| |
|
| |
|
 |
LEITA
í VEFNUM |
 |
|
|
| |
| Sláðu inn það
efnisorð sem þú hefur áhuga
á að fræðast um í Rómarvefnum. |
|
|
 |
NÝTT
í VEFNUM |
 |
|
|
 |
|
08.05.09 Mussolini
og launsonurinn. Lesa
17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og
annað sem hægt er að gera í Róm.
Lesa
15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér
í beint samband við fornöldina. Lesa
04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er
mikil og hefur stórbatnað síðustu árin.
Lesa
02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að
heimsækja í Verónu. Lesa |
|
 |
FERÐAVEFIR |
 |
|
|
| |
|
 |
SKÁLDIÐ
SAGÐI ... |
 |
|
|
Ef
ég skyldi einhverntíma komast í vandræði
þá vildi ég vera meðal ítala.
- Halldór Laxness.
Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa
ort og skrifað
um Ítali og Ítalíu. |
|
|
 |
UMSAGNIR |
 |
|
|
 |
|
Við
erum búin að vísa mörgum í
hús til ykkar því af þeim vefjum
ítölskum sem við skoðum þá
held ég að ykkar geri betur en flestir að
vísa til vegar á Ítalíu og
ekki síst í Róm.
...hagnýtur
og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús
stiga út á upplýsingagildið
og skemmtilegheitin ...
Við
prentuðum út margar síður af þessum
snilldarvef og notuðum sem biblíu á
10 daga ferðalagi okkar um Róm.
Meira |
|
|
| |
|
|
| | | Veróna | | | Verona er ein elsta og fegursta borg Ítalíu, borg menningar, lista, tísku og ekki síst rómantíkur, enda var hún heim- kynni frægustu elskenda allra tíma, Rómeó og Júlíu. | |  | ARENAN Hringleikhúsið fræga í Verónu frá 1. öld. hvar settar eru upp óperusýningar á sumrin. <STÆKKA> | Verona er í héraðinu Veneto á norðanverði Ítalíu. Áin Adigi rennur í gegnum borgina og þar búa um 270 þúsund manns. Vegna legu sinnar við mikilvæga samgönguleið milli Alpanna og Pósléttunnar varð Verona snemma hluti af hinu mikla Rómarveldi og geymir enn margar stórkostlegar minjar frá þeim tíma. Þekktust er Arenan, hringleikahúsið fræga, þar sem óperusýningar á heimsmælikvarða eru settar á svið undir berum himni á sumrin. Á 13. öld komst Scaligeri ættin til valda og réði ríkjum í hartnær eina og hálfa öld. Fjölskyldan gerði Verona að metnaðarfullri höfuðborg sem varð að einni helstu menningar- og listamiðstöð landsins. Á þessum tíma gerðist sagan um Rómeó og Júlíu sem Shakespeare gerði ódauðlega í verki sínu. Svalir Júlíu eru enn á sínum stað og einnig hallir Scaligeri fjölskyldunnar og ýmsar glæsibyggingar og listaverk sem setja svip sinn á miðborgina. Fjöldi ferðamanna flykkist árlega til Verona til að njóta menningarverðmæta, lista og sögu eða til að rápa á milli glæsilegra verslana eða veitingahúsa og njóta hins besta í mat og drykk. Saga og listaverk á hverju horni Fyrir unnendur sögu, mennigar og lista er Verona gósenland. Hér eru örfá dæmi um hinar fjölmörgu minjar í Verona sem allir verða að skoða: - Arena hið 2000 ára rómverska hringleikahús við Piazza Bra. Óperusýningar undir berum himni á sumrin. Einstök upplifun.
- Piazza Erbe er einstaklega töfrandi torg í gamla bænum með fögrum byggingum og líflegum markaði. Hérna var Forum Romanum til forna.
- Piazza dei Signori torgið prýða glæsilegar byggingar, m.a. höll og íburðarmiklar grafir Scaligeri fjölskyldunnar. Á miðju torginu er stytta af hinum eina sanna miðalda ritsnillingi Dante. Notalegt kaffihús kennt við hann er við torgið.
- Castelvecchio kastali frá 14. öld. Nú er þar stórkostlegt listaverkasafn.
- Duomo dómkirkjan og St. Anastasia eru merkilegar kirkjur með sögu allt frá 12. og 13. öld.
- Casa di Giulietta húsið hennar Júlíu með svölunum frægu er við Via Cappello og Casa di Romeo, heimili Rómeós er skammt undan.
- Tomba di Giuletta gröf Júlíu, er ásamt Freskusafninu við Via Shakespeare.
- San Zeno Maggiore talin ein fegursta kirkja Norður - Ítalíu í rómönskum stíl. Sérlega merkileg er útihurðin með "biblíu fátæka mannsins", meistaraverk frá 11. og 12. öld.
- Madonna di Lourdes, pílagríma- og útsýnisstaður ofan við borgina.
Verslun Ítalir eru þekktir fyrir hönnun og tísku. Í Verona má finna öll helstu tískuhúsin og fjölda sérverslana af ýmsu tagi, en hafa skal í huga að Ítalir kjósa frekar að versla í sérverslunum en í stórum kringlum. - Via Mazzini er aðal verslunargatan í miðbænum og liggur út frá Piazza Bra.
- La Grande Mela er stór verslunarmiðstöð skammt vestan við borgina.
- Á hverjum degi er mikið líf í kringum ferðamannamarkaðinn á Piazza Erbe. Á laugardagsmorgnum er stór markaður við íþróttavöllinn og þriðja hvern laugardag er antíkmarkaður á torginu við San Zeno kirkjuna.
Matur og drykkur Fjöldi góðra veitingastaða er í Verona. Borgarbúar eru ekki eingöngu miklir matgæðingar, líkt og aðrir Ítalir, heldur eru þekkt vínræktarsvæði og miklil ávaxta- og grænmetisrækt ásamt kjötvinnslu í næsta nágrenni borgarinnar. Allt þetta stuðlar að frábærri matargerðarlist. Samgöngur Í Verona er lestarstöð og ágætar lestarsamgöngur í allar áttir. (www.fs-on-line.com). Frá kl. 6.10 - 23:00 fara rútur á 20 mín. fresti milli flugvallar og lestarstöðvarinnar Porta Nuova í Verona og leigubílar eru ávallt til taks. Verona er mjög vel staðsett til að ferðast frá um alla Ítalíu, eða til Austurríkis, Sviss, Frakklands, Slóveníu eða Króatíu. Nokkrar vegalengdir frá Verona til viðmiðunar: - Peschiera við Gardavatn 25 km
- Feneyjar 120 km
- Rimini 250 km
- Milano 165 km
- Bologna 140 km
- Róm 550 km
Heimild: Grein þessi er fengin af vef ferðaskrifstofunnar Heimsferða. | |
|
|