E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center
ÍS-ÍT: islandaoggi.com

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
  RÓMVERSK-KAÞÓLSKA KIRKJAN
Tórínó líkklæðið
  Sagan segir að klæðinu hafi verið vafið utan um
jarðneskar leifar Krists þegar hann var tekinn
niður af krossinum á Hausaskeljastað.

KRISTUR? Hluti myndarinnar á framhlið líkklæðisins frá Tórínó.
Klæði það sem trúaðir segja líkklæði Krists hefur um aldir verið geymt í Tórínóborg. Á klæðinu er dauf mannsmynd sem sögð er vera af Jesú og er helgi þess ekki síst tilkomin vegna þessa. En, mynd þessi er ekki óumdeild og hefur því verið mikið rannsökuð.

Nýjar rannsóknir, sem farið hafa fram á líkklæðinu frá Tórínó, hafa enn aukið á dulúðina, sem umlukið hefur þetta umdeilda klæðisplagg. Mynd af andliti sést á klæðinu, sem margir hafa viljað meina að væri ásjóna Jesú Krists sjálfs, en sagan segir að klæðinu hafi verið vafið utan um jarðneskar leifar hans þegar hann var tekinn niður af krossinum á Hausaskeljastað. Ekki eru þó allir þessarar trúar.

En nú gerast undur mikil því að samkvæmt því sem segir á vef BBC hefur önnur andlitsmynd sést í klæðinu bakatil, skv. fréttum frá Eðlisfræðistofnun Lundúna. Bakhlið klæðisins hefur verið hulin augum manna síðan árið 1534 þegar nunnur saumuðu efnisdúk á hana eftir að klæðið hafði skemmst í bruna. Dúknum var svipt af árið 2002 og þegar prófessor við Háskólann í Padúa, Giulio Fanti, sá daufa andlitsmynd á ljósmyndum, sem honum voru færðar af klæðinu, ákvað hann að rannsaka málið nánar.

Hann segir myndina afar daufa en á henni sjáist þó m.a. nef, augu, hár og skegg. Myndin sé aðeins frábrugðin myndinni á framhliðinni. Prófessor Fanti vísar á bug fullyrðingum um að myndin á bakhliðinni staðfesti að um svikna vöru sé að ræða, málningin eða liturinn hafi farið í gegn. Hann segir svo það af og frá.

Kolefnistrefjarannsókn, sem gerð var á klæðinu frá Tórínó árið 1979 og síðan aftur 1988 benti þó til að um svikna vöru væri að ræða. Vísindamenn frá þremur háskólum komust að þeirri niðurstöðu að það væri frá því árið 1260 til 1390, sem er allfjarri dánarári Krists.

Frá því að rannsóknirnar fóru fram hafa verið upp efasemdir um áreiðanleika kolefnisrannsóknanna og árið 1997 staðhæfði svissneskur fornleifafræðingur, sem varið hafði sextán árum ævi sinnar í að rannsaka klæðið, að nýjar rannsóknir hefðu sýnt fram á að það væri án alls vafa ósvikið.
- Mbl.is sagði frá 13.4.2004 og byggði á BBC.

Mbl.is 27.1.2005
Líkklæðið frá Tórínó sagt eldra
en áður var talið

Líkklæðið frá Tórínó er mun eldra en fyrri rannsóknir hafa bent til. Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar sem birt er í tímaritinu Thermochimica Acta en samkvæmt henni er líkklæðið 1300-3000 ára gamalt. Höfundur skýrslunnar vísar á bug niðurstöðum kolefnisrannsókna sem gerðar voru 1988 og bentu til þess að um væri að ræða fölsun frá miðöldum. Á líkklæðinu sjást óljósar útlínur blóðugs manns og hafa sumir talið að um sé að ræða líkklæði Krists.

Fram kemur á fréttavef BBC, er haft eftir efnafræðingnum Raymond Rogers, að rannsóknir hans bendi til þess að sýnið, sem notað var við rannsóknina árið 1988, hafi verið tekið úr bót, sem ofin var inn í klæðið og er frá miðöldum. Klæðið var bætt eftir að það skemmdist í eldi. Rogers segir að efnafræðirannsóknir hans sýni fram á að klæðið sé mun eldra en áður var talið. Í ljós hafi komið að efnið vanillin, sem venjulega finnst í hör en dofnar með árunum, finnst ekki í stærstum hluta líkklæðisins. Það bendi til þess að klæðið sé afar gamalt eða á milli 1300 og 3000 ára. Hins vegar finnist vanillin í bótum, sem bætt hafi verið í klæðið á miðöldum.

Í rannsókninni, sem vísindamenn frá þremur háskólum gerðu árið 1988, var niðurstaðan sú að klæðið væri frá tímabilinu 1260-1390. Þar með væri ómögulegt að um væri að ræða líkklæði Krists og kardínálinn í Tórínó lýsti því í kjölfarið yfir að um væri að ræða fölsun. Ýmsar tilraunir hafa verið gerðar síðan til að hnekkja þessum niðurstöðum.
 
 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 08.06.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband