E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center
ÍS-ÍT: islandaoggi.com

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
  LISTIR ÍTALÍU > LISTAMENN
Bernini

Gian Lorenzo Bernini (1598-1680) kom frá Napólí. Hann var myndhöggvari, arkitekt og leikmyndasmiður. Hann var sonur virts myndhöggvara og fékk hjá honum þá góðu listþjálfun og sambönd sem þurfti til frama.

Ungur að árum var hann farinn að gera heildstæð verk. Ellefu ára gamall gerði hann marmarastyttu af geitinni Almanteu og Seifi; tvítugur að aldri gerir hann marmara styttu af Davíð. Margir þekktir listamenn fyrri tíma höfðu glímt við að lýsa Davíð er hann gengur á hólm við Golíat. Berníní tekst á áhrifamikinn hátt að túlka þá stund er Davíð mundar slönguna af mikilli einbeitingu, hreyfing líkamans í snúningnum, spenntir vöðvar og kröftugleg einbeiting andlitsins myndar trúverðuga samfellda heild. Í byggingalist og höggmyndalist Bernínís sameinast mikið hugmyndaflug og tæknilegir yfirburðir í útfærslu. Höggmyndirnar eru kraftmiklar og lifandi og hugsaðar þannig að þær njóti sín frá öllum hliðum. Berníní var snillingur í gerð mannamynda og ber þar helst að nefna brjóstmynd af Constönzu Buonarelli sem hann gerði 1635. Myndin er jafn lifandi og óhefðbundin og önnur bestu verk Berníní. Hann stillir fyrirmyndunum ekki mikið upp heldur hefur þær þannig að persónueinkenni koma vel fram.

FJÓRFJLÓTABRUNNUR Stórfenglegt höggmyndaverk barokkmeistarans Bernínís á Navónutorgi í Róm frá því um miðja 17. öld.
Berníní var yfirlýstur aðalarkitekt páfa og hirðmálari. Hann tók virkan þátt í endurskipulagningu Rómaborgar. Á þeim tíma er hann starfaði fyrir Páfastól voru sjö páfar við völd og á tímabili var hann byggingarmeistari Péturskirkjunnar. Helsta og stærsta verk er hann gerði fyrir páfa var hönnun torgs og súlnaganga fyrir framan Péturskirkjuna í Róm sem átti að standa fyrir móðurfaðm kirkjunnar.

Í verkinu Algleymi heilagrar Teresu sem Berníní gerði á árunum 1645-52 í Cononaro kapellunni í kirkju heilagrar Maríu sigursins, Santa Maria della Vittoria, í Róm koma saman helstu einkenni Berníní. Þar sem honum tekst svo ótrúlega vel að túlka hvort tveggja í senn kvöl og sælu. Í verkið notar Berníní bæði tré, gifs, gull og marmara. Verkið er helgað heilagri Teresu sem var spænsk nunna, það segir frá lýsingu hennar af dulrænni reynslu. Sagan segir frá því þegar engill Guðs stakk hana í hjartastað með logandi gullör og olli henni bæði þjáningu og sælu. Öfgafullum svipbrigðum sem þessum hafði aldrei áður verið lýst á jafn magnþrunginn hátt. Verkið er unnið í marmara og er ótrúlegt hvernig hann nær að mynda bogadregnar og ávalar fellingar sem flaksa og fjúka um og mynda spennu og léttleika. Myndin virðist svífa innan um vel afgirt altarið og ljósið hefur stórt hlutverk er það fellur á magnþrunginn hátt á höggmyndina.

ALGLEYMI HEIL. TERESU Þessa mynd, sem er um 3,5 m á hæð, hjó Berníní í marmara á árunum 1645-52 og er hana að finna í kirkjunni Santa Maria della Vittoria í Róm.
Andspænis þessu verki útbjó Berníní áhorfendur, en það var Cornaro fjölskyldan sem kostað hafði verkið. Þar sitja þau í stúku og horfa á dýrlinginn. Verkið er svo fullkomnað með organleik, messusöng og reikelsisilmi sem einkennir kaþólska messugjörð. Þegar allt þetta helst í hendur er sem mikilfengleg leiksýning eigi sér stað. Áhorfendur eru dregnir inn í atburðarás þar sem blekkingin er alsráðandi.

Nokkrum árum seinna gerði Berníní annað kirkjuverk, Hásæti Péturs postula. Þar vinnur hann með sporöskjulaga form sem þá var nýlunda. Hér spila birtuformin saman og engu líkara er að birtan verði efniskennd. Margvísleg efnisnotkun hans undirstrikar hleðslustílinn en fílabeinið utan um gluggann myndar skrautlegan ramma. Berníní var virkur listamaður til síðasta dags á sinni löngu æfi. Hann skildi eftir sig ótal listaverk og byggingar. Áhrif Bernínís breiddust út og listamenn um alla álfuna tóku að stæla stílbrögð hans.

Í FRÉTTUM VAR ÞETTA HELST ...
Mbl.is 23.10.2002
Sannleikurinn færður úr lífstykkinu
Hugmyndir manna um siðgæði taka stöðugt breytingum. Þannig þótti það ekki tiltökumál þegar ítalski myndhöggvarinn Gian Lorenzo Berníní, sem uppi var á 17. öld, hjó út myndir af Kærleikanum og Sannleikanum í Da Sylva kapellunni í dómkirkju heilags Ísidórs í Róm. Árið 1863 töldu ítalskir trúarleiðtogar að nakin brjóstin á höggmyndinni særðu siðferðiskennd fólks. Var því ákveðið að færa konumyndirnar í lífstykki úr bronsi.


Heimild: Texti fenginn af vefnum www.ismennt.is/
not/asjo/barokk/Bernini2.htm
í júní 2002.
RV hefur breytt textanum skv. málstefnu vefjarins.
 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 08.06.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband