E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center
ÍS-ÍT: islandaoggi.com

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
  RÓMVERSK-KAÞÓLSKA KIRKJAN
Páfafréttir
  Þrátt fyrir að við Íslendingar köstuðum kaþólsk-
unni fyrir hálfri fimmtu öld síðan þá virðast málefni páfa og Páfagarðs vera okkur enn áhugaefni ef marka má umfjöllun fjölmiðla hér.

Rómarvefurinn gerði stikkprufu í byrjun mars 2005 á fréttavef Morgunblaðsins, Mbl.is, á því hversu mikið hafi verið fjallað um páfa á vefnum síðustu tvo mánuðina. Leitarorðið var sem sagt „páfi“ og tímabilið náði frá byrjun mars aftur til janúarbyrjunar. Veikindi páfa hafa verið mikið til umfjöllunar í fjölmiðlum á þessum tíma og segir það nokkuð um mikilvægi embættisins, jafnvel í augum ókaþólskra. Hér gefur að líta hluta þeirra frétta sem birst hafa á Mbl.is á þessu tímabili.

Erlent | fös. 4.3.2005
Páfi mun taka þátt í sunnudagsbænum frá sjúkrabeði sínu
Jóhannes Páll II páfi mun taka þátt í sunnudagsbænum frá sjúkrabeði sínu á sunnudag, að því er Joaquin Navarro-Valls, talsmaður Vatíkansins sagði við blaðamenn í dag. Sagði hann að sami háttur yrði hafður á og var við bænir síðasta sunnudag. Páfi liggur á Gemelli sjúkrahúsinu í Róm.

Erlent | fim. 3.3.2005
Óvíst hvenær páfi fær að fara af sjúkrahúsi
Líðan Jóhannesar Páls páfa II fer stöðugt batnandi, að sögn Páfagarðs, en ekki er ljóst hvenær hann fær að fara af sjúkrahúsi í Róm þangað sem hann var fluttur í síðustu viku vegna öndunarerfiðleika.

Erlent | sun. 27.2.2005
Páfi birtist óvænt í glugga sjúkrastofu sinnar; biður um fyrirbænir
Jóhannes Páll páfi kom óvænt út í glugga á sjúkrastofunni sem hann dvelur á í Róm og veifaði til lítils hóps fólks fyrir utan. Á tröppum Péturskirkjunnar var lesin yfirlýsing frá páfa þar sem hann fer þess á leit að beðið verði fyrir sér.

Erlent | fös. 25.2.2005
Veðbankar opna fyrir veðmál um hver verði næsti páfi
Á meðan Jóhannes Páll páfi II er að jafna sig eftir aðgerð á spítala í Róm, eru viðskiptavinir veðbanka þegar byrjaðir að veðja á hver verður eftirmaður hans. Samkvæmt írska veðbankanum Paddy Power er líklegast að hinn sjötugi Dionigi Tettamanzi, kardináli og erkibiskup í Mílanó verði næsti leiðtogi kaþólsku kirkjunnar.

Erlent | fös. 25.2.2005
Páfi andar af eigin rammleik
Enginn vottur er um að Jóhannes Páll páfi annar sé með lungnabólgu og hann andar af eigin rammleik í framhaldi af skurðaðgerð í hálsi í gærkvöldi, að því er talsmaður Vatikansins skýrði frá fyrir skömmu. Læknar páfa hafa ráðlagt honum að mæla ekki af munni fram í nokkra daga meðan hann er að jafna sig af nýjustu veikindum sínum.

Erlent | fim. 24.2.2005
Páfi fluttur á skurðstofu
Jóhannes Páll páfi II hefur verið fluttur inn á skurðstofu á Gemelli sjúkrahúsinu í Róm og átti að framkvæma barkaskurð á honum til að auðvelda honum að anda. Á þá að skera lítið op inn í hálsinn og barkann svo loft komist beint inn í lungun.

Erlent | fim. 24.2.2005
Páfi fluttur aftur á sjúkrahús
Jóhannes Páll páfi hefur verið fluttur á sjúkrahús á ný í morgun, að því er ítalska fréttastofan ANSA greinir frá. Að sögn talsmanns Páfagarðs, Joaquins Navarrro-Valls, tók inflúensan sem fyrr í mánuðinum varð til þess að páfi var lagður á sjúkrahús í nokkra daga, sig upp aftur.

Erlent | þri. 22.2.2005
Páfi ræðir um hið illa í nýrri bók
Páfagarður gaf í dag út fimmtu bók Jóhannesar Páls páfa II, þar sem hann skrifar meðal annars um morðtilræðið við sig árið 1981, fordæmir illskuna sem felst í hryðjuverkum og ber fóstureyðingar saman við helför nasista gegn gyðingum.

Erlent | sun. 13.2.2005
Páfi þakkar hlýhug og fyrirbænir
Jóhannes Páll páfi II virtist þokkalega á sig kominn er hann fór með sunnudagsbænir og blessaði viðstadda á Péturstorginu í Róm í dag. “Hér hittumst við aftur á þessum stað til að lofa Guð,” sagði hann. “Mig langar að þakka ykkur öllum, einnig þeim sem eru að fylgjast með í gegnum útvarp og sjónvarp, fyrir samheldni ykkar, umhyggju og umfram allt fyrirbænir á meðan ég lá á Gemelli sjúkrahúsinu.”

Erlent | lau. 12.2.2005
Vonast til að páfi komi til starfa innan skamms
Camillo Ruini, kardináli og fulltrúi páfa í Róm, segir að Jóhannesi Páli páfa líði vel eftir að hann var útskrifaður af sjúkrahúsi á fimmtudag og að vonir standi til þess að hann geti hafið störf innan nokkurra daga.

Erlent | fim. 10.2.2005
Páfi heldur til Vatíkansins
Jóhannes Páll II páfi, sem útskrifaður var af Gemelli sjúkrahúsi í Róm í dag, veifaði til mannfjölda þegar hann hélt á brott frá sjúkrahúsinu í átt til Vatíkansins um borð í bifreið sinni, „páfabílnum.“ Hefur páfi legið 9 daga á sjúkrahúsi en þangað var hann fluttur 1. febrúar vegna öndunarerfiðleika.

Erlent | fim. 10.2.2005
Páfi útskrifast af sjúkrahúsi síðar í dag
Læknar hafa ákveðið að Jóhannes Páll páfi geti útskrifast af sjúkrahúsi síðar í dag, að því er fram kemur í tilkynningu frá Vatíkaninu. Segja læknar að tekist hafi að komast fyrir öndunarfærakvilla sem olli því að páfi var lagður inn 1. febrúar. Páfi þjáðist þá af öndunarerfiðleikum og flensu.

Erlent | mið. 9.2.2005
Vangaveltur um að páfi hugleiði afsögn
Menn velta nú vöngum yfir því á Ítalíu og víðar hvort Jóhannes Páll II páfi kunni að vera að hugleiða afsögn.

Erlent | mán. 7.2.2005
Páfi verður áfram á sjúkrahúsi
Læknar hafa ráðlagt Jóhannesi Páli páfa II að vera áfram á sjúkrahúsi í nokkra daga þótt bati hans sé góður, að sögn Joaquins Navarro-Valls, talsmanns Páfagarðs. Sagði Navarro-Valls að Páfagarður muni veita upplýsingar um líðan páfa á fimmtudag.

Erlent | sun. 6.2.2005
Páfi blessaði lýðinn frá sjúkrahúsinu
Jóhannes Páll Páfi II veifaði fólki úr glugganum á Gemelli sjúkrahúsinu í Róm í dag. Flutti hann lokaorðin í sunnudagsblessun sinni en hjálparmaður hans las aðra hluta blessunarinnar. Mikill mannfjöldi hafði safnast saman við sjúkrahúsið. Sjónvarpsskjáir og hljóðkerfi hafði verið komið fyrir á Péturstorginu í Róm en þaðan flytur hann yfirleitt blessun á sunnudögum.

Erlent | lau. 5.2.2005
Páfi nokkuð hress og talaði skýrt
Jóhannes Páll páfi II var nokkuð hress og talaði skýrt í dag er hann las upp bréf frá tugum biskupa sem söfnuðust saman í kapellu spítalans sem hann dvelur á í Róm. Vincenzo Paglia, ítalskur biskup, sem færði páfa bréfið sagði hann hafa látið í ljós ánægju og þakklæti fyrir bænir um bata. „Það er auðveldlega hægt að skilja hvað hann segir,“ sagði Paglia við fréttamenn. Hefur verið ákveðið að páfi flytji vikulega blessun á morgun.

Erlent | fös. 4.2.2005
Páfi á hægum batavegi
Jóhannes Páll II páfi dvaldi í nótt þriðju nóttina á Gemelli sjúkrahúsinu í Róm, en hann er sagður vera á hægum batavegi. Hugsanlegt er að páfi verði fær um að flytja næsta sunnudagsávarp sitt á sjúkrahúsinu og að það verði sýnt á myndskjá á Péturstorginu.Enn er beðið nánari fregna af heilsufari páfa, en í ítölskum blöðum í dag kemur fram að það versta virðist afstaðið, að minnsta kosti í bili.

Erlent | fim. 3.2.2005
Páfi „átti friðsæla“ nótt á sjúkrahúsinu í Róm
Jóhannes Páll II páfi átti „friðsæla nótt“ á Gemelli sjúkrahúsinu í Róm, að því er heimildir frá Vatíkaninu herma. Páfi var fluttur á sjúkrahúsið í fyrrakvöld vegna öndunarerfiðleika. „Ástand páfa hefur batnað mikið,“ að sögn heimilda þaðan. Joaquin Navarro-Valls, talsmaður Vatíkansins, sem heimsótti sjúkrahúsið í morgun, sagði niðurstöður rannsókna á heilsufari páfa, sem hefur verið haldinn flensu, væru „bærilegar.“ Hann bætti við að páfi yrði líklega sjö daga á sjúkrahúsinu.

Erlent | fim. 3.2.2005
Páfi eyddi annarri nótt á sjúkrahúsi
Jóhannes Páll II páfi dvaldist aftur í nótt á sjúkrahúsinu sem hann var fluttur á í Róm í fyrrakvöld vegna öndunarerfiðleika. „Háttsettur“ heimildamaður innan Vatíkansins sagði ítölsku fréttastofunni ANSA að öndunarerfiðleikarnir væru ekki eins miklir nú og þegar hann var fluttur á sjúkrahúsið. Hugsanlegt sé að páfi verði útskrifaður af því innan nokkurra daga.

Erlent | mið. 2.2.2005
Páfi á sjúkrahúsi í nokkra daga til viðbótar
Jóhannes Páll II páfi verður á sjúkrahúsi „í nokkra daga til viðbótar“ að því er Joaquin Navarro-Valls, talsmaður páfagarðs, sagði í viðtali við útvarpsstöð Vatíkansins í dag. Páfi var fluttur á Gamelli sjúkrahúsið í Róm í gærkvöldi vegna öndunarerfiðleika. Fyrr í dag skýrði Navarro-Valls frá því að veikindi páfa væru ekki þess eðlis að „ástæða væri til þess að óttast.“ Hann sagði ástand páfa stöðugt en páfi bjó sig í morgun undir að messa ásamt nánustu aðstoðarmönnum sínum.

Erlent | mán. 10.1.2005
Páfi kallar eftir andstöðu við frjálsræði í fjölskyldumálum
Jóhannes Páll páfi II kallaði eftir meiri andstöðu við lög sem heimila hjónaband samkynhneigðra og tryggja réttindi ógiftra para, í nýársávarpi sem hann flutti í Vatíkaninu í dag.

Erlent | sun. 13.2.2005
Páfi blessar viðstadda á Péturstorginu
Nokkur hundruð pílagrímar komu saman á Péturstorginu í Róm í morgun eftir að tilkynnt var að Jóhannes Páll páfi II myndi fara þar með sunnudagsbænir og blessa viðstadda eins og hann gerir flesta sunnudaga. Þetta verður fyrsta opinbera verk páfa frá þvi hann var lagður inn á sjúkrahús þann 1. febrúar.

Erlent | mið. 9.2.2005
Páfi hugsanlega útskrifaður af sjúkrahúsi bráðlega
Joaquin Navarro-Valls, talsmaður Vatíkansins, vakti í dag vonir um að Jóhannes Páll II páfi yrði senn útskrifaður af sjúkrahúsi en þar hefur hann legið í rúma viku. Navarro-Valls sagði í samtali við blaðamenn að hann vonaðist til þess að skýrsla sem sjúkrahúsið lætur taka saman um heilsufar hans á morgun verði „sú síðasta.“

Erlent | mið. 2.2.2005
Páfi sagður hafa náð bærilegri hvíld í nótt
Jóhannes Páll páfi II, sem lagður var inn á sjúkrahús í gærkvöldi vegna öndunarerfiðleika, er sagður hafa náð bærilegri hvíld í nótt, að því er heimildamenn innan Vatíkansins skýrðu frá í dag. Páfa, sem er 84 ára og haldinn Parkinson veiki, leið „bærilega“ í herbergi sínu á tíundu hæð Gemelli sjúkrahússins í Róm í nótt, að því er heimildir frá Vatíkaninu herma.

Erlent | fim. 27.1.2005
Páfi segir morð á gyðingum í Auschwitz varpa skugga á sögu mannkyns
Jóhannes Páll páfi II sagði í dag að morð á gyðingum í Auschwitz séu glæpur „sem mun varpa skugga á sögu mannkynsins að eilífu.“ Bætti hann við að heimurinn mætti aldrei gangast undir hugmyndafræði sem byggðist á kúgun og harðræði. Sagði hann þetta í tilefni af því að 60 ár eru liðin frá því að bandamenn fóru inn í Auschwitz-útrýmingarbúðirnar í heimalandi hans, Póllandi.

Erlent | lau. 8.1.2005
Páfi hvetur til þess að viðskiptabanni á Kúbu verði aflétt
Jóhannes Páll páfi II hvatti til þess á óbeinan hátt að bandarísk stjórnvöld afléttu viðskiptabanni á Kúbu í dag, þegar nýr sendiherra Kúbu í Vatíkaninu afhenti honum trúnaðarbréf sitt. „Páfadómur vill mjög gjarnan að hindrunum sem koma í veg fyrir samskipti og viðskipti á milli Kúbu og hluta alþjóðasamfélagsins verði rutt úr vegi,“ sagði hann.

Erlent | fim. 6.1.2005
Páfi lýsir yfir áhyggjum vegna yngstu fórnarlambanna í Suðaustur-Asíu
Jóhannes Páll páfi lýsti yfir áhyggjum vegna yngstu fórnarlambanna í náttúruhamförunum í Suðaustur-Asíu sem og börnum sem er rænt og seld mansali í ræðu sinni á St. Péturs torginu í dag. Þúsundir manna hlýddu á páfann.

Erlent | fös. 4.2.2005
Páfi vill flytja sunnudagsávarp sitt á sjúkrahúsinu
Heilsufar Jóhannesar Páls páfa II hefur batnað og er hann nú fær um að neyta fæðu reglulega, að því er Joaquin Navarro-Valls, talsmaður Vatíkansins, sagði á blaðamannafundi í dag. Hann sagði blaðamönnum að páfa langi til þess að flytja vikulegt ávarp sitt til pílagríma á sunnudag á sjúkrahúsinu. Ákvörðun um hvort hann muni gera það verður hins vegar ekki tekin fyrr en á morgun.

Erlent | fös. 25.2.2005
Líðan páfa sögð góð eftir atvikum
Líðan Jóhannesar Páls páfa II er sögð eftir atvikum góð en páfi gekkst undir barkaskurð í gærkvöldi og tókst aðgerðin vel. Páfi hvílist nú á einkastofu sinni á Gemelli-sjúkrahúsinu í Róm og að sögn ráðgjafa Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, er hann rólegur og með meðvitund.

Erlent | sun. 6.2.2005
Segja ávarp páfa ekki hafa verið af segulbandi
Páfagarður hefur vísað því á bug að ávarp, sem Jóhannes Páll páfi flutti í dag í sjúkrastofu sinni, hafi verið hljóðritað áður að hluta, til að fela hvað páfi sé í raun máttfarinn. Joaquin Navarro-Valls, talsmaður Páfagarðs, sagði að fréttir þessa efnis væru „tóm vitleysa.


Lestu æviágrip Jóhannesar Páls II. hér í Rómarvefnum.

 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 08.06.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband