilsborgar. Árið 1527, þegar hermenn Karls V. Spánarkeisara lögðu Róm í rúst með góðri hjálp þýðverskra sjálfboðaliða á bandi Lúters, leitaði Klemens páfi VII. skjóls í Engilsborg. Virkið reyndist honum hvort tveggja griðarstaður og fangelsi, því þarna mátti hann dúsa í eina sjö mánuði sem gísl innrásarliðsins. Einn þeirra sem tóku þátt í vörnum virkisins var hinn miður hógværi myndhöggvari og gullsmiður Benvenuto Cellini sem átti svo síðar eftir að kynnast dýflissum þess.

Engilsbrú
Hadríanusi varð það fyrst úr verki að byggja brú að þeim stað þar sem hans keisaralega grafhýsi átti að rísa á vesturbakkanum. Brúin var tilbúin árið 134 og við hann kennd, nefnd Aelíusarbrú. Nú heitir hún hins vegar ponte Sant'Angelo og er, eins og kastalinn, kennd við Mikjál englaforingja. Það var á árunum 1667-9 sem lærisveinar Bernínís unnu samkvæmt teikningum meistarans við að höggva úr marmara tíu engla sem skyldu halda á táknrænum munum úr píningarsögu Krists. Klemens páfi IX. stóð fyrir þessari englavæðingu brúarinnar og nú ætti honum Mikjáli ekki að leiðast þarna rétt fyrir ofan. Fyrir enda brúarinnar standa svo þeir Pétur og Páll, sín hvoru megin og andspænis manni þegar horft er frá gamla bænum á eystri bakkanum til Engilsborgar. Það er fögur sjón.

Engilsbrú er að stofninum til frá 2. öld e.Kr., eins og áður segir, og ein helsta brú Rómar. Snemma varð mikil umferð um brúna til og frá Péturskirkju og bænum, enda eina brúin yfir Tíber á þessum slóðum – allt þar til Sixtus bætti við samnefndri brú 1475. Þegar örtröðin var sem mest um júbilár voru settir upp plankar er skiptu brúnni í reinar til og frá.

Haustið 1998 var haldin sýning á verkum nokkurra íslenskra myndlistarmanna í sýningarsölum Engilsborgar, áður viðhafnarsölum páfanna. Scalfaro, þáverandi forseti Ítalíu, og Ólafur Ragnar Grímsson voru viðstaddir opnun sýningarinnar, en Kristján Davíðsson og Helgi Þorgils voru meðal sýnenda. Sá síðarnefndi hefur svo nýverið málað freskumyndir í kapellu eina nærri Lucca í Toskaníu. En það er nú annað hérað.

Saga, útsýni og birra
Castel Sant'Angelo er vel þess virði að heimsækja, þó ekki væri nema fyrir kalda birru í góðu veðri á svölunum, en þó sérstaklega vegna útsýnisins yfir Tíber og miðbæinn. Opið 9-18. Svo að sjálfsögðu Ponte Castel Sant Angelo, brúin fagra þar beint fyrir framan. - Örstutt upp á Péturstorg ef vill.

Myndir m.a. fengnar á romaonline.net

> Á YouTube.com er að finna skemmtilegan bút út myndinni A Roman holiday þar sem söguhetjurnar fara á dansiball út á pramma undir Engilsbrú þar sem vel sést upp á hinn tignarlega kastala.
 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 08.06.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband