E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center
ÍS-ÍT: islandaoggi.com

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
Kaffibarinn ítalski

Ítalskur „bar“, eins og hann kallast, er fyrst og fremst kaffibar. Þar eru þó seldir brenndir drykkir, vín og bjór, en líka samlokur og jafnvel heitu r matur.

Kaffibarinn er ríkur þáttur í lífi Ítala. Hjá mörgum er hann viðkomustaður á leið í vinnu eða skóla snemma á morgnana, börn eru send þangað eftir mjólk eða hafa fengið pening fyrir ís, aðrir leita þangað eftir strætómiðum. Þegar dagur er að kveldi kominn koma margir við á barnum sínum og fá fordrykk að matnum sem heima bíður. Kaffibarinn er n.k. sjoppa þeirra Ítala, hvergi langt í næsta bar.


Borga fyrst
Oft er það þannig á kaffibörunum, en þó ekki algilt, að panta fyrst og borga við kassann og bíða svo eftir afgreiðslu við barinn. Þegar röðin er kominn að manni réttir maður kaffiafgreiðslumanninum strimilinn (scontrino) og segir hvernig maður vill kaffið sitt. Það getur hins vegar flýtt fyrir afgreiðslunni að leggja smápening á strimilinn á meðan beðið er.

Hvernig kaffi?
Kaffi á Ítalíu er drukkið á marga vegu, en algengast cafè normale, espresso kaffi með tveimur skeiðum af sykri út í og oft gott betur. Þar eð kaffibollinn er nú ekki stór og venjulega staðið við barinn (bancone) þegar hann er drukkinn, þá er ekki staldrað lengi við. Því er ekki að undra að Ítalir „taki“ sér kaffi (prendere caffè), því það hljómar einhvern veginn flótlegra en að drekka það. Stundum eru menn svo mikið að flýta sér að þeir vilja kaffið sitt tepido, volgt, svo þeir þurfi ekki að bíða eftir því að það kólni.

caffé
espresso, líka kallað stretto, oftast drukkið með miklum sykri.
caffé lungo
stærri skammtur af espresso, oft drukkið í glasi.
caffé macchiato
espesso með mjólkurslettu (þ.e. "blettað").
caffé latte
espresso í glasi, fyllt upp með flóaðri mjólk; mjólkurkaffi.
cappuccino
espresso með mjólkurfroðu, sérstaklega drukkið í morgunmat.
latte macchiato
flóuð mjólk með kaffislettu.
caffé americano
daufara, líkt og við drekkum það

Meðlætið
Venjan er að drekka kaffið við barinn, al banco, og þá kostar það minna en þegar sest er niður við borð. Auk kaffisins bjóða allir kaffibarir upp á sætabrauð og enskar samlokur sem ítalir kalla tramezzino, en víða má líka kaupa heitan mat, ís, sælgæti og nasl. Ítalir eru fyrir snöggan og sætan árbít; cornetto og cappuccino vinsælast. Cornetto er hin ítalska útgáfa þess brauðmetis sem við köllum smjördeigshorn. Oftast er það borðað með slúkkulaði- eða marmelaðifyllingu, en vilji maður það hreint og ómengað er það kallað saltað, salato. Svo kjamsa menn líka á allskyns rjómabollum þetta í morgunsárið og allt gleypt í sig standandi við barinn.

Varstu að fá þér könnu?
Það er ágætt húsráð þegar ný kaffikanna er tekin í notkun (espressokannan ítalska sem allir þekkja og kölluð er la mocca), að hella uppá hana en drekka ekki kaffið heldur láta kólna í könnunni og geyma svo í kæli yfir nótt. Þetta er gert til að fá málminn til að taka í sig kaffiolíuna. Eftir því sem oftar er svo helt uppá, þeim mun betra verður kaffið. Aldrei má þvo kaffikönnuna upp úr sápu.

Helt upp á mokkakönnu á hellu
Til að búa til gott espressókaffi án þess að eiga espressóvél er einfaldast að nota mokkakönnu. Kalt vatn er sett í neðsta hluta könnunar, en varast ber að vatnið fari ekki upp fyrir öryggisventilinn. Miðlungsmalað kröftugt kaffi er sett í sigtið og kannan síðan sett á eldavélahellu og hitinn stilltur á næsthæsta straum. (www.kaffitar.is)

Kaffi með heimilisespressóvél
Espressóvélar sem ætlaðar eru til heimilisnota eru mismunandi. Bestu vélarnar eru ekki endilegar dýrastar eða flottastar í útliti. Það sem mestu máli skiptir er að þær séu með góðan þrýsting og hitinn á vatninu sé á bilinu 89°C-92°C. Góðar heimilisvélar eru þær sem allir geta lært á heimafyrir. Þær ná fram alveg ljómandi espressóskoti, með þykkri og góðri kaffifroðu. Einnig á að vera einfalt að freyða mjólkina, best er þá að nota stál freyðikönnu og kalda mjólk. (www.kaffitar.is)



 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 08.06.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband