E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center
ÍS-ÍT: islandaoggi.com

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
  RÓMVERSK-KAÞÓLSKA KIRKJAN
Verndardýrlingur netsins
  Ísidór hafði feikileg áhrif á menntalíf og menningu
sinnar samtíðar. Hann væri því vel að því kominn
að verða verndardýrlingur netsins.

Eftir Þórð Víking Friðgeirsson

Í katólskum kirkjusið eru valdir sérstakir verndardýrlingar ákveðinna sviða, mála og jafnvel atvinnugreina. Verndararnir eru valdir vegna sérstakra hæfileika sem þeir hafa búið yfir í lifanda lífi eða þá að atburðir í lífi þeirra hafa gert þá verðuga til að vaka yfir hagsmunum skjólstæðinga sinna.

Til dæmis þá er heilagur Frans frá Assisi verndari náttúrufræðinga því hann unni náttúrunni öðrum mönnun fremur. Francis de Salis var rithöfundur og er því verndadýrlingur rithöfunda og blaðamanna. Klara frá Assisi er verndari sjónvarpsins því eitt sinn þegar hún komst ekki til messu vegna veikinda þá sá hún samt og heyrði hvert orð – þótt messan væri haldin langt í burtu. Verndari kaupsýslumanna heitir því skondna nafni Homobonus. Homobonus var lærður í viðskiptum og einstaklega grandvar fésýslumaður. Konur í viðskiptum eiga sinn verndadýrling sem er Margrét frá Clitherow. Hvort sem það eru meðmæli eða merki þess að stéttin þurfi óvenju mikillar verndar og tilsjónar með þá eiga verkfræðingar a.m.k. fimm verndadýrlinga. Þar má geta heilags Benedikts, heilagrar Barböru og Ferdinands III. Svo mætti áfram telja. Yfirleitt útnefnir páfinn verndardýrlinginn, en einnig geta hópar valið sér verndara.

Nú stendur yfir val á verndara Netsins og stendur valið milli þriggja dýrlinga. Fyrstan ber að nefna þann spánska San Pedro Regalado, en hann er útnefndur vegna þess að fjarlægðir skiptu hann engu máli. Til dæmis þá gat hann verið á fleiri en einum stað í einu rétt eins og internetið. Þá skal getið heilagrar Teklu, en hún getur hjálpað fólki sem þjáist af tölvuhræðslu. Sá sem er langlíklegast að Vatíkanið velji sem verndardýrling Netsins er þó hvorugur þessara heldur heilagur Ísidór frá Sevilju á Spáni.

Heilagur Ísidór
Heilagur Ísidór fæddist líklega árið 560 og lést árið 636. Þegar hann spratt úr grasi varð hann einstaklega fjölfróður maður. Tungumál, læknisfræði, heimspeki, lögfræði og margt fleira lék í höndum Ísidórs. Fullorðinn var hann talinn lærðasti maður sinnar samtíðar. Höfuðverk hans nefnist "Etymologiae" sem er þess tíma alfræðibók í 20 bindum - sú fyrsta sinnar tegundar sem kristinn maður gefur út. Alfræðibók er vitanlega ekkert annað en gagnagrunnur og internetið er sömuleiðis í raun einn ógnarstór gagnagrunnur. Ísidór hafði feikileg áhrif á menntalíf og menningu sinnar samtíðar. Hann væri því vel að því kominn að verða verndardýrlingur Netsins.

Netið, páfinn og góðar vættir
Þess skal getið að katólska kirkjan er vel virk í að nota internetið til að boða orðið. Messum páfans er t.d. útvarpað á Netinu og Vatikanið rekur voldugt og íburðarmikið vefsetur á www.vatican.va. Ekki duga færri en þrír vefþjónar til að anna umferðinni á páfavefnum. Líklega hafa vefþjónarnir ekki verið skírðir en þeir hafa fengið nöfn og heita eins og við á - Rafael, Mikael og Gabríel.

Þess skal getið til gamans að auk fjögurra vætta þá á Ísland tvo dýrlinga. Annar er heilagur Anskar (801-854). Anskar þessi lét mjög til sín taka í Skandinavíu og kristnaði fjölda manna. Þá var hann biskup í Brimarborg og vann margt góðverkið t.d. að draga mjög úr hinni ógeðfelldu þrælaverslun víkinganna.

Hinn verndardýrlingur Íslands er sjálfur en Þorlákur Þórhallsson (1133-1193). Þorlákur helgi var m.a. biskup í Skálholti, stofnaði klaustur í Þykkvabænum, endurskipulagði kirkjuna og kom nauðsynlegum aga og festu á starfið s.s. með því að krefjast skírlífis kirkjunnar þjóna. Hann var tekinn í dýrlinga tölu árið 1198 á Alþingi, fimm árum eftir að hann lést. Páfadómur hefur að vísu ekki enn staðfest þann gjörning.


Heimild: 18.05.2002 http://www.stefni.is/
vefsidu/greinaskrif/greinar/isediore.htm

Ath. að ritstjóri hefur stytt greinina og breytt titli,
bætt inn millifyrirsögnum lagaði sumt í texta að málstefnu RV.
Myndina af Ísidóri fékkst á skrýtnum vef:
http://users.net1plus.com/artcatholic/
 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 08.06.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband