| | RÓMVERSK-KAÞÓLSKA KIRKJAN | |
| Páfagarður |
| | Páfaríkið er sjálfstætt ríki innan landamæra Ítalíu og þiggur nafn sitt af Vatíkanhæðinni sem það stendur á í Róm. | |
Sem æðstráðandi sjálfstæðs ríkis innan ítalska ríkisins hefur páfinn um sig hirð embættismanna sem sinna stjórn þess. Við sameiningu Ítalíu með falli Páfaríkisins árið 1870 hófst áralöng óvissa um stöðu Páfagarðs sem kristallaðist í afstöðu páfa á þessu tímabili, en hann leit á sig sem gísl Ítalíukonungs. Það var Mússolíní sem varð til þess að tryggja Páfagarði réttarstöðu sem ríki í ríkinu með Lateransamningnum s.k. árið 1929. Það varð þó ekki fyrr en árið 2002 að Jóhannes Páll páfi II. sótti heim Ítalska þingið. Curia heitir páfaráð rómversk-kaþólsku kirkjunnar og í því sitja æðstu embættismenn hennar og eru páfanum til ráðgjafar um stjórn kirkjunnar. Páfaríkið þyggur nafn sitt af Vatikanhæðinni sem það stendur á. Páfamessur Páfinn viðrar teppið sitt rauða (les: messar) frá skrifstofuglugga sínum við Péturstorg um hádegið nánast á hverjum sunnudegi, að því gefnu að hann sé í bænum. Þar að auki messar hann innandyra á miðvikudagskvöldum, en þarf að panta. Upplýsingar m.a. að hafa í Roma c´é. Við messu sunnudaginn 12. mars 2000 baðst Jóhannes Páll páfi fyrirgefningar á syndum kaþólsku kirkjunnar frá upphafi hennar, svo sem illri meðferð á fólki úr öðrum trúarhópum, Gyðingum, konum og ýmsum kynþáttahópum. Péturskirkjan Bygging Péturskirkjunnar hófst í endurreisn árið 1506 og lauk í barokki árið 1626, en í millitíðinni hafði Róm verið lögð í rúst og kirkjan klofnað. Grunnskipulag kirkjunnar er í stíl við latneskan kross með þremur göngum milli kirkjubekkja og mikilli hvelfingu beint uppi yfir háaltarinu, en þar undir er talin vera gröf Péturs postula. Péturskirkjan hefur um aldir verið stærst og mikilfenglegust kirkna kristninnar. Lestu meira um Péturskirkjuna hér í Rómarvefnum. Fjölmiðlar páfastóls L´Osservatore Romano (Frá rómversku varðbergi) er málgagn páfastólsins, merkilegt blað og menningarlegt, sem ekki segir æsifréttir og reynir að þegja syndina í hel, eins og Helgi P. Briem kemst að orði. Vefsetur Hins heilaga hásætis, páfastóls, er að finna á www.vatican.va. |