E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center
ÍS-ÍT: islandaoggi.com

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
Ítalska
  Ítalska er móðurmál um 66 milljóna manna
og opinbert tungumál á Ítalíu, í San Marínó,
Sviss og Vatíkaninu (ásamt latínu).

Ítalska
Ítalska er móðurmál um 66 milljóna manna og er opinbert tungumál á Ítalíu, í San Marínó, Sviss og Vatíkaninu (ásamt latínu). Ítalska er óopinbert tungumál í Argentínu, Ástralíu, Bandaríkjunum, Brasilíu, Kanada, Liechtenstein, Lúxemborg og Mónakó.

Alþýðumálið er mállýska af ríkismálinu, og því ómenntaðri sem mælandinn er, því lengra er hann frá ríkismálinu. Fjölmargt ítölskumælandi fólk kann þess vegna ekki ríkismálið og á það aðallega við fólk í löndum utan Evrópu.
Algengustu mállýskurnar eru:
Norður-ítalska eða Gallo-ítalska
Venetanska (á norðaustur ítalíu)
Tuscanska (þar með talin korsikanska)
Ítalska hljóðfræðikerfið líkist bæði því latneska og því spænska. Málfræðin er einnig svipuð og í öðrum nútíma rómönskum málum, t.d notkun ákveðins og óákveðins greinis, tvö kyn (kk og kvk) og að lýsingarorð beygjast í samræmi við nafnorðin.

Aðal munurinn á ítölsku og frönsku eða spænsku er sá að ítalska bætir ekki við sig –s eða –es til að mynda fleirtölu nafnorða heldur bætist –e við flest kvenkyns orð og –i við karlkyns orð (og sum kvenkyns orð).

Sardiníska
Sardiníska er móðurmál um 1,5 milljóna manna og er töluð á Sardiníu sem er eyja undir yfirráðum Ítala.

Sardiníska líkist latínu mest allra rómverskra mála en nánast ekkert bókmenntalegt lesefni er til á henni. Ítalska er opinbert tungumál eyjarinnar og það er ekkert ríkismál nema ,,Sardo illustre", en það er ritmál sem byggist á logudoriönsku og er aðallega notað í þjóðleg ljóð og kvæði.

Flest ítölskumælandi fólk skilur ekki sardinísku og líkist hljómfall sardinískunnar frekar spænsku en ítölsku.
Aðal mállýskurnar eru:
Logudorianska (töluð í mið-Sardiníu)
Campidanianska (töluð í suður-Sardiníu)
Sassarianska (töluð í norðvestur-Sardiníu)
Gallurianska (töluð í norðaustur-Sardiníu)
Sassarianska og gallurianska hafa þó stundum frekar verið sagðar tilheyra korsikönsku en sardinísku.

Þessi umfjöllun um ítalska tungu er fengin af
www.ma.is/nem/belgur/Romonsk/rÛmˆnsk3.htm
(16.01.03).


 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 08.06.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband