E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center
ÍS-ÍT: islandaoggi.com

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
  MATARMENNING ÍTALÍU
Út að borða í Róm

UPPDÚKAÐ OG ALLT TIL REIÐU Þjónar á einu veitingahúsanna við Navónutorg bíða eftir matargestum.
ÍTALSKIR MATSÖLUSTAÐIR HEITA ýmist ristorante, trattoria eða (h)osteria. Ristorante er venjulega veitingastaður í fínni kantinum, dúkar á borðum og þess háttar. Trattoría er hin sígilda ítalska matstofa sem býður upp á öllu fábrotnari matargerð, en oft þá bestu. Þar fyrir utan er boðið upp á ýmsa smárétti á nær öllum vín- og bjórbörum - ef ekki þar þá ætti að vera stutt í pízzubita eða þá samloku á næsta kaffibar.

Veitingahúsin eru oft mun stærri en þau líta út fyrir að vera frá götunni séð og liggja þá salir eftir sali inn eftir staðnum eða á næstu hæðum. Þótt það viti á gott um staðinn að setið sé við nokkur borð segir það ekki alla söguna. Því á maður að láta tilfinninguna ráða og bara skella sér inn á tóman staðinn, því að líkindum er maður snemma í því og hann fyllist um kl. hálf níu.

Borða hvar? Það eru æði mörg veitingahús í Róm og af öllum gerðum, en þó vill maður vita hvar helst skyldi borða, hvar vænta má góðs í mat og þjónustu á ekki um of fjölförnum stað, fyrir ekki allt of mikla peninga. Oft er talað um veitingastaði á fjölförnustu stöðum borgarinnar sem túristagildrur og kannski margt rétt í því, en þó er ekki hægt að alhæfa um slíkt. Það er ekkert sem mælir gegn því að hægt sé fá góðan mat fyrir þokkalegt verð á Navónutorgi, t.d. En kannski er hægt að segja svona almennt að sá staður og aðrir vinsælir séu ekki þeir réttu fyrir þá sem eru að leita að almennilegri eldamennsku. Best er að láta tilfinninguna ráða og leita ráða í góðum handbókum. Það er ómögulegt að segja á hvernig matsölustöðum helst megi búast við því að fá bragðbesta matinn við sanngjörnu verði. Eina reglan er sú að það er varla nokkur regla. Oft eru það trattoríur í hliðargötum sem láta lítið yfir sér sem spennandi getur verið að heimsækja.

Panta Oftast er þörf á að hafa tíman fyrir sér og vera búinn að panta borð og alltaf á vinsælli stöðum. Oft gerist það að maður gengur inn á nánast tóman stað um áttaleitið og telur sig geta valið sér borð, en þá er allt upppantað. Upplagt að vera búinn að ákveða um hádegisbil hvar skuli snæða um kvöldið og koma þá við á veitingastaðnum og panta, eða þá að hringja. Það er um að gera að vera óhræddur við að fá að skoða staðinn og velja sér stað í huggulegasta salnum.

Matseðillinn samanstendur af ...

antipasto sem er forrétturinn, primo (piatto, eða ft. primi piatti, piatto = diskur, í merkingunni réttur) sem er fyrsti réttur og er pasta með hinum ýmsu sósum, secondo sem við getum kallað aðalréttinn og er kjöt eða fiskur. Í ítalskri matargerð er aðalrétturinn borinn fram án hefðbundins íslensks meðlætis, en það má hins vegar panta sem contorno. Loks er það eftirrétturinn dolce (sætt) og svo ekki úr vegi að fá sér eitthvað meltingarbætandi digestivo eftir matinn; Grappa eða beiskan líkjör amaro eftir kaffið. Ekki er óalgengt að tekinn sé antipasto og svo primo piatto eða bara primo piatto og aðalréttinum, secondo, sleppt. En nú ríður á að fólk borði réttina í þeirri röð sem það vill og smakki sem flest.

Verðlag Veitingaverð er á alla vegu í Róm. Það er góð regla að átta sig fyrirfram á verðlagi staðarins þar sem sest er niður í kaffi eða mat með því að biðja um matseðilinn (menú), því þá ætti verðið a.m.k. ekki að koma manni á óvart þegar upp er staðið. Svo er það sjálfsagt mál að hætta við og leita annað ef verðið er manni ekki að skapi. Athuga skal hvort rukkað sé aukalega fyrir þjónustugjald (um 15%), en það er orðið frekar sjaldgjæft.

Þjónusta Íslendingar leggja mikið upp úr þjónustu og oft meira upp úr þjónustu en gæðum matarins sem snæddur er. Hver þekkir ekki: Ef þjónustan er í lagi þá er maturinn fínn. Á venjulegum rómverskum veitingahúsum (trattoríum) er þjónustan oftast slöpp, stundum þokkaleg, einstaka sinnum þægileg og góð. En svona er þetta og því best að láta framkomu þjónsins ekkert á sig fá, því maturinn kann allt eins að vera fullkomlega þess virði að láta flest yfir sig ganga og verðið líka. Semsagt sjaldnast samasemmerki milli gæða þjónustu og matar.

Reikningurinn Reikningurinn á að koma á löglegum, útprentuðum seðli eða strimli. Gæta skal þess að fara yfir reikninginn og gera óhikað en rólega athugasemdir ef þarf. Pane e coperto er gamalt og í raun ólöglegt hnífaparagjald sem flestir bæta inn á reikninginn, en kallast nú hnífapara- og brauðgjald, þótt brauðið sjáist nú ekki alltaf. Gjaldið er venjulega £ 2.000 á mann og maður lætur sig hafa það. Sjaldnast er tekið við greiðslukortum nema á dýrustu stöðunum og á helstu ferðamannastöðunum. Aldrei skal ganga að því vísu að hægt sé að greiða með plastkortum, debet eða kredit.

Ítalir fara oft út að borða í stórum hópum og deila með sér reikningnum. En, það er kallað að borga á rómverska vísu, fare alla romana, þegar hver borgar eftir því sem hann hefur borðað.

Þjórfé Rétt er að skilja eftir a.m.k. £ 2-3.000 ætli maður að snæða aftur á veitingastaðnum eða til að verðlauna þægilega þjónustu. Annars er ekki venjan að tippa á ítalíu, enda á þjónusta að vera innifalin í verði réttanna - og meira að segja hrein hnífapör (sbr. pane e coperto).

Afgreiðslutími Veitingahúsin opna fyrir gestum sínum um kl. 19,30 og er eldhúsið alla jafna opið fyrir pantanir til 23. Athuga ber að velflestir veitingastaðir hafa lokað einu sinni í viku, oftast á sunnudögum eða mánudögum, en stundum part úr degi eða á öðrum dögum. Svo hafa staðirnir oftast lokað nokkrar vikur í ágúst.

Nokkrar gerðir veitingahúsa á Ítalíu

Matsölustaðir
ristorante fínna veitingahús.
trattoria matstofa í ódýrari kantinum.
osteria (eða hosteria) fínni matstofa.
tavola calda tilbúinn heitur matur í sjálfsafgreiðslu.

Pizzería
pizza al taglio / pizza rustica (pízza í sneiðum, bitapízza) líklegst algengasti hátturinn á að borða pízzuna í Róm.
pizza al forno þá eru flatbökurnar þunnar að rómverskum hætti og meira alvöru; maður sest inn og fær sér böku og bjór.

Vín- & bjórbarir
bar heitir hann, stutt og laggott, hinn dæmigerði ítalski kaffibar. Þar er einnig boðið upp á létt og sterk vín, bjór og mat. Ekki „bar“ í ströngum íslenskum skilningi.
enoteca vínsölu- og smökkunarhús skv. hefðinni, nú oft og tíðum n.k. franskt bistró.
vineria er vínsölubúð og oftast einnig bar.
birreria ölstofa.
pub er að sjálfsögðu enska og á oftast við um hinar írsku alþýðuölstofur, en mörgum eftirlíkingum þeirra hefur verið komið upp um borgina. Þar er þó ekki boðið upp á bjórlíki, heldur írskan mjöð úr tunnu.


Mælt er með góðum veitingastöðum
í hverjum kafla þáttarins um hverfin.
 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 08.06.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband