E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center
ÍS-ÍT: islandaoggi.com

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
Pízza
  Fátt er eins einkennandi fyrir Ítalíu í huga manns og pízzan; bakan sú sem nú er orðin að daglegu brauði okkar Íslendinga.


Pízzumenningin ítalska
Pízzan ítalska er ekki einhöm frekar en hin margbrotna þjóð sem skagann byggir og nálægar eyjar. Almennt ætti þó að vera óhætt segja um ítölsku pízzuna að álegg er sparlega notað og osturinn líka. Því er hætt við að mörgum hreintrúarmanninum í bökumálum bregði illilega þegar hann kemst í tæri við ítalska pízzu: Bíddu nú við, hvar er maturinn og hvar osturinn? Hva, er engin sósa og hvað er þetta egg að gera á pízzunni minni!? Þykk og áleggsmikil bakan eins og við þekkjum hana er komin frá Ameríkumönnum. Segir nú stuttlega af bökumenningu Rómverja.

Pízza að hætti Rómverja
Brauðbotn rómverskrar pízzu er afar þunnur og áleggið lítið. Pízzan er venjulega bökuð þannig að hún passi á góðan matardisk og því hvorki stór né matarmikil. Kemur það til af því að Ítalir borða yfirleitt margréttað og er pízzan þá fyrsti rétturinn sem annar kostur við pöstur ýmiskonar. Pízza er hins vegar oft borðuð sem aðalréttur, en þá er að fá sér eitthvað á undan þannig að maður verði þokkalega saddur og sáttur þegar upp frá borði er staðið. En pízza er alltaf pízza, kringlótt og rauðköflótt (sósa og ostur), eða hvað? Nei, ekki alveg.

Í Róm er pízzan bökuð og borðuð á tvo vegu. Annars vegar er það hinn sígildi háttur sem lýst hefur verið, að tylla sér inn á pizzeríu og panta eina kringlótta (tonda) og þunna. Hins vegar er pízzan bökuð á stórum, ferköntuðum ofnplötum, höfð þykkari og úr annarri hveitiblöndu en venjulega til þess að haldast fersk frammi í afgreiðluborðinu og seld tilbúin eftir vigt, afgreidd í sneiðum eftir lyst hvers og eins. Þessi er mjög algengur og rómverskur háttur á að borða pízzu. Þetta er bitapízzan og hana má fá út um alla borg.

Lestu líka um napólskar pízzur og pízzuproblem.

 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 08.06.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband