E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center
ÍS-ÍT: islandaoggi.com

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
  ÍTALÍA > STJÓRNMÁL
Impregilo
  Impregilo er stærsta verktakafyrirtæki Ítalíu og meðal alstærstu slíkra fyrirtækja í Evrópu í tekjum talið. Hjá Impregilo og dótturfyrirtækjum starfa ríflega 20 þúsund manns, en móðurfyrirtækið starfar í 50 löndum og á um 600 dótturfyrirtæki.

Impregilo SpA-verktakinn, sem bauð lægst í gerð Kárahnjúkavirkjunar, byggir á aldagamalli reynslu í mannvirkjagerð og hefur komið að byggingu um 160 vatnsaflsvirkjana víða um heim. Hjá Impregilo og dótturfyrirtækjum starfa ríflega 20 þúsund manns og fyrirtækið veltir um 175 milljörðum króna á ári. Móðurfyrirtækið starfar í 50 löndum og á um 600 dótturfyrirtæki. Eigendur eru fjölmargir, m.a. þekkt fyrirtæki eins og Fiat og Banco di Roma, en um 75% hlutabréfanna eru á almennum markaði á Ítalíu. Impregilo er stærsta verktakafyrirtæki Ítalíu og taldist fyrir tveimur árum meðal 20 stærstu slíkra fyrirtækja í Evrópu í tekjum talið.

Verktaki sem byggir á aldargamalli reynslu
Forverar Impregilo eru verktakafyrirtækin Lodigiani og Girola, sem sameinuðust árið 1906, og Impresit, sem stofnað var 1929, þar sem meðal stærstu eigenda voru Fiat-verksmiðjurnar. Árið 1960 sameinuðust þessi fyrirtæki í Impregilo þar sem nafnið samanstóð af Impre- úr Impresit, -gi frá Girola og -lo frá Lodigiani. Önnur sameining varð svo árið 1990 þegar Impregilo og Cogefar-Impresit sameinuðust.

Byggðu Mont Blanc göngin
Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í nágrenni Mílanó. Það er talið meðal hinna reyndustu á sínu sviði í Evrópu og hefur komið að byggingu virkjana í flestum heimsálfum, jafnt í Asíu, Afríku og S-Ameríku sem Evrópu. Impregilo hefur í auknum mæli tekið að sér verkefni utan Ítalíu og þannig var hlutfall verkefna utan heimalandsins um 60% árið 1998. Meðal verkefna fyrirtækisins á seinni árum má nefna Mont Blanc-jarðgöngin og stíflugerð, bæði eitt og sér eða með öðrum verktökum, í löndum eins og Argentínu, Ghana, Kína, Indlandi, Pakistan, Nígeríu, Hondúras, Venesúela og Íran.

Í FRÉTTUM VAR ÞETTA HELST ...
Mbl.is 7.3.2003
Þúsund manns í vinnu á vegum Impregilo
Um 1.000 manns munu starfa við gerð frárennslisganga og stíflu við Kárahnjúkavirkjun. Þetta kom fram í máli Robertos Velos, fulltrúa ítalska verktakafyrirtækisins Impregilo, á málþingi um viðskipti Íslands og Ítalíu sem Ítalsk-íslenska verslunarráðið stóð fyrir í gær.

Velo sagði að starfsmennirnir yrðu frá nokkrum ríkjum. Auk íslensks vinnuafls kæmu hingað starfsmenn frá Impregilo og starfsmenn á vegum undirverktakafyrirtækja. Hann sagði von á 40-80 Ítölum hingað til lands vegna verkefnisins, bæði starfsmönnum Impregilo og fjölskyldum þeirra. Velo sagði að framkvæmdir myndu hefjast um leið og búið væri að ganga frá samningsgerð við Landsvirkjun en stefnt er að undirritun hinn 17. þessa mánaðar. Hann sagði áætlað að stíflugerð yrði lokið í desember 2006 og gerð frárennslisganga í janúar 2007.

Hann lagði áherslu á að fyrirtækið myndi verja hluta fjármagnsins sem fer til virkjanaframkvæmda í undirverktakaþjónustu, efniskaup og kaup á þjónustu frá innlendum fyrirtækjum. Hann sagði að Impregilo hefði nú þegar reitt fram verklokatryggingu sem útgefin er af Landsbanka Íslands og verður afhent Landsvirkjun.

Í FRÉTTUM VAR ÞETTA HELST ...
Mbl.is 25.11.2004
Húsleit gerð í höfuðstöðvum Impregilo
Efnahagsbrotadeild ítölsku lögreglunnar gerði húsleit í höfuðstöðvum ítalska verktakafyrirtækisins Impregilo í Mílanó og í Róm á þriðjudag. Fimm stjórnendur fyrirtækisins, þ.m.t. stjórnarformaðurinn Paolo Savona og forstjórinn Piergiorgio Romiti, undirgangast nú rannsókn vegna meintra bókhaldssvika. Er þeim gefið að sök að hafa falsað bókaldsgögn félagsins og gefið út fölsuð uppgjör. Lokað var fyrir viðskipti með hlutabréf í félaginu í fyrradag í kjölfar þessara frétta. Opið var fyrir viðskipti með hlutabréf í Impregilo í gær og lækkaði verð þeirra um 38% innan dagsins.

Impregilo hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem ásökununum er mótmælt. Það telji að bókhaldsaðferðir og mat á afkomu félagsins hafi verið réttar og vísi á bug ásökunum um fölsun útgefinna reikninga.

Í annarri yfirlýsingu frá Impregilo segir að lögreglurannsókn skrifstofu saksóknarans í Monza beinist að lánum sem fyrirtækið veitti dótturfélagi sínu Imprepar, sem nú sé í gjaldþrotameðferð. Bókfært verð lánanna hafi verið 228,2 milljónir evra um síðastliðin áramót, eða jafnvirði tæplega 20 milljarða íslenskra króna. Impregilo segir að ekkert bendi til þess að skuldin verði ekki að fullu endurheimt.


Heimild: Mbl.is, 7.12.2002.
 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 08.06.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband