E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center
ÍS-ÍT: islandaoggi.com

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
  ÍTALÍA > STJÓRNMÁL
Mafían
  Mafían á Ítalíu er svo samtvinnuð efnahags,-
menningar- og stjórnmálasögu landins að ekki
verður um þetta fjallað án þess að gera sér í
einhverju grein fyrir starfsemi hennar, uppruna
og sögu og stöðu í nútíma ítölsku samélagi.

Glæpasamtök þau á Ítalíu sem almennt eru kölluð mafían greinast í nokkur vel skilgreind landshluta- og héraðsfélög. Á Sikiley ræður ríkjum La Mafia en ‘ndrangheta í Kalabríu. La Camorra er í Napólí en í Púlíu La Sacra Corona Unita, Hin helga sameinaða kóróna.

Eiturlyfjamang Mafíunnar, fjárkúgun, vændi, okurlán og vopnasala veltir 43 milljörðum evra á ári, eða sem svarar um 4.000 milljörðum króna. Í löglegri starfsemi hefur Mafían á sínum snærum sem jafngildir 20 prósentum af innanlandsframleiðslu. (Heimildir: Eurispes 2004, ítölsk rannsóknarstofnun á sviði stjórnmála, hagfræði og félagsmála).

Pizzo nefnist mánaðarleg „verndargreiðsla“ sem kaupmenn og fyrirtæki hafa löngum þurft að greiða til mafíunnar á Sikiley, en hafa ella verra af. Nýja stefnan er að forðast himinháar fjárkröfur en víkka í staðinn verndarnetið, jafnvel ánetja smákaupmanninn á horninu. Með þessu móti greiða allir, tekjurnar eru u.þ.b. þær sömu og menn fúsari til að borga en ella. Pagare tutti, pagare meno: allir að borga, minna að borga. Þannig er þessi nýja stefna mafíunnar skilgreind á Sikiley.

Á 10. áratugi síðustu aldar höfðu ítölsk yfirvöld hendur í hári nokkurra helstu mafíuforgingjanna á Sikiley. 1993 var Toto (Salvatore) Riina, „il capo di tutti capi“, foringi allra foringja, handtekinn. Tveimur árum síðar kom röðin að Leoluca Bagarella, næstráðanda hans. Þessar handtökur urðu eftir að tveir dómarar voru drepnir í sprengjutilræðum í Palermo: þeir Paolo Borselino og Giovanni Falcone. Þeir urðu heimsfrægir fyrir harðfylgni sína gegn mafíunni og fyrir réttarhöldin miklu 1986 þar sem 360 mafíumenn voru dæmdir í fangelsi.

Í FRÉTTUM VAR ÞETTA HELST ...
BBC, 15.08.2003
Brenna skóga fyrir fé

- skógarbrunar af völdum málaliða mafíunnar, segja ítalskir embættismenn.

Miklir hitar eru nú á Ítalíu, eins og víðar um álfuna. Hiti og úrkomuleysi hefur leitt til þess að kviknað hefur í skrjáfþurrum gróðrinum og skógareldar breiðst út. Allt saman náttúrulegt, eða hvað. Nei, margir Ítalir eru á þeirri skoðun að þeir séu tendraðir af mönnum. Brennuvörgum þá, aftur nei, af málaliðum mafíunnar, ræktar- og fjárbænda, en í öðrum tilfellum af atvinnulausu fólki sem þannig fær vinnu við hreinsun og uppgræðslu.

Eco-mafían kallast þau glæpasamtök á Ítalíu sem talin eru hafa stjórn á stórum hluta fyrirtækja í sorpeyðingu. Skógareldar valda mikilli eyðileggingu sem fyrirtæki þeirra eru síðan fengin til að sjá um hreinsun á. Einnig er sagt að svona komist mafían í góða aðstöðu til auðveldrar og ódýrrar losunar á eitruðum úrgangi.

„Ef hægt er að verða sér úti um illa fengið fé er það alltaf mafían sem þar fer fremst,“ sagði Giancarlo Caselli, saksóknari í Tórínó, á umhverfisráðstefnu og var heitt í hamsi.

- RV tók saman og byggði á frétt af vef BBC, www.news.bbc.co.uk.

Lestu meira um mafíuna ítölsku hér í Rómarvefnum: Mafían á Sikiley og í Napólí og svo Mafían á nýrri öld.

 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 08.06.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband