E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center
ÍS-ÍT: islandaoggi.com

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
  ÍTALÍA > SAGA
Risorgimento
  Risorgimento er hugtak sem notað er sem samheiti
yfir baráttuna fyrir sameiningu Ítalíu sem átti sér að
mestu stað um miðja 19. öldina og fram að endan-
legri sameiningu árið 1871.

Eftir Jón Rúnar Sveinsson

GARIBALDI Giuseppe Garibaldi (1807-82), mynd tekin á Deutsche Fotothek í Dresden árið 1866.
Ítalía skiptist til 1860 í 8 sjálfstæð ríki og hafði hvert þeirra eigin mynt, mál og vog, tollareglur og tollsvæði. Í anda þjóðernisstefnu 19. aldar hafði stöðugt eflst baráttan fyrir sameinaðri Ítalíu; hugmyndafræðingur þessa svonefnda ítalska risorgimento var Genúamaðurinn Giuseppe Mazzini.

Sá sem leiddi hins vegar heri byltingarsinnaðra þjóðernissinna var Giuseppe Garibaldi, sem með frægu handabandi þann 25. október árið 1860 afhenti Victor Emmanuel II. konungsríkið Ítalíu. Fyrstu þrjú árin var Tórínó höfðuðborg hins nýja ríkis en 1864 var hún flutt til Flórens.

Mazzini og fylgjendur hans lögðu gífurlega áherslu á að Róm yrði höfuðborg sameinaðrar Ítalíu. Þar réði hins vegar enn ríkjum hinn erkiafturhaldssami páfi Píus IX. og naut verndar fransks hervald. Við fall keisaradæmis Napóleons III. árið 1870 lauk þessari hervernd og þá gripu hersveitir ítölsku þjóðstjórnarinnar tækifærið og lögðu Róm undir sig. Var hún lýst höfuðborg sameinaðrar Ítalíu árið 1870, en Píus páfi fékk til umráða Vatíkan-hverfið, sem í dag er viðurkennt er sem frjálst og fullvalda ríki og er með vissum hætti það síðasta sem eftir er af Páfaríkinu er áður náði yfir alla mið-Ítalíu.


Textinn er fenginn úr grein Jóns Rúnars um Róm hér í vefnum.

Myndin af Garibaldi fékkst á: www.search.eb.com
 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 08.06.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband