E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center
ÍS-ÍT: islandaoggi.com

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
  LISTIR ÍTALÍU > LISTAMENN
Modigliani

Eftir Guðna Tómasson

MODIGLIANI Kominn af Gyðingaættum og fæddur í hafnarborginni Livorno á Ítalíu 1884, menningarlegum suðupotti á þeim tíma.
Montparnasse í París á fyrstu tveimur áratugum tuttugustu aldar var suðupottur framsækinnar myndlistar. Þar myndaðist sannarlega alþjóðlegt samfélag listamanna sem voru með kollinn uppfullan af hugmyndum um það hvert þeim fannst, hverjum og einum, að listin ætti að stefna.

Einn þeirra manna sem settu svip sinn á þetta fræga listamannahverfi, sérstaklega á öðrum áratug aldarinnar, var ítalski málarinn Amadeo Modigliani. Myndarlegur maður, mikill kvennamaður en um leið breyskur maður; drykkfelldur, ofsafullur og heilsutæpur.

Frá Livorno
Modigliani var fæddur í hafnarborginni Livorno á Ítalíu 12. júlí árið 1884. Borgin var á þeim tíma nokkur suðupottur í menningarlegu tilliti þar sem allra þjóða kvikindi lögðu leið sína, eins og gjarnt er um hafnarborgir. Modigliani var af gyðingaætt sem áður hafði verið nokkuð efnuð, móðirinn af frönsku bergi brotin og ól son sinn upp á þremur tungumálum: ítölsku, frönsku og hebresku, og ól einnig upp í honum ást á fögrum listum. Í Livorno var stórt samfélag gyðinga en ólíkt mörgum öðrum borgum í Evrópu var þar ekki um sérstakt gettó að ræða. Alla tíð leit Modigliani fyrst og fremst á sig sem gyðinglegan listamann og í mörgum síðari verka hans má finna gyðingleg tákn í teikningunni. Veikindi settu svip á æskuár Amadeo en á ferðalögum um Ítalíu kynntist hann meistaraverkum ítalskrar málaralistar frá fyrri öldum og 15 ára fór hann í læri hjá málara einum í heimaborginni. Við tók nám í Akademíu hinna fögru lista í Flórens, en það var síðan árið 1906 sem Modigliani kom fyrst í heimsborg listanna á þeim tíma, París.

NEKTIN SELUR Portrett af gallerista Modiglianis, Leopold Zborowski, frá 1919, en hann sá sölumöguleika í nektarmyndum listamannsins.
Portrett og nektarmyndir
Modigliani er vitanlega þekktastur fyrir málverk sín sem nú seljast fyrir metupphæðir, þá sjaldan þau eru boðin upp, en á fyrri hluta feril síns vann hann þó einnig að skúlptúrum, en varð að hætta gerð þeirra af heilsufarsástæðum. Í báðum listgreinum voru þó efnistökin svipuð því hann einbeitti sér fyrst og fremst að portrettum og nektarmyndum.

Í París hafði myndlist frá fjarlægum heimshornum mikil áhrif á Modigliani eins og sjá má á verkum hans en slíkt átti við um marga myndlistarmenn þessa tíma. Afrískar grímur og grímur frá Eyjaálfu á heimsminjasöfnum Parísar höfðu greinileg áhrif á andlitsfall módelanna í portrettum Modiglianis og auk þess höfðu portrettmyndir Cezannes mikil áhrif á verk hans.

Nektarmyndirnar eru þó líkast til frægstu verk Modiglianis í dag, þar sem líkamar kvennanna eru teygðir og togaðir. Þrátt fyrir að þær stæðu í beinum tengslum við ríka nektarmyndahefð myndlistarsögunnar náðu myndirnar þó engu að síður að hneyksla siðvanda broddborgara Parísar. Í desember árið 1917 þurfti lögreglan að vernda borgarana og loka sýningu á verkum Modigliani í galleríi einu í borginni.

Flestar urðu hinar frægu nektarmyndir til á árunum 1917-19 að undirlagi gallerista hans, Zborowski að nafni, sem kom með striga, liti og fagrar stúlkur til málarans og sá söluvöru í nektarmyndum hans. Modigliani hreyfst af slíkum myndum því að þær tengdu verk hans við listasöguna, þó svo að nektarmyndirnar beri ekki í sér neinar sögulegar vísanir.

Í portrettum sínum málaði Modigliani ástkonur sínar, vini og kollega og þykja þau mörg hver meðal bestu portretta myndlistarsögunnar á 20. öld. Meðal þeirra sem hann málaði voru listamennirnir Diego Rivera, Pablo Picasso og Juan Gris, og skáldið og kvikmyndargerðarmaðurinn Jean Cocteau.

NEKT „Í desember árið 1917 þurfti lögreglan að vernda borgarana og loka sýningu á verkum Modigliani í galleríi einu í borginni.“

Ímynd Modiglianis
Ímynd Modiglianis hefur fram að þessu verið nokkuð einfölduð og hefur oft á tíðum skyggt nokkuð á list hans. Margoft hefur honum verið lýst sem miklum flagara sem átti í ástarsamböndum hingað og þangað, en einnig sem tragískum persónuleika og jafnvel hefur því verið haldið fram að yfir honum hafi hvílt bölvun. Þó var Modigliani ekki bara glaumgosi, heldu alvarlegur listamaður og metnaðarfullur - og nokkuð virtur meðal kollega sinna í París. Ástkonurnar voru vissulega margar (t.d. átti hann í sambandi við rússnesku skáldkonuna Önnu Akhmatovu) en ástkonurnar sátu ekki fyrir á nektarmyndum hans.

Stóru ástirnar í lífi Modiglianis voru einkum tvær ólíkar konur og þær málaði hann oft í verkum sínum. Þær voru breska skáldkonan Beatrice Hastings sem var fimm árum eldri en Modigliani en þau rifust eins og hundur og köttur undir áhrifum lyfja og áfengis, og hin fjórtán árum yngri Jeanne Hébuterne sem Modigliani hitti þegar hann var 33 ára en hún 19 ára. Með henni bjó hann tvö síðustu ár ævi sinnar en listamaðurinn lést 35 ára gamall 24. janúar árið 1920 úr berklum og heilahimnubólgu. Daginn eftir framdi hin unga Jeanne Hébuterne sjálfsmorð, þá ófrísk að öðru barni þeirra. Þau hræðilegu örlög ýttu undir hugmyndir manna um bölvun listamannsins.

Mikið hefur verið gert úr meintri samkeppni á milli þeirra Picasso og Modigliani og svo virðist að kvikmynd frá árinu 2004 sem ber nafn málarans, þar sem leikarinn Andy Garcia leikur Modigliani, blási slíka samkeppni upp úr öllu valdi. Modigliani var e.t.v. ekki eins uppfinningasamur og Picasso var á þeim árum sem þeir voru báðir á vappi í listamannahverfum Parísar, en þeir sýndu oft saman á samsýningum og sóttu sömu staðina í listamannahverfum Parísar.

Yfirlitssýning í Lundúnum
Ekki veit ég hvort nálagst megi myndina á myndbandaleigum borgarinnnar, en eigi menn leið til Lundúna þessa daganna, eða einhvern tíman á tímabilinu fram til 15. október, er rétt að benda á mikla sýningu á verkum Amadeo Modigliani í Royal Academy of Arts þar í borg, sem opnuð var um síðustu helgi. Mikið er látið með sýninguna í breskum blöðum þessa daganna. Gagnrýnandi Telegraph segir sýninguna, þar sem finna má 52 verka listamannsins frá hans stutta ferli, sýna að hann hafi stefnt að því að endurskilgreina klassíska portrettmyndagerð fyrir nútímann.

The Guardian býður upp á ókeypis og þrælsniðuga hljóðumfjöllun og leiðsögn (podcast) um sýninguna sem hægt er að nálgast á vefsíðu blaðsins. Gagnrýnendur sýningarinnar þar á bæ eru hins vegar langt í frá að vera sammála um listsögulegt gildi verka Modiglianis. Adrian Searle segir hann engu hafa bætt við framþróun listanna. Craig Raine segir hins vegar að e.t.v. hafi Modigliani ekki verið mesti uppfinningamaður listanna á 20. öld en eftir standi verk sem haldi áfram að heilla, séu oft munaðarfull og erotísk og listamaðurinn hafi án alls vafa verið hæfileikaríkur. Eitt er víst að margir heillast enn að verkum þessa ítalska málara.


Pistill þessi var fluttur í menningarþættinum Víðsjá á Rás 1 sumarið 2006.

Til gamans er hér hægt að horfa á kynningarmynd kvikmyndarinnar um Modigliani.
 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 08.06.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband