| |
|
| |
|
 |
LEITA
í VEFNUM |
 |
|
|
| |
| Sláðu inn það
efnisorð sem þú hefur áhuga
á að fræðast um í Rómarvefnum. |
|
|
 |
NÝTT
í VEFNUM |
 |
|
|
 |
|
08.05.09 Mussolini
og launsonurinn. Lesa
17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og
annað sem hægt er að gera í Róm.
Lesa
15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér
í beint samband við fornöldina. Lesa
04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er
mikil og hefur stórbatnað síðustu árin.
Lesa
02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að
heimsækja í Verónu. Lesa |
|
 |
FERÐAVEFIR |
 |
|
|
| |
|
 |
SKÁLDIÐ
SAGÐI ... |
 |
|
|
Ef
ég skyldi einhverntíma komast í vandræði
þá vildi ég vera meðal ítala.
- Halldór Laxness.
Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa
ort og skrifað
um Ítali og Ítalíu. |
|
|
 |
UMSAGNIR |
 |
|
|
 |
|
Við
erum búin að vísa mörgum í
hús til ykkar því af þeim vefjum
ítölskum sem við skoðum þá
held ég að ykkar geri betur en flestir að
vísa til vegar á Ítalíu og
ekki síst í Róm.
...hagnýtur
og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús
stiga út á upplýsingagildið
og skemmtilegheitin ...
Við
prentuðum út margar síður af þessum
snilldarvef og notuðum sem biblíu á
10 daga ferðalagi okkar um Róm.
Meira |
|
|
| |
|
|
| | | Ítalía í tölum | | | Ítalía er 301 þúsund km að flatarmáli og því þrefalt stærri en Ísland; snúi maður tölunni við fæst flatarmál Íslands. | | Ítalía er mjög fjalllend, með 35 prósent af landinu þakið fjallhryggjum sem eru hærri en 700 metrar. Innan Ítalíu eru tveir fjallgarðar: Alpafjöllin, sem einnig liggja innan landamæra nágrannalandanna Frakklands, Sviss, Austurríkis og Króatíu, og Appenínafjöllin, sem mynda hryggjarstykkið í skaganum sem liggur í austur frá meginlandinu og eyjunni Sikiley. Þriðji fjallgarðurinn er svo sá sem myndar ítölsku eyjuna Sardiníu í Miðjarðarhafi og þá frönsku Korsíku. Fólkið Ítalir eru rúmar 57 milljónir og fer fækkandi. Þjóðin er vel við aldur; rúm 18% þjóðarinnar eru 65 ára og eldri (þar af eru konur þriðjungi fleiri), en ekki nema rétt rúm 14% eru yngri en 14. Ef marka má fæðingar- og dánartölur fer þjóðinni fækkandi; aðeins 9 fæðast á móti hverjum 10 sem deyja. | Mannfjöldi | 57.5 milljónir | | Höfuðborg | Róm | | Tungumál | Ítalska | | Helstu trúarbrögð | Kristni | | Lífslíkur | 74 ár (karlar), 81 ár (konur) | | Mynt | 1 evra = 100 sent | | Helsti útflutningur | Vélbúnaður og farartæki, efnavörur, fatnaður, vín | | Meðalárstekjur | 1.600 þús ($20 þús.) | | Heimild: Vefur BBC, www.news.bbc.co.uk, 2002. | | SVONA ERU ÍTALIR | Fréttablaðið, 4.2.2005 Flytja seint að heiman Meira en fjórði hver Ítali á aldrinum 30 til 34 ára býr enn í foreldrahúsum. Mun fleiri karlmenn en konur búa enn í foreldrahúsum á þessum aldri, 18% kvenna eru enn í heimahúsum en 36,5% karlmanna búa enn á Hótel mömmu samkvæmt útreikningum hagstofunnar Eurispes. Níu af hverjum tíu Ítölum á aldrinum 20 til 24 ára búa enn í foreldrahúsum og hafði fjölgað um tíu prósentustig á áratug. | Landið Ítalía er 301 þúsund km að flatarmáli og því þrefallt stærri en Ísland; snúi maður tölunni við fæst flatarmál Íslands. Landið er skagi einn mikill sem teygir sig úr norðri frá Alpafjöllum alla leið suður og austur í Miðjarðarhafið og tvær stórar eyjar, auk fjölmargra smáeyja. Ítalía skiptist í 20 héruð (regione) sem hafa nokkra, en mismikla sjálfstjórn. Hvert hérað deilist í sýslur (provincia), sem hver á sinn höfuðstað. Höfuðstaður öflugustu sýslunnar er jafnframt höfuðstaður héraðsins, sbr. Róm fyrir Latíum, Flórens fyrir Toskaníu. Í hverri sýslu eru svo bæjarfélög (comune). Héruðin eru (talið niður frá vestri til austurs, norðri til suðurs): Ágústudalur, Fjallaland, Langbarðaland, Trentínó, Venetó, Friúlí, Ligúría, Emilía Rómanja, Toskanía, Marke, Úmbría, Latíum, Abrúzzi, Kampanía, Mólís, Basilíkata, Púlía, Kalabría, Sikiley, Sardinía. Ítalía á landamæri að fjórum löndum og tveimur sjálfstæðum ríkjum innanlands, þ.e. Frakklandi, Austurríki, Sviss og Slóveníu, auk þeirra tveggja ríkja sem eru innan landamæra Ítalíu, San Marínó og Vatíkaninu. Ítalía, land kálfanna? Uppruni nafnsins Ítalía er ekki talinn fullljós. Orðið hefur oftast verið tengt latneska nafnorðinu vitulus sem merkir kálfur og á sér til dæmis afkomanda í enska orðinu veal, kálfakjöt. Á oskísku, sem telst til ítalískra mála eins og latína, hét landið Viteliu sem talið er merkja land hinna mörgu kálfa. Einnig hefur verið bent á að landsheitið sé hugsanlega dregið af þjóðflokksheiti, Itali, ungu bolarnir. Úr svari Guðrúnar Kvaran við spurningu á Vísindavefnum, www.visindavefur.hi.is, um uppruna nafnsins Ítalía. | Skoðaðu hér kort af Ítalíu og héruðum landsins og hér annað sem sýnir hið landfræðilega. Tölur miðast við árin 2001 og 2002. Heimildir m.a. fengnar af www.eb.com og úr vef leyniþjónustu Bandaríkjanna, CIA www.cia.org/factbook | |
|
|