| |
|
| |
|
 |
LEITA
í VEFNUM |
 |
|
|
| |
| Sláðu inn það
efnisorð sem þú hefur áhuga
á að fræðast um í Rómarvefnum. |
|
|
 |
HÚSNÆÐI
á ÍTALÍU |
 |
|
|
Hús í Toskaníu
Casa Casciani í Toskaníuhéraði
er til leigu allt árið. Upplýsingar
hér |
|
|
 |
NÝTT
í VEFNUM |
 |
|
|
 |
|
08.05.09 Mussolini og launsonurinn.
Lesa
17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og
annað sem hægt er að gera í Róm.
Lesa
15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér
í beint samband við fornöldina. Lesa
04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er
mikil og hefur stórbatnað síðustu árin.
Lesa
02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að
heimsækja í Verónu. Lesa |
|
 |
FERÐAVEFIR |
 |
|
|
| |
|
 |
SKÁLDIÐ
SAGÐI ... |
 |
|
|
Ef
ég skyldi einhverntíma komast í vandræði
þá vildi ég vera meðal ítala.
- Halldór Laxness.
Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa
ort og skrifað
um Ítali og Ítalíu. |
|
|
 |
UMSAGNIR |
 |
|
|
 |
|
Við
erum búin að vísa mörgum í
hús til ykkar því af þeim vefjum
ítölskum sem við skoðum þá
held ég að ykkar geri betur en flestir að
vísa til vegar á Ítalíu og
ekki síst í Róm.
...hagnýtur
og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús
stiga út á upplýsingagildið
og skemmtilegheitin ...
Við
prentuðum út margar síður af þessum
snilldarvef og notuðum sem biblíu á
10 daga ferðalagi okkar um Róm.
Meira |
|
|
| |
|
|
| Sagt er að heilagur Frans frá Assísí hafi komið á þeim sið að búa til n.k. leikmynd af fæðingarstað frelsarans, þ.e. fjárhúsinu, ásamt öðrum persónum jólaguðspjallsins og fylgifénaði. Presepio Jatan er helsta táknmynd jólanna í suðurlöndum en ekki jólatréð líkt og hér. Settar eru upp litlar og stórar eftirmyndir af fjárhúsinu þar sem Jesús fæddist og var lagður í jötu. Siður þessi virðist ekki ætla að víkja fyrir jólatrénu germanska sem tekið er að breiða úr sér á Ítalíu, ekkert frekar en að okkar siður tapist þrátt fyrir að fjölskyldan heilaga hafi komið sér fyrir í sumum af búðargluggum bæjarins hér heima. Nei, fjölskyldan sú tekur sig bara ágætlega út sem viðbót við fyrri sið; n.k. siðbót!  | | | PRESEPIO María, Jósef, kóngar austrænir og hirðingjar raða sér kringum guðssoninn nýborinn. | Sagt er að heilagur Frans frá Assísí hafi komið á þeim sið að búa til n.k. leikmynd af fæðingarstað frelsarans, þ.e. fjárhúsinu og persónum jólaguðspjallsins og fylgifénaði. Leikmynd grámunksins góða mun hafa verið í fullri stærð og enn eru settar upp slíkar; sú stærsta í Róm er náttúrlega á Péturstorginu. Siður þessi varð brátt vinsæll, sérstaklega á Suður-Ítalíu, og litlum fjárhúsum komið upp á hverju heimili. Leikmynd og eftirmyndir Jesúbarnsins og foreldranna, fjárhirða, engla, asna og vitringa kallast á ítölsku presepio eða presepe og eru af öllum stærðum og gerðum; litlar og látlausar, íburðamiklar og fagurlega skreyttar, jafnvel vélvæddar með rennandi vatni og tilheyrandi ljósadýrð. Í fyrstu var presepiogerðin heimaföndur en hefur með öldum og árum orðið að sérhæfðri nytjalist. Til heimabrúks eru stytturnar algengastar í tindátastærð og úr plasti. Fæstir standa í því að föndra þetta sjálfir, enda framboðið mikið og fylgihlutirnir óteljandi. Nú felst gamanið í því að sviðsetja presepióið eftir eiginn smekk, bæta við húsdýrum eða leikmunum hver jól og vera með flottara en hinir. Um hver jól er haldin sýning á eitthundrað presepióum, gömlum sem nýjum, við Popolotorgið í Róm, en langskemmtilegast er að heimsækja kirkjur Rómar og skoða presepíóin þeirra, eins ólík og þau eru. Eitt frægasta presepíóið er í Maríukirkjunni Santa Maria Maggiore, en það gerði listamaðurinn Arnolfo frá Cambio í lok 13. aldar og talið það elsta sem varðveist hefur. Presepio er víða sett upp á Maríudaginn 8. desember, en það er að sjálfsögðu ekki fyrr en á jóladag sem Jesúbarnið kemur sér fyrir í jötunni. Vitringarnir bætast svo í hópinn á síðasta degi jóla, þann 6. janúar. Lestu líka um nornina Befönu og um jól og áramót í Róm. Sjá líka um Hátíðir og merkisdaga Rómar og Ítalíu. | |
|
|