E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center
ÍS-ÍT: islandaoggi.com

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
Ritað um Róm
- Ítalía og Róm á íslenskum bókum


Upphaf Rómar
Rómaborg létu gera bræður tveir. Hét annar Romulus en annar Remus. Þeir voru tvíburar. Borgin var ger eftir hinu óarga dýri. Var dýrið ristið á jörðunni og þar upp af voru reistir borgarveggir. Er höfuðið dýrsins fyrir norðan ána. ... Er sá hlutur borgarinnar kallaður Roma en sá hlutur er fyrir utan ána er heitir Latransborg eða Latran eða Latera en það þýðist síður. En þá er borgin var alger þá urðu þeir ósáttir um það af hvors nafni er borgin skyldi nafn taka og því réð Romulus bróður sínum Remo fjörráð og drap hann. Var þá borgin kennd við Romulum og kölluð Rómaborg.

Úr Konungsbók

Upphaf Íslands
... var Adríánús [II.] páfi í Róma ok Jóhannes [VIII.] eftir hann, ..., en Hlöðver Hlöðvesson keisari fyrir norðan fjall, ...

Úr Landnámu.
Hér er átt við páfana Hadríanus og Jóhannes, eins og gefur að skilja, en keisarinn hinn frankneski er Loðvík II. sonur Lóthars I.

Allir vegir til Rómar
Á miðöldum liggja allar leiðir til Rómar. Þar er syndaaflausnin. Flosi fer til Rómar eftir Njálsbrennu, sömuleiðis Kári eftir að hann hefur afgreitt þá brennumenn. Fjörbaugsgarður er algeng refsing í sögunum, menn voru dæmdir til þriggja ára dvalar í útlöndum! Hver tæki ekki slíkri refsingu með þökkum nútildags?

Pétur Gunnarsson: Myndin af heiminum.

Um Ítali

Lykillinn að hjörtum Ítala
Ég lærði [í Taormínu á Sikiley] meðal annars um ítali þá lexíu sem ég hef oft sannprófað síðar á dögunum, að þeir standa manni næst ef eitthvað bjátar á – ólíkt ýmsum þjóðum sem er ljúft að segja ókunnugum manni til vegar og eru þægilegir í tali um veðrið, en leysast einhvernveginn í sundur og hafa afklæðst holdinu á samri stundu og gestinum ber einhver vandi að höndum. Ef ég skyldi einhverntíma komst i vandræði þá vildi ég vera meðal ítala. Þeir féfletta heimska utanbæarkaupmenn og sveitamenn úr Norðurevrópu ef þeir sjá að þeir gánga með rassvasana úttroðna af lausum bánkaseðlum; þykir það sjálfsagt mál. En sá maður útlendur sem stendur uppi allslaus og sjúkur ellegar hefur orðið fyrir óláni og slysi, hann á lykil að hjörtum ítala.

Halldór Laxness: Hverjir kostuðu Vefarann
í Skáldatima, 1963.

Ítalskan
... þetta tungumál sem er svo himneskt að það er ekki hægt annað en hálfskilja það [þótt maður ekkert kunni].

Steinunn Sigurðardóttir,
Morgunblaðið 8. ágúst 2005.



Tískan
Íslendingar kaupa sér fyrst húsnæði, síðan bíl, leggjast þá í ferðalög og byggja sér sumarhús. Síðan koma fötin þarna einhvers staðar langt, langt á eftir. Á Ítalíu er þessu öfugt farið, þeir njóta alls sem lífið hefur upp á að bjóða - í fínu fötunum.

Sævar Karl Ólason klæðskeri
í viðtali í Markaðnum, 7. sept. 2005.

Töfrar Ítalíu
Ekkert annað land heimsins getur státað af annarri eins fegurð og Ítalía né slíkum uppsprettum lista og lífskúnstar. Allt hjálpast að að gera Ítalíu að eftirsóknarverðu takmarki allra, sem þrá fegurð í ótal myndum náttúru, myndlistar, tónlistar, sviðslista og þess lífstíls, sem finnst meðal fágaðra Ítala. Þetta hefur heimurinn vitað lengi, og fyrir 2-3 öldum þótti sá ekki maður með mönnum meðal höfðingja og menntamanna, sem ekki höfðu bergt á þessum lindum, sem eru uppsprettur vestrænnar menningar allt til nútímans og flestum finnst sér skylt að vita deili á.

Úr formála að ferðatilboði Heimsklúbbs Ingólfs sumarið 2003,
höfundur trúlega forstjórinn sjálfur >> www.heimsklubbur.is.

Kaþólskan
... því sunnar sem maður kemur á norðurhvel, þeim mun minni fjarstæða finnst manni sánktipétur.

Arnas Arnæus við Snæfríði og biskupsfrú
í Hinu ljósa mani Halldórs Laxnesss

Helgir menn
Í Róm hvíldi líkami Péturs postula og frá þessu líki streymdi kraftbirtingarvald guðdómsins.

Pétur Gunnarsson: Myndin af heiminum.

Jarteinasögur
Ómissandi liður í því að koma á helgi dauðlegs manns er ritun sögu hans þar sem hann er sýndur í heppilegu ljósi og tíunduð krafaverkin sem hann hafði komið til leiðar - það er jarteinasaga dýrlingsins. Sem síðan var þýdd yfir á latínu og send réttum yfirvöldum í Róm til yfirlestrar og - vonandi - viðurkenningar.

Pétur Gunnarsson: Leiðin til Rómar.

Afgreiðslutími helgiumsókna: Allt að 786 ár
Umsóknin um helgi Þorláks var send páfa árið 1198. Svarið barst frá Stjórnardeild sakramenta og guðsdýrkunar í Páfagarði í janúar árið 1984, 786 árum síðar. Og svarið var jákvætt: Þorlákur helgi var lýstur verndardýrlingur Íslands og jarteinin sem honum voru eignuð viðurkennd, að vandlega íhuguðu máli.

En þá var lítið eftir af Þorláki annað en dánardægur hans - 23. desember - sem á Íslandi ber hans nafn og fyllist af skötuangan ár hvert, ásamt innkaupum til jólanna sem jaðra við kraftaverk.

Pétur Gunnarsson: Leiðin til Rómar.

Páfi

Skrýtilegur afdalakall
Sannfróðir autores telja að sá auðugi Jóhann frá Medici, öðru nafni Leó tíundi [1513 - 21], hafi verið fjölvís höfðíngi af Epicuri skóla og ekki einusinni hvarflað að honum að trúa á sálina þó hann seldi aflátsbréf fyrir felsi hennar. Mávera hann hafi gert það þessvegna. Stundum getur manni fundist Marteinn Lúter hafa verið skrýtilegur afdalakall, að fara að deila um frelsi sálarinnar við slíkan mann.

Arnas Arnæus í Hinu ljósa mani Halldórs Laxness.

Reykhóla-María með Jesúbarninu sínu.
Guðsmóðirin
[Í] ... pápisku gefast svo margar maríur sem borgir, og eru sumar kendar við blóm, aðrar við kletta, en aðrar við heilsubrunn, nokkrar við sæti meyarinnar, lögunina á Jesúbútnum eða litinn á heimpu hennar.

Arnas Arnæus í Hinu ljósa mani Halldórs Laxness.

Helgir dómar
Helgir dómar dýrlinga voru sambandgjafar við hinn ósýnilega heim. Það var ekki til sú kirkja eða klaustur að ætti ekki sinn helga dóm. Farið var með þá í skrúðgöngur á hátíðum, í fararbrjósti í styrjöldum. Þeir voru afl þeirra hluta sem gera þurfti og verslun með verndargripi var umtalsverð hagstærð í efnahag miðalda.

[...,] í Skálholti var varðveitt ein flísin úr krossi Krists, en það er talið að ef allar þær flísar kæmu saman í einn bjálka, væri hann ásamt Kínamúrnum, það mannvirki sem greina mætti með berum augum frá tunglinu.

Pétur Gunnarsson: Myndin af heiminum.

Helgi Rómar
Bjarni kom til Rómaborgar og vitjaði þar heilagra staða því að eigi er sá staður í Rómaborg að eigi sé roðinn með blóði heilagra manna.

Úr Konungsbók

Kirkjur Rómar
Svo hafa réttorðir menn sagt að engi sé svo fróður að víst sé að viti allar kirkjur í Rómaborg.

Nikulás Bergsson ábóti um 1159.

Suðurganga/pílagrímar
Þá lýsti hann fyrir þeim lágri konu roskinni, heldur rýrri, í hópi þýðverskra pílagríma í Róm, óauðkendum einstaklíngi í þeim grámannahópi sem virðist enn grárri en ella í samanburði við heimamenn borgarinnar, enda ekki reiknaðir meira en fuglasveimur af innbyggjurunum, og jafnvel betlarar Róms og laðrónar eru fyrirmannlegir hjá þeim. Og ein ... er ... þessi hversdagslega óásjálega kona ..., berfætt eins og öll Evrópa í upphafi elleftu aldar, ... En í littlu knýti ... geymdi hún þó nýa skó, sem hún hafði haft með sér lengi[.] ... til að gefa páfanum fyrir þær syndir sem hún hafði drýgt í landinu sem hún hafði feingið þá, Vínlandi góða.

Halldór Laxness: Hið ljósa man, 9. kafli.

Byggingarlist

Barokk
Á nútímamenn verkar barokkskraut í bókstaflegum skilníngi einsog óþrifnaður. Í þessum þúnglamalega íburði þar sem eingin lína er óbrotin, einginn flötur fær að vera í friði fyrir einhverju vængjuðu marmaradrasli, skjaldarmerkjum, vopnum og fánum úr steini, eða blómskrúði úr gyltum málmi, skynjum við aðeins hávaða og belgíng, sama máli gegnir um þessar endalausu súlur þeirra og súlnaraðir sem ýmist hánga utaná húsunum eða standa undir aungvu, við eigum bágt með að finna í þeim meira listrænt gildi en til dæmis pylsum.

Halldór Laxness: "List í Róm" í Reisubókarkorni.

Innst úr myrkri dýrs og hetjudauða
rís dimm og köld hin steinda ásýnd þín.
Og rauðleit sól úr rökkri kvöldsins skín
um rústir hrundra súlna og bekki auða.
- - -
Sjá, aðeins skuggi dauðans stendur vörð
á rústum hrunins heims og glottir kalt.

- Úr Colosseum eftir
Stein Steinarr, 1937.


Vatikanhæð
Utan borgarmúranna og hinum megin Tiberfljóts að útnorðan rís upp Mons Vaticanus, það er Spásagnarhæð, eitt hundrað feta yfir Miðjarðarhafi, talið frá sjávarfleti. Sumir halda, að nafnið sé sprottið af því, að þar hafi verið véfrétt Etrúska. Garðana á þessari hæð átti Agrippína, móðir Nerós, og þann veg komust þeir í hans eigu; þar höfðu þeir Kaligúla og Kládíus gera látið skeiðvelli til kappaksturs, og var Neró þar tíður gestur. Markið, sem ekið var frá, var súla frá Heliopolis, og stóð þar nærri sem nú er háaltarið í Péturskirkju. Súlan gnæfir upp úr miðjum þessum mikla skeiðfleti með svo hljóðandi áletrun: >>Kristur sigrar, Kristur ríkir, Kristur stýrir; Kristur ver sína þjóð fyrir öllum óheillum<<. Orðin fela í sér heila bylting og heila sögu.

W. Barry: Páfadómurinn í þýðingu Páls Eggerts
Ólasonar. Þjóðvinafélagið gaf út 1915.

 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 08.06.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband