E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center
ÍS-ÍT: islandaoggi.com

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
  ÍTALÍA > STJÓRNMÁL > JAFNRÉTTI
Ítalskt ástand
  Konur eiga ekki sérlega auðvelt uppdráttar í ítölsku viðskiptalífi. Líkt og á öðrum sviðum þjóðlífs þar í landi
eru karlar ráðandi, enda margir sem telja að konum
sé hollast að halda sig heima og sjá um börn og bú.

Eftir Eyrúnu Magnúsdóttur

Eyrún Magnúsdóttir sjónvarpskona og fyrrum blaðamaður á Morgunblaðinu skrifaði athyglisverða grein í viðskiptakálf blaðsins 22. júlí 2004. Þar gerir hún stöðu kvenna í stjórnum íslenskra stórfyrirtækja að umtalsefni og segir hana ekki hótinu skárri en hjá stöllum þeirra á Ítalíu, að hér á landi ríki n.k. „ítalskt ástand“. Er greinin öðrum þræði áhugaverð greining á stöðu ítalskra kvenna á vinnumarkaði og því hér birt.

Þegar undirrituð sat á skólabekk í ítölskum viðskiptaháskóla fyrir nokkrum árum útskýrði einn lærimeistarinn, afar kraftmikil kona, það fyrir nemendum hvers vegna konur næðu síður að klifra upp metorðastigann innan fyrirtækja í landinu.

Hún tjáði okkur að hjá fjölskyldureknum fyrirtækjum (sem eru fleiri á Ítalíu en víðast hvar annars staðar) væri það mikið kappsmál að halda eigninni innan fjölskyldunnar. Eigendur rótgróinna og gamaldags fjölskyldufyrirtækja teldu það öruggara að eftirláta sonum, sonarsonum, dóttursonum og frændum eftir að stýra fyrirtækjum og setjast í stjórnir þeirra af þeirri ástæðu að karlarnir halda nafni ættarinnar á lofti en konurnar ekki. Ástæðan fyrir því að konur eru ekki taldar geta haldið því á lofti er sú að þær taka oft upp ættarnöfn eiginmanna sinna. Setjist þær við stjórnvölinn er þannig hætta á að eftir nokkrar kynslóðir sé fyrirtækið komið í hendurnar á fólki með annað ættarnafn. Þess vegna sé það algengt að konur séu keyptar út úr fjölskyldufyrirtækjum.

Það er svo sannarlega leiðum að líkjast að vera á sama báti og Ítalía þegar kemur að stjórnarsetu kvenna. Fyrir það fyrsta er atvinnuþátttaka kvenna á Ítalíu með því lægsta sem gerist í Evrópu.
Á síðustu árum og áratugum hefur margt verið að breytast í ítölsku viðskiptalífi. Konur hafa látið meira að sér kveða, stofnað fyrirtæki og brotist til metorða hjá stórfyrirtækjum. Engu að síður er Ítalía langt á eftir öðrum Evrópuþjóðum þegar fjöldi kvenna í stjórnum stórfyrirtækja er skoðaður. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar sem European Professional Women's Network, EPWN, gerði og birtar voru í júní 2004. Í samantekt á þessum niðurstöðum er Ítalía sérstaklega tekin fyrir sem það Evrópuland sem standi verst að vígi þegar kemur að stjórnarsetu kvenna. Hlutfall kvenna í stjórnum 15 stærstu fyrirtækja landsins er 2,2%, sem í niðurstöðunum er sagt vera „það lægsta í Evrópu.“ Einungis tvö af 15 stærstu fyrirtækjunum hafa a.m.k. eina konu í stjórn.

Könnunin tekur til ríflega 200 stærstu fyrirtækja Evrópu. Samkvæmt niðurstöðunum sitja konur í 8% stjórnarsæta hjá þessum fyrirtækjum. Noregur og Svíþjóð koma sem fyrr best út en Ítalía, Belgía, Spánn og Danmörk reka lestina. Þessi fjögur lönd eru þau einu sem hafa undir 5% stjórnarsæta skipuð konum. Í þennan skussaflokk mætti bæta Íslandi. Eftir því sem fram kemur í þessari könnun er hlutfallið á Ítalíu það lægsta í Evrópu. Hefðu íslensk fyrirtæki hins vegar verið tekin með hefðu Ítalir sannarlega ekki þurft að vera einmana í neðsta sætinu.

Það er svo sannarlega leiðum að líkjast að vera á sama báti og Ítalía þegar kemur að stjórnarsetu kvenna. Fyrir það fyrsta er atvinnuþátttaka kvenna á Ítalíu í kringum 40%, eða með því lægsta sem gerist í Evrópu. Á því sviði er Ítalía á sama stigi og Grikkland og Spánn en í þessum þremur löndum er atvinnuþátttaka karla í kringum 70% en kvenna um 40%.
Óvíða er atvinnuþátttaka, jafnt karla og kvenna, hins vegar meiri en á Íslandi. Atvinnuþátttaka karla síðustu ár hefur verið um og yfir 80% og atvinnuþátttaka kvenna í kringum 45%.

Móðir í fullri vinnu hljómar nánast eins og þversögn í eyru Ítala, einkanlegra þeirra sem eldri eru.
Nú er alls ekki ætlunin að fara niðrandi orðum um ítalskt viðskiptalíf eða Ítali almennt, enda vænsta fólk upp til hópa. Það breytir ekki því að almennt séð hafa kraftar kvenna ekki verið nýttir utan heimila á Ítalíu í sama mæli og í öðrum Evrópulöndum. Smám saman er þetta að breytast, ítalskar konur eru farnar að mennta sig meira og hafa á allra síðustu árum sótt verulega í sig veðrið í frumkvöðlastarfsemi. Eftir sem áður er ekki hlaupið að því fyrir konur á Ítalíu að ná framgangi innan fyrirtækja, hvað þá setjast í stjórnir þótt þær hafi alla burði til.

Eitt af því sem verður til þess að kraftar kvenna nýtast síður á Ítalíu er leikskólaskortur. Margir líta svo á að konur geti einfaldlega gjört svo vel og hætt að vinna þegar þær eignast börn. Móðir í fullri vinnu hljómar nánast eins og þversögn í eyru Ítala, einkanlegra þeirra sem eldri eru. Þótt þessi fornu viðhorf heyrist við og við hér á landi þá er ekki hægt að líkja aðstæðum kvenna á íslenskum vinnumarkaði við þær sem ríkja á þeim ítalska. Á Íslandi er gert ráð fyrir því að bæði karlar og konur vinni utan heimilis og skapaðar aðstæður til að svo megi vera. Einmitt þess vegna er það svo skrýtið að fyrirtæki nýti ekki krafta þeirra í auknum mæli.

Það hlýtur alltaf að borga sig að hafa úr stærri hópi en minni að moða þegar valið er í stjórnir, enda gegna þær sífellt stærra hlutverki við eftirlit með starfsemi fyrirtækja.


Greinin er hér örlítið stytt og birt með leyfi höfundar.

 

 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 08.06.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband