E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center
ÍS-ÍT: islandaoggi.com

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
  ÍTALÍA > STJÓRNMÁL
Mafían: Sikiley vs. Napólí
  Blóðugt stríð hefur geisað í höfuðlausum mafíuheiminum í Napólí og morð nánast daglegt brauð. Friður ríkir hinsvegar á yfirborðinu á Sikiley. Kristinn R. Ólafsson þekkir til í Palermo og segir hér frá.

Eftir Kristin R. Ólafsson

RIINA FYRIR RÉTTI Stórbófinn Salvatore Riina var tekinn höndum 1993 og situr enn inni.
Í Napólí ráða glæpasamtökin La Camorra ríkjum í undirheimum borgarinnar. Og til þessa hefur ítalska lögreglan talið bestu leiðina til að uppræta kamorruna að handtaka höfuðpaurana og hefur haft hendur í hári margra þeirra. En vopnin hafa snúist í höndum lögreglunnar. Foringjaleysið hefur nefnilega orðið til þess uppá síðkastið að allt logar í illdeilum innan samtakanna og flokkadrættir miklir svo að morð og árásir virðast engan enda ætla að taka. Um 80 hafa verið myrtir í mafíuárásum í Napólí í ár, 60 prósentum fleiri en í fyrra. Því þurfi að finna sem fyrst foringja allra foringja – capo di tutti capi – á borð við hinn aldna Bernardo Provenzano á Sikiley sem farið hefur huldu höfði í nær 40 ár og heldur öllu í ró og spekt á eynni.

Mafían ekki áberandi í Palermo
Og Mafían sést ekki á yfirborðinu í Palermo, höfuðstað Sikileyjar. Lífið gengur sinn vanagang. Sama óleysanlega umferðaröngþveitið. Sama bílamengunin. Sama mannþröngin á götunum, útimörkuðunum, torgunum. Heilu miðborgarhverfin að grotna niður. Kirkjur og hallir á hverju strái. Og borgin vaxin í allar áttir, einsog óstjórnlegur frumuofvöxtur hefði hlaupið í hana, í niðurníddu skipulagsleysi úthverfanna. En djásnin glitra líka. Og þar ber Hallarkapellu Roðgeirs annars Normannakonungs frá 12. öld án efa hæst.

Yfirborðsfrið þennan ku mega þakka Bernardo Provenzano sem sagður er hafa þá stefnu að gera ekki árásir á ríkið, bera klæði á vopnin innan mafíunnar, ná undirtökum í löglegri atvinnustarfsemi og takmarka morð við þau „alnauðsynlegustu“.
Gesti líður vel. Allt er með kyrrum kjörum. Maður gengur öruggur um götur, jafnt nótt sem nýtan dag. Og mannfólkið hlýtt í viðmóti og hjarta. Þennan yfirborðsfrið ku semsagt mega þakka Bernardo Provenzano. Hann er sagður hafa þá stefnu að gera ekki árásir á ríkið, bera klæði á vopnin innan mafíunnar ef í odda slær, ná undirtökum í löglegri atvinnustarfsemi og takmarka morð við þau „alnauðsynlegustu“ svo að atvinnulífsmafían geti látið fyrirtæki sín blómstra í skjóli leppeigenda með hreinan skjöld.

Allt sumsé með friði og spekt á Sikiley. Þó bárust reyndar þær fréttir í nóvemberbyrjun að Salvatore Cuffaro, forseti heimastjórnarinnar á eynni, úr röðum Kristilegra demókrata, sem aftur sitja í samsteypustjórn Berlusconis, yrði kallaður fyrir rétt í febrúar ásamt tólf öðrum, ásakaður fyrir að hygla mafíunni, í tengslum við rannsókn á upplýsingaleka úr mafíudeild lögreglunnar til samtakanna. Cuffaro hefur borið af sér allar sakir.

Löglega starfsemin ein um fimmtungur
Eurispes nefnist ítölsk rannsóknarstofnun á sviði stjórnmála, hagfræði og félagsmála. Í nýjustu skýrslu sinni til andmafíunefndar Ítalíuþings fullyrðir Eurispes að ólögleg starfsemi mafíufélaganna á Ítalíu, þ.e. eiturlyfjamang, fjárkúgun, vændi, okurlán og vopnasala ... velti 43 milljörðum evra á ári, eða sem svarar svimandi 4.090 milljörðum króna. Og í löglegri starfsemi hafi mafíurnar á sínum snærum sem jafngildi 20 prósentum innanlandsframleiðslu. Hreint ótrúlegar tölur.

Mafían og konurnar
Og daginn sem ég fór frá Palermo var mafían forsíðufrétt Il Giornale di Sicilia – Sikileyjartíðindum, helsta dagblaði eyjarinnar. Fyrirsögnin var: “Játning Carmelu: Maðurinn minn er mafíuforingi og morðingi.” Blaðið skýrir frá því að hin 32 ára Carmela Rosalia Iuculano sem handtekin var í maí hafi ákveðið að vinna með réttvísinni. “Ég hef framar öllu gert þetta fyrir börnin mín” segir Carmela sem á þrjú börn með eiginmanninum. Hún segir Pino Rizzo, mann sinn, hafa tekið þátt í að myrða körtubrautareiganda fyrir tveimur árum ásamt tveimur frændum sínum og tveimur öðrum mönnum. Þeir eru nú allir bakvið lás og slá.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem sikileysk mafíukona leysir frá skjóðunni. Ein hinna fyrstu, á áttunda áratugnum, var Antonietta Bagarella, þá trúlofuð stórbófanum Salvatore Riina sem tekinn var höndum 1993 og situr enn inni. Alveg frammá síðasta áratug töldu ítalskir dómarar eiginkonur mafíuforingja hafa undirtyllustöðu í valdastiga fjölskyldunnar. Árið 1990 var aðeins ein kona sökuð um mafíuglæpi á Sikiley, en 1995 var talan komin uppí 89. Konurnar eru sagðar taka við forystuhlutverki tímabundið ef eiginmaðurinn, foringinn, hefur verið handtekinn, er í felum eða látinn. Og konan sem uppalandi kenni börnum sínum gildi og venjur mafíunnar. Fyrsta mafíukonan komst í kast við lögin 1904. Síðan ekki söguna meir fyrr en Maria Filippa Messina og Giusy Vitale voru dæmdar fyrir mafíustarfsemi í Palermo í lok síðasta áratugar. Og ímynd konunnar innan mafíufélaganna hefur þróast í þremur stigum, segja sérfræðingar. Frammá níunda áratuginn voru þær ósýnilegar en þó ekki fjarverandi. Síðan kom tímabil iðrenda þar sem ýmsir leystu frá skjóðunni, þarámeðal konur. En frá 1996 og til dagsins í dag hafa þær aftur haldið sig í skugganum þótt menn hafi á tilfinningunni að áhrif þeirra í félögunum séu meiri en áður.


Höfundur er rithöfundur og þýðandi í Madríd, en auk þess fréttaritari RÚV og fararstjóri í hjáverkum. Pistill þessi var fyrst fluttur í útvarpi í nóv. 2004.

Lestu meira um mafíuna ítölsku hér í Rómarvefnum, um Mafíuna á nýrri öld og skoðaðu svo kort yfir helstu mafíuféög Ítalíu.

Í FRÉTTUM VAR ÞETTA HELST ...
7.11.2002
Mynd frá Mbl.isELDGOS Í ETNU
Stærsta og virkasta eldfjall álfunnar, Etna á norð-austurhluta Sikileyjar, gýs nú af fullum krafti og færist í aukana skv. síðstu fréttum. Etna bærir reglulega á sér, fimmta hvern mánuð segja fræðingarnir, en síðasta stóra gosið hennar var fyrir 10 árum. Engan hefur sakað og engar skemmdir hafa enn orðið á mannvirkjum, en öskufall töluvert. Stór hópur íslenskra ferðamenna var við rætur Etnu er hún byrjaði að ræskja sig á laugardagskvöldið sl. 26.10., og því grunar mann að eldfallið sikileyska sé að sýna sig fyrir gestum frá eldfjallaeyjunni köldu. - RV.

27.10.2002
Eldgos í Etnu
Gos hefur verið í eldfjallinu Etnu nærri Catania á Sikiley í dag. Etna er 3.310 metra há og lifnar við á um fimm mánaða fresti. Síðasta stóra gosið í Etnu var árið 1992. Jarðskjálftar hafa verið í fjallinu í morgun. Stærsti skjálftinn mældist 4,2 stig á Richter. Sérfræðingar segja að hvorki íbúum í nágrenninu né ferðamönnum sé hætta búin. - AP
 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 08.06.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband