E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center
ÍS-ÍT: islandaoggi.com

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
  ÍTALÍA > BORGIR & BÆIR
Kaprí
  Kaprí hefur með réttu stundum verið kölluð sjávar-
perlan og það dylst engum sem þangað ferðast .

Eftir Magnfríði Sigurðardóttur.

Faraglioni klettar úti fyrir Kaprí.
>STÆKKA<
Eyjan Kaprí í Napólíflóa á Suður-Ítalíu er landfræðilega séð framlenging á Sorrentó-
skaganum og lokar flóann af í suðri eins og Ischiaeyja gerir í norðri
.

Kaprí er með fallegri stöðum sem gefur að líta á þessum hluta Ítalíu. Eyjan er lítil, aðeins tæplega 10 fkm að stærð og er nokkurn veginn ferhyrnd að lögun. Það fyrsta sem hrífur mann eru brattir hamraveggirnir sem rísa þverhníptir úr sjónum, mikill gróður sem þekur eyjuna og hvít húsin þar inn á milli.

Náttúruperla
Bærinn Kaprí er miðpunktur eyjarinnar. Vestur af honum er Anakaprí sem stendur á hárri sléttu við rætur Solaro fjalls. Megnið af íbúum eyjarinnar búa í þessum tveimur bæjum. Sjómennirnir og fjölskyldur þeirra búa þó í Marina Grande, Stóru höfn, enda stærsta höfnin á Kaprí. Marina Piccola, Litla höfn, sem er á suðurströnd Kaprí er einnig vinsæll lítill bær sem er mjög fallega staðsettur.

Eins og gefur að skilja er ferðamannaiðnaðurinn aðalatvinnugrein eyjaskeggja, en þó nokkur hluti eyjaskeggja fæst við fiskveiðar ásamt ræktun ólíva og vínberja. Gróðurfar og dýralíf, þó sérstaklega sjávardýra, á Kaprí er sérlega áhugavert, flóran er líka einstaklega fjölskrúðug og skapar marga náttúruperluna. Hér verða nefndir stuttlega örfáir af þeim stöðum sem gert hafa eyjuna fræga, en það verður frekar fátækleg upptalning þar sem sjón er sögu ríkari.

Blái hellirinn
Blái hellirinn á Kaprí, Grotta azurro. Hellismuninn þröngur, en bláa birtan kemur frá sjónum.
>STÆKKA<
Kaprí er skartgripaskrín fullt af skarti og þetta eru fyrst og fremst náttúruperlur. Blái hellirinn, Grotta azurra, er eins og lítil sjávarkapella, enda tileinkuð sjávarguðunum á tímum Rómaveldis. Hellismuninn er þröngur, aðeins 2 m á breidd og 1 m á hæð, en náttúruleg neðansjávarlýsing skaffar birtuna bláu sem skýrir nafn hellisins. Faraglioni heita fallega mótaðir klettar sem rísa úr sjónum úti fyrir eynni og eru eitt helsta kennileiti Kaprí.

Fjöldi annarra hella eru dreifðir eftir strandlengjunni. Þverhnípt björgin í sjó fram eru einnig hluti fegurðar eyjarinnar og ekki má gleyma frábæru útsýninu yfir kristaltæran sjóinn. Mikið er af fallegum görðum á Kaprí sem oftar en ekki umlykja fallegar byggingar allt frá tímum hins forna Rómaveldis. Dæmi um merki Rómaveldis eru Villa Jovis og Villa Damecuta.

San Michele
Útsýni yfir Kapríeyju frá villu sænska læknisins Axels Munthe, San Michele.
>STÆKKA<
Áhugavert er að skoða hina fallegu villu San Michele sem byggð var frammi á klettanös í byrjun síðustu aldar. Húsið var byggt á rústum rómverskrar byggingar sem enn er hægt að sjá merki um inni í húsinu. Sá sem lét byggja Villa San Michele var Axel Munthe, sænskur rithöfundur og læknir. Hann bjó í Villa San Michele í um 40 ár. Hann skrifaði Bókina um San Michele sem þýdd hefur verið á yfir hundrað tungumál. Við andlát sitt gaf hann sænska ríkinu húsið með öllu inbúi. Í dag er Villa San Michele safn og bústaður fyrir listamenn. Á móti þessu merka húsi stendur kirkja heilags Mikjáls, San Michele.

Kaprí hefur með réttu stundum verið kölluð sjávarperlan og dylst það engum sem ferðast þangað enda er það fyllilega þess virði.


Höfundur rekur húsa- og íbúðamiðlunina
Vacanza og bjó um nokkurra
ára skeið á Ítalíu.


 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 08.06.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband