| |
|
| |
|
 |
LEITA
í VEFNUM |
 |
|
|
| |
| Sláðu inn það
efnisorð sem þú hefur áhuga
á að fræðast um í Rómarvefnum. |
|
|
 |
NÝTT
í VEFNUM |
 |
|
|
 |
|
08.05.09 Mussolini
og launsonurinn. Lesa
17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og
annað sem hægt er að gera í Róm.
Lesa
15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér
í beint samband við fornöldina. Lesa
04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er
mikil og hefur stórbatnað síðustu árin.
Lesa
02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að
heimsækja í Verónu. Lesa |
|
 |
FERÐAVEFIR |
 |
|
|
| |
|
 |
SKÁLDIÐ
SAGÐI ... |
 |
|
|
Ef
ég skyldi einhverntíma komast í vandræði
þá vildi ég vera meðal ítala.
- Halldór Laxness.
Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa
ort og skrifað
um Ítali og Ítalíu. |
|
|
 |
UMSAGNIR |
 |
|
|
 |
|
Við
erum búin að vísa mörgum í
hús til ykkar því af þeim vefjum
ítölskum sem við skoðum þá
held ég að ykkar geri betur en flestir að
vísa til vegar á Ítalíu og
ekki síst í Róm.
...hagnýtur
og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús
stiga út á upplýsingagildið
og skemmtilegheitin ...
Við
prentuðum út margar síður af þessum
snilldarvef og notuðum sem biblíu á
10 daga ferðalagi okkar um Róm.
Meira |
|
|
| |
|
|
| | | Mafían á nýrri öld | | | ítölsk mafíufélög eru sögð hafa nútímavæðst, tekið upp starfshætti venjulegra fyrirtækja í hagræðingu, valddreifingu, jafnvel í utankaupum eða útvistun. | | Eftir Kristin R. Ólafsson  | | SIKILEY Síðustu 10 árin hefur allt verið með ískyggilega kyrrum kjörum. | Verðlækkun hefur orðið hjá mafíunni á Sikiley. Þær fregnir berast þaðan að mafían hafi lækkað það verndargjald sem hún kúgar útúr mönnum en heimti það í staðinn af fleirum: því fleiri sem borgi, þeim mun minna borgi hver og einn. Og ítölsk mafíufélög eru sögð hafa nútímavæðst, tekið upp starfshætti venjulegra fyrirtækja í hagræðingu, valddreifingu, jafnvel í utankaupum eða útvistun. Nýir starfshættir Mafían sést ekki á Sikiley, en ku vera alstaðar og gætir þess að ekkert fari nú úrskeiðis. Síðustu ár hefur þessi mafíski friður ekki verið rofinn. Og mafían breytt um aðferðir. Er hætt að drepa óvini sína, hætt að myrða lögreglumenn, dómara, stjórnmálamenn, jafnvel eigin liðsmenn. Og nýir starfshættir sagðir komnir til sögunnar hjá öllum mafískum glæpafélögum Ítalíu, hvort sem það er La Mafia á Sikiley, ndrangheta í Kalabríu, La Camorra í Napólí eða La Sacra Corona Unita, Hin helga sameinaða kóróna, í Púli. Þau hafa fækkað ofbeldisverkum m.a. til að draga úr hörðum viðbrögðum löggjafa og lögreglu. Skipulagið hefur verið endurnýjað til að minnka hættuna á að iðrendur búi yfir miklum upplýsingum þótt þeir leystu frá skjóðunni, til að gera samtökin kvikari og ósýnilegri með því að hverfa frá stífu stigveldi til sveigjanleika og valddreifingar. Ítölsk glæpafélög hafa semsagt nútímavæðst að hætti fyrirtækja með því að dreifa valdi, tæknivæðast, og jafnvel með utankaupum eða útvistun, þ.e.a.s. þau fela öðrum sérhæfðum félögum sértæk verkefni, með það fyrir augum að notfæra sér nýja markaði og viðskipta- og fjármálafrelsi, t.a.m. í flóknum peningaþvættisaðgerðum. Afleiðingin er m.a. sú að mörkin milli lögmætra og ólögmætra viðskipta verða óskýrari. | Antonio Ingroia, dómari á Sikiley, segir baráttu sína við Mafíuna vera einsog að reyna að þurrausa sjóinn með hriplekri fötu. | Mafíuforingjar handteknir Á liðnum áratug höfðu ítölsk yfirvöld hendur í hári nokkurra helstu mafíuforgingjanna á Sikiley. 1993 var Toto (Salvatore) Riina, il capo di tutti capi, foringi allra foringja, handtekinn. Tveimur árum síðar kom röðin að Leoluca Bagarella, næstráðanda hans. Síðan var Giovanni Brusca gómaður 1996 en sérgrein hans var að búa til sprengjur og bókstaflega leysa menn upp í sýru. Og fleiri voru handsamaðir. Þessar handtökur urðu eftir að tveir dómarar voru drepnir í sprengjutilræðum í Palermo: þeir Paolo Borselino og Giovanni Falcone sem Brusca drap. Þeir urðu heimsfrægir fyrir harðfylgni sína gegn mafíunni og fyrir réttarhöldin miklu 1986 þar sem 360 mafíumenn voru dæmdir í fangelsi. Pagare tutti, pagare meno En síðustu 10 árin hefur máheita allt verið með ískyggilega kyrrum kjörum á yfirborðinu á Sikiley; mafían t.d. farið að beita mildari aðferðum við fjárkúgun sína, við innheimtu á hinum svonefnda pizzo, mánaðarlegri verndargreiðslu. Nýja stefnan er að forðast himinháar fjárkröfur en víkka í staðinn verndarnetið, jafnvel ánetja smákaupmanninn á horninu. Með þessu móti greiða allir, tekjurnar eru umþaðbil þær sömu og menn fúsari til að borga en ella. Pagare tutti, pagare meno: allir að borga, minna að borga ... Þannig er þessi stefna mafíunnar skilgreind á Sikiley. Glæpafyrirbæri? En Mafían græðir á ýmsu öðru, eiturlyfjum, vændi og t.d á útboðum opinberra framkvæmda. Þó mun hún hætt að reyna að hafa áhrif á hvaða fyrirtæki hreppir hnossið heldur kemur hún til sögunar seinna. Eftir að heiðarlegu fyrirtæki hefur verið úthlutað verki mætir hún og ráðleggur því hvar það eigi að kaupa sementið, leigja jarðýturnar og svo framvegis. Mafían vill samkomulag til þess að geta haft tögl og hagldir, vill að litið sé á sig sem eina af staðreyndum tilverunnar. Semsagt ekki einungis glæpasamtök heldur glæpafyrirbæri rótfast í sögu og samfélagi og því enn erfiðara að uppræta. Sá sem sagður er hafa lagt ráðin á um þetta á Sikiley er Bernardo Provenzano, fæddur í bænum Corleone 1933, en hann er talinn hafa tekið við stjórn mafíunnar eftir handtökurnar á fyrra áratug. Lögreglan hefur verið á eftir honum í 40 ár en aldrei náð honum, ekki einusinni á mynd, þótt hann hafi e.t.v. aldrei farið frá Sikiley. Á síðustu þekktu ljósmyndinnni er hann 26 ára. Með tölvutækni hafa menn giskað á hvernig hann líti út núna, kominn á áttræðisaldur. Oftar en einu sinni hefur hann smogið lögreglu úr höndum á síðustu stundu. Provenzano er sagður hafa þá stefnu að gera ekki árásir á ríkið og bera klæði á vopnin innan mafíunnar ef í odda slær, með samningaumleitan, átölum og föðurlegri gjafmildi. Höfundur er rithöfundur og þýðandi í Madríd, en auk þess fréttaritari RÚV og fararstjóri í hjáverkum. Pistill þessi var fyrst fluttur í útvarpi í júní 2004. Lestu meira um mafíuna ítölsku hér í Rómarvefnum, um Mafíuna á Sikiley og í Napólí og skoðaðu svo kort yfir helstu mafíuféög Ítalíu. | Í FRÉTTUM VAR ÞETTA HELST ... | Mbl.is 14.11.2002 Mafíuforingi snortinn af orðum páfa Mafíuforinginn Benedetto Marciante gaf sig fram við lögreglu í Róm á Ítalíu í dag eftir að hafa hlýtt á ræðu Jóhannesar Páls páfa á ítalska þinginu í dag. Marciante, sem var dæmdur til þrjátíu ára fangelsisvistar fyrir morð í fjarvist sinni, er sagður hafa tekið ákvörðun um að gefa sig fram er hann hlýddi á orð páfa um gildi fjölskyldunnar. "Hann tók skyndiákvörðun," segir Roberto Tricoli, lögfræðingur Marciantes. "Hann hringdi í mig úr fangelsinu til að segja mér fréttirnar. Á þrjátíu ára starfsferli mínum hef ég aldrei upplifað annað eins. Þetta er kraftaverk." Þá segir Tricoli Marciante hafa sagt sér að ummæli páfa hafi snert sig og vakið trúartilfinningar sínar. | | |
|
|