| |
|
| |
|
 |
LEITA
í VEFNUM |
 |
|
|
| |
| Sláðu inn það
efnisorð sem þú hefur áhuga
á að fræðast um í Rómarvefnum. |
|
|
 |
NÝTT
í VEFNUM |
 |
|
|
 |
|
08.05.09 Mussolini
og launsonurinn. Lesa
17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og
annað sem hægt er að gera í Róm.
Lesa
15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér
í beint samband við fornöldina. Lesa
04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er
mikil og hefur stórbatnað síðustu árin.
Lesa
02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að
heimsækja í Verónu. Lesa |
|
 |
FERÐAVEFIR |
 |
|
|
| |
|
 |
SKÁLDIÐ
SAGÐI ... |
 |
|
|
Ef
ég skyldi einhverntíma komast í vandræði
þá vildi ég vera meðal ítala.
- Halldór Laxness.
Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa
ort og skrifað
um Ítali og Ítalíu. |
|
|
 |
UMSAGNIR |
 |
|
|
 |
|
Við
erum búin að vísa mörgum í
hús til ykkar því af þeim vefjum
ítölskum sem við skoðum þá
held ég að ykkar geri betur en flestir að
vísa til vegar á Ítalíu og
ekki síst í Róm.
...hagnýtur
og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús
stiga út á upplýsingagildið
og skemmtilegheitin ...
Við
prentuðum út margar síður af þessum
snilldarvef og notuðum sem biblíu á
10 daga ferðalagi okkar um Róm.
Meira |
|
|
| |
|
|
| | RÓMVERSK-KAÞÓLSKA KIRKJAN | | | Péturskirkjan í fimm aldir | | | Péturskirkjan er að hluta til byggð á grunni hinnar eldri frá 4. öld, en þar enn neðar lúrir leikvangur Nerós og fjölmörg grafhýsi frá 1. og 2. öld e.kr. | | - Í VINNSLU - Liðnar eru fimm aldir síðan hafist var handa við að byggja Péturskirkjuna í Róm. Bygging sú gekk ekki þrautarlaust; kirkjan klofnaði, Róm var eyðilögð af þýskum innrásarher, en 120 árum eftir að Júlíus II. páfi lagði hornstein nýju basilíkunnar var hún tilbúin svona nokkurn veginn eins og við þekkum hana þetta fimm hundruð árum síðar. En, saga Péturskirkjunnar nær lengra en hálfa þúsöld aftur í tímann, því núverandi kirkja var reist á þeim sama stað og hin fyrri Péturskirkja stóð og eiginlega byggð inn í þá gömlu. Eldri basilíkuna hafði Konstantínus keisari látið reisa snemma á 4. öld og varð Vatíkanhæð fyrir valinu vegna þess að þar hermdu menn að Pétur postuli hefði verið krossfestur og grafinn. Um miðja 1. öld e.Kr. lét Kalikúla keisari reisa paðreim einn mikinn vestan við Marsvelli og handan Tíberfljóts. Þetta var við rætur Vatíkanhæðar, Mons Vaticanus, og að sönnu dulítið úr alfaraleið Rómverja þess tíma en þarna var nóg pláss. Sagan segir svo að á þessum leikvangi hafi Pétur postuli verið festur upp á kross í tíð Nerós Rómarlýð til skemmtunar. Upp af paðreiminum voru grafhýsi (negropolis) og þar er sagt að safnaðarfólk Péturs hafi lagt hann til hinstu hvílu. Upp úr þessu fór Vatíkanhæðin að öðlast helgi í hugum kristinna og svo fór að hinn fyrsti kristni keisari Rómar, Konstantínus mikli, lét reisa þar kirkju eina mikla og tileinkaði Pétri.  | | | Paðreimur Nerós og grafhýsin Teikning sem sýnir hverning talið er að hafi verið umhorfs á og við Vatíkanhæð þegar Konstantínus keisari tók til við að byggja Péturskirkjuna hina fyrri. |  | | | Paðreimur Kalikúlu og Nerós Koparstunga frá 1699 eftir Pietro Santi Bartoli (1635-1700) úr ritinu Romanae Magnitudinis Monumenta. | Það var Nikulás V. páfi (1447-55) sem átti hugmyndina að endurbyggingu Péturkirkjunnar. Rann honum til rifja hörmulegt ástand gömlu kirkjunnar sem var að hruni komin og freskur hennar og steinfellumyndir þaktar ryki og skít. Árið 1452 fól hann Bernardo Rossellino að reisa nýjan kór vestan gömlu kirkjunnar, en við dauða páfa var því verki ekki fram haldið fyrr en 1470, að Páll II. fól Giuliano da Sangallo að halda verkinu áfram. Hinn 18. apríl 1506 lagði Júlíus II. páfi hornstein nýju kirkjunnar. Bramante, einn helsti arkitekt endurresnarinnar, hafði dregið upp mynd af nýrri kirkju í anda nýrra tíma og átti hún að vera eins og grískur kross í laginu. Við lát Bramantes 1514, réði Leó X. páfi þá Rafaello, Fra Giocondo og Giuliano da Sangallo til að halda verkinu áfram og þá var skipulagi kirkjunnar breytt í líki latnesks kross. Við dauða Rafaellos árið 1520 komu að verkinu arkitektarnir Antonio da Sangallo eldri, Baldassarre Peruzzi og Andrea Sansovino.  | | | Sanktipéturs basilicam hin fyrri Páfi blessar pílagríma frá svölum gömlu kirkjunnar, en að baki rís turn hvolfþaksins mikla í nýju kirkjuna. Mynd frá síðari hluta 16. aldar, en tilvitnunin er í Laxness. | Eftir að Róm var lögð í rústir 1527 fól Páll III. páfi (1534-49), Antonio da Sangallo yngri áframhald verksins. Hann kaus að byggja eftir tekiningum Bramantes og byggði millivegg milli byggingarsvæðis nýju kirkjunnar og austurhluta hinnar gömlu, sem var enn þá í notkun. Þegar hann dó 1546, gerði Páll III. Mikelangeló að aðalarkitekt. Hann hélt því starfi einnig í tíð páfanna Júlíusar III. og Píusar IV. Árið 1546, við lát Mikelangelós, var undirstaða hins mikla hvolfþaks að mestu tilbúin. Eftirmenn Mikelangelós voru Pirro Ligorio og Giacomo da Vignola. Gregoríus XIII. (1572-85) fól Giacomo della Porta yfirstjórn framkvæmdanna. Hann breytti hvolfþakinu og lauk byggingu þess í tíð Sixtusar V .(1585-90). Gregoríus XIV. lét síðan reisa ljósastæði (lanterno) uppi á henni. Klemens VII. (1592-1605) lét brjóta kór gömlu kirkjunnar og lét reisa nýtt háaltari yfir altari Calixtusar II.  | | | PÉTURKIRKJAN OG PÉTURSTORGIÐ Mynd eftir Battista. | Páll V. (1605-21) lét teikningu Carlosar Madero ráða, þannig að kirkjan fékk á sig form latneska krossins með því að kirkjuskipið var lengt til austurs. Þannig varð byggingin 187 m löng. Madero lauk einnig við forhlið kirkjunnar og bætti útskotum á teikninguna til að styrkja klukkuturninn. Aðeins annað þessara útskota var byggt og turninn þar ofan á eftir teikningu Gian Lorenzo Berninis árið 1637. Turninn sá hrundi hins vegar og þótti mikil hneysa. Eins og til þess að sanna sig hannaði Bernini mikilfenglegt sporöskjulagað torgið framan við kirkjuna, umkringt margfaldri súlnaröð. Þetta var í páfatíð Alexanders VII. (1655-67). Péturskirkjan er prýdd fjölda meistaraverka endurreisnar- og barokkstílanna, þ.m.t. Pietu Mikelangelós, altaristjaldinu eftir Bemini, styttu Hl. Longinus, grafhvelfingu Úrbans VIII. og bronshásæti Péturs postula í kórnum. Um aldir hefur Péturskirkjan verið stærst og mest kirkna kristninnar og laðað til sín milljónir pílagríma og aðra ferðamenn. Bertel Thorvaldsen á tvö verk hér, annað lítið og hitt stórt. Það var voldugur kardináli, Consalvi að nafni, sem kostaði Thorvaldsen til að gera mikið og stórt Minnismerki Píusar VII. (1800-23) sem verið hafði páfi allan þann tíma sem listamaðurinn dvaldi borgríki hans. Upphaflega átti að fá hinn fræga Canova í verkið, en hann dó og þá var Thorvaldsen næstur í röðinni. Ætti þetta að segja eitthvað um stöðu okkar manns í listheiminum rómverska á sínum tíma, auk þess sem það þótti síður en svo sjálfsagt að listamaður mótmælendatrúar væri fenginn til að vinna fyrir Páfagarð. Eitt af því fyrsta sem maður tekur eftir er dyraumgerð fótstallsins, en hún er fengin úr grafhýsum Etrúska. Þennan stíl má svo sjá á safni Thorvaldsens í Kaupmannahöfn. Minnismerkið stendur í Péturskirkjunni vinstra (sunnan) megin og sómir sér vel í kompaníi við verk merkustu listamanna sögunnar. Péturskirkjan er opin allan ársins hring. Á Péturstorginu framan við kirkjuna, í súlnagöngum Bernínís n.t.t., er að finna pósthús Páfagarðs og salerni. Uppi á þaki basilíkunnar eru minjagripaverslanir og salerni og þaðan er haldið áfram upp um hvolfþakið í ljósstæðið þar ofan á, en þaðan er mjög gott útsýni yfir borgina. | |
|
|