Langhlauparafélagið hætti formlegri starfsemi 2005.

Fyrrum félagar LHF fóru ýmist að æfa með Laugaskokki eða prófessorahópnum sem hleypur frá Vesturbæjarlaug.

Tékkaðu á þessu!

Langhlauparafélagið
Félagsstarf
Deildir LHF
Greinar
Hlaupasögur
Leiðir
Myndir
Tenglar
Um vefinn

Fótaaðgerðastofa Guðrúnar
 
L a n g h l a u p a r a f é l a g i ð
Hlaupaleiðir LHF

Vegalengdir algengra hlaupaleiða LHF. Oftast er hlaupið frá Sundlaug Vesturbæjar. Vegalengdir námundaðar að fallegri tölu, en nákvæmari kílómetrafjöldi síðast í leiðarlýsingu. Gísli GPS-mældi. Góða ferð!

HVAÐ HLJÓP ÉG? Gott að vita vegalengdina sem hlaupin er til að vita hversu hratt var hlaupið.
Viktorshringur 17,5 km
Frá Vesturbæjarlaug norður að Sæbraut, meðfram sjónum inn Túnin og brúna yfir Kringlumýrarbraut, Laugardal ...
(GPS mæling í apríl 2003: 17,54 km).

Vesturbær - Fossvogur 16 km
Frá Vesturbæjarlaug, Ægisíðu út í Nauthólsvík, inn Fossvogsdal að Víkingsheimili og sömu leið til baka. (GPS mæling í apríl 2003: 16,17 km).

Kassagerðarhringur u.þ.b. 16 km
Frá Vesturbæjarlaug, Hofsvallagötu, Geirsgötu, Sæbraut, Dalbraut, Laugarásveg, Sunnuveg, Engjaveg, Grensásveg og brúna yfir Miklubraut, Eyrarland, Fossvogsveg, Nauthólsvík, Ægisíðu að sundlaug.

Grensáshringur u.þ.b. 15 km
Frá Vesturbæjarlaug, Ægisíðu, Nauthólsvík og göngubrúna yfir Kringlumýrarabraut, áfram Fossvogsveg, Eyrarland, Grensásveg og þá brúna yfir Miklubraut, Laugardal, Borgartún, Skúlagötu, Geirsgötu, Ægisgötu og loks Hofsvallagötu að sundlaug.

Nes - miðbær 14 km
Frá Vesturbæjarlaug, Nesveg að Eiðistorgi, Suðurströnd og út nesið út fyrir golfvöll, Norðurströnd inn í Ánanaust, Mýrargötu, Geirsgötu, Lækjargötu, Fríkirkjuveg og áfram með Hljómskálagarðinum að Hringbraut, suður Hofsvallagötu að sundlaug.

Öskjuhlíðarhringur meiri 13 km
Vesturbæjarlaug, Ægisíða út í Nauthólsvík, áfram neðan kirkjugarðs að Kringlumýrarbraut, upp Suðurhlíð að Perlunni, niður hitaveitustokk, Flugvallarveg og Hlíðarfót niður í Nauthólsvíkina aftur og þaðan til baka meðram ströndinni um Ægisíðu að sundlaug. (GPS mæling í apríl 2003: 12,84 km).

Öskjuhlíðarhringur minni 10 km
Vesturbæjarlaug, Ægisíða út í Nauthólsvík, áfram neðan kirkjugarðs að Kringlumýrarbraut, upp Suðurhlíð að Perlunni, niður hitaveitustokk, Bústaðaveg fram hjá Valsheimili, Vatnsmýrarveg, Hringbraut og Hofsvallagötu að sundlaug. (GPS mæling í apríl 2003: 10,11 km).

Öskjuhlíðartempó (endað við Faxaskjól) 8,25 km
Frá Nauthól (kaffihúsi), áfram niður fyrir kirkjugarð að Kringlumýrarbraut, upp Suðurhlíð að Perlu, niður hitaveitustokk, stíginn suður og austur niður í Nauthólsvík og til baka að skolpdælustöð í Skerjafirði og þaðan stíginn vestur um Skerjafjörð og Ægisíðu að Faxaskjóli.

Skerjafjarðartempó 7,5 km
Frá Skerjaveri, að skolpdælustöð við Skerjafjörð, vestur stíginn að Ægisíðu, Nesveg að Eiðistorgi, Suðurströnd, Lindarbraut, Norðurströnd að blómabúð á Eiðistorgi.

Öskjuhlíðartempó 6 km
Frá Nauthól (kaffihúsi) inn Nauthólsvíkina að Kringlumýrarbraut, upp Suðurhlíð að Perlunni, niður hitaveitustokk, Flugvallarveg og Hlíðarfót aftur niður í Nauthólsvík og svo meðfram ströndinni að skolpdælustöð í Skerjafirði. (GPS mæling í apríl 2003: 5.98 km).

NESSPRETTUR
tími / meðalhraði
11:00 3:25
11:30 3:34
12:00 3:44
12:30 3:53
13:00 4:02
13:30 4:12
14:00 4:21
14:30 4:30
15:00 4:40
15:30 4:49
16:00 4:58
Upphitun fyrir spretti á Ægisíðu 4 km
Vesturbæjarlaug, Hofsvallagata, Hringbraut, Suðurgata suður í Skerjafjörð og sjávarstígur að bekk við upphaf spretta. (GPS mæling í apríl 2003: 4,1 km).

Skokk eftir spretti á Ægisíðu 4 km
Ægisíða, Nesvegur, Eiðistorg (bílastæði), Eiðsgrandi, Hringbraut og niður Hofsvallagötu að sundlaug. (GPS mæling í okt. 2003: 3,80 km).

Nessprettur 3,22 km
Hringurinn byrjar og endar við strætóskýlið framan við Neslaugina. Hlaupin er Suðurströndin, Lindarbraut, Norðurströnd og aftur upp Suðurströndina við Eiðistorg.