E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
HÚSNÆÐI á ÍTALÍU
Hús í Toskaníu
Casa Casciani í Toskaníuhéraði er til leigu allt árið. Upplýsingar hér
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
Jól /
natale
Jól
Jól í Róm
Presepio
Áramót
Befana

Aðfararnótt þrettándans flýgur nornin Befana á milli húsa Ítalíu, rennir sér niður reykháfa og skilur eftir sitthvað gott í jólasokkum góðu barnanna.

Nornin Befana
Aðfararnótt þrettándans flýgur nornin Befana á milli húsa Ítalíu, rennir sér niður reykháfa og skilur eftir sitthvað gott í jólasokkum góðu barnanna, en þeim óþekku gefur hún kolamola (sem nú til dags eru svart sykurfrauð).

Sagan af Befönu er gott dæmi um tilurð þjóðsagna og alþýðuskýringa. Sjötti janúar er dagurinn sem guðdómleiki Jesúbarnsins opinberaðist vitringunum þremur, heitir á ítölsku Epifania di Nostro Signore, en það eru gjafirnar hennar Befönu sem dagurinn snýst um í rauninni og börnin eru spenntust fyrir.



En, hvernig skyldi trúarsetningin epifanía breytast í norn að nafni Befana. Jú, einhvern tímann fyrr á öldum er merking orðsins epifanía var ekki lengur lifandi í hugum fólksins þá hafði það þörf fyrir að finna þessu skrýtna gríska orði og deginum sem hét eftir því áþreifanlega skýringu.

BEFANA BARNANNA „Rennum okkur nú niður, kústur minn!“ - segir nornin góða Befana á þessar fínu teikningu.
Sögum ber ekki alveg saman um hana Befönu, en líklegt er að kerlingin hafi orðið á vegi vitringanna á leið þeirra til Jesúbarnsins. Þeir bjóða henni að slást í för með sér, en sú gamla segist hafa öðrum erindum að sinna en sér svo eftir því að hafa ekki orðið þeim samferða til fundar við þetta yndislega barn, hendist út úr húsi sínu á svuntunni og siglir á kústi sínum í kjölfar vitringanna. En hún var of sein og hefur allar götur síðan leitað Jesúbarnsins. Til að bæta upp fyrir að hafa misst af Jesú gefur hún börnum gjafir á þeim degi sem vitringarnir færðu frelsaranum sínar.

Maður getur vel ímyndað sér að hún Befana hafi verið illilegri í gamla daga og fært þeim óþekku margt verra en kol, en eitthvað hefur hún mildast með árunum og Befana nútímans er sem sagt hin vænsta norn. Á jólamarkaðnum á Navónutorgi fær maður fínustu Befönur að taka með sér heim að láta hanga uppi á jólum.

Lestu líka um Jesú, Maríu og Jósef í hinu ítalska presepio, um áramót og jól í Róm. Sjá líka um Hátíðir og merkisdaga Rómar og Ítalíu.

 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 13.03.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía   © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband