Ef
ég skyldi einhverntíma komast í vandræði
þá vildi ég vera meðal ítala.
- Halldór Laxness.
Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa
ort og skrifað
um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Við
erum búin að vísa mörgum í
hús til ykkar því af þeim vefjum
ítölskum sem við skoðum þá
held ég að ykkar geri betur en flestir að
vísa til vegar á Ítalíu og
ekki síst í Róm.
...hagnýtur
og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús
stiga út á upplýsingagildið
og skemmtilegheitin ...
Við
prentuðum út margar síður af þessum
snilldarvef og notuðum sem biblíu á
10 daga ferðalagi okkar um Róm.
Hér eru fréttir frá Ítalíu sem birst hafa í íslenskum netmiðlum. Þótt hér sé síður en svo tæmandi safn frétta frá Ítalíu ættu fréttirnar þó að svala einhverjum og jafnvel að gefa nokkra mynd af því hvers konar fréttir eru sagðar af Ítölum, páfanum í Róm og hans fólki.
KEMST EKKI LENGRA Nýr páfi, Benedikt XVI., tekur við fiskimannshringnum sem á er mynd af Pétri postula að kasta út neti. Páfi er embætti hins æðsta sálnaveiðara og ekki verður lengra komist innan kaþólsku kirkjunnar, nema deyja sínum Drottni og komast í tölu dýrlinga eins og fyrrverandi páfi virðist vera á hraðleið með. Mynd: AP
24.4.2005 / Mbl.is Benedikt XVI. sest formlega á páfastól við útimessu á Péturstorginu Benedikt XVI. páfi var formlega settur í embætti við útimessu á Péturstorginu í Róm í morgun að viðstaddri um hálfri milljón pílagríma, að því er talið er. Tók páfi við táknum páfavaldsins, fiskimannshring, sem fyrrum var notaður til að innsigla postulabréf, og sjali úr ull af lambi.
Í ávarpi bauð páfi m.a. gyðinga velkomna og sagði þá og kristna eiga sameiginlega andlega arfleifð sem á sér rætur í órjúfanlegum loforðum Guðs. Þá sagði páfi ennfremur að hugur sinn dveldi hjá öllum konum og körlum, bæði trúuðum og vantrúuðum.
Benedikt sagði að fyrirrennari sinn, Jóhannes Páll II., væri nú kominn heim meðal dýrlinganna í himnaríki, en gekk þó ekki svo langt að segja að Jóhannes Páll skyldi tekinn í dýrlingatölu.
Margir kaþólikkar, þ. á m. prestar, hafa hvatt til þess að Jóhannes verði tekinn fljótt í dýrlingatölu. Embættismenn í Vatíkaninu hafa sagt að það sé algerlega undir páfa komið hvort hraðað verði hefðbundnu ferli, sem jafnan tekur fimm ár, til að gera Jóhannes að dýrlingi.
Verið óhræddir Páfi endurtók í innsetningarræðu sinni í morgun orð sem Jóhannes Páll 2. mælti í sinni innsetningarræðu 1978: Verið óhræddir. Sagði Benedikt að með því að treysta Guði förum við einskis á mis, hreint einskis, af því sem veitir frelsi og fegurð í lífinu og gerir það stórkostlegt.
Páfi hvatti ennfremur til einingar kristinna manna og sagði að það ætti að vera ein hjörð, einn fjárhirðir. Fór hann fram á að sín, máttlítils þjóns Guðs, yrði minnst í bænum og veittur styrkur til að takast á við gífurlegt verkefni sem svo sannarlega er ofvaxið öllum mannlegum mætti.
Að innsetningarræðunni lokinni var páfa ekið í opnum bíl um Péturstorgið þar sem um hálf milljón pílagríma, sem margir komu frá heimalandi páfa, Þýskalandi, fagnaði honum.
BARA HRESSIR! Berlusconi og Rocco Buttiglione, menningarmálaráðherra í nýju stjórninni og sá hinn sami og Evrópa hafnaði sem stjórnarliða í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Mynd: AP
23.4.2005 / Mbl.is Sextugasta ríkisstjórnin á Ítalíu á jafn mörgum árum Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, sór nú síðdegis embættiseið sem forsætisráðherra í 60. ríkisstjórninni sem mynduð er í landinu á jafn mörgum árum. Skömmu áður hafði hann birt ráðherralista nýju stjórnarinnar, og er hann næsta líkur listanum yfir ráðherrana sem sátu í síðustu stjórn Berlusconis, sem hann baðst lausnar fyrir fyrr í vikunni.
Berlusconi fékk stjórnarmyndunar- umboð í gær, tveim dögum eftir að hann baðst lausnar í kjölfar valdabaráttu milli stjórnarflokkanna. Fréttaskýrendur segja að með myndun nýrrar stjórnar vonist Berlusconi til að auka vinsældir sínar meðal kjósenda og halda völdum fram á mitt næsta ár, þegar kosningar eiga að fara fram.
20.4.2005 / Mbl.is Berlusconi segir af sér Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, afhenti forseta landsins afsagnarbeiðni sína í dag, að sögn ítalskra fjölmiðla. Berlusconi segist ætla án tafar að mynda nýja ríkisstjórn sömu flokka, og hafa verið við stjórnvölinn undanfarin ár, og reyna þannig að styrkja grundvöll stjórnarinnar.
Engin ríkisstjórn hefur verið jafn lengi við völd frá síðari heimsstyrjöld og Berlusconis, sem nú er að fara frá. Samstarfsflokkarnir hafa þrýst á Berlusconi að segja af sér og mynda nýja ríkisstjórn á grundvelli nýs stjórnarsáttmála í kjölfar afhroðs, sem flokkarnir biðu í sveitarstjórnarkosningum fyrir skömmu.
Ef forsætisráðherra segir af sér er það undir forseta landsins komið hvort einhver fær stjórnarmyndunarumboð eða hvort boðað verður til nýrra kosninga. Líklegt er þó talið að Carlo Azeglio Ciampi, forseti Ítalíu, feli Berlusconi að reyna að mynda nýja ríkisstjórn.
18.4.2005 / Mbl.is Berlusconi nær samkomulagi um myndun nýrrar ríkisstjórnar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, hefur náð samkomulagi við ráðherra Kristilega demókrataflokksins, um að endurnýja ríkisstjórnina og komast þannig hjá því að boða til þingkosninga áður en kjörtímabilinu líkur. Ráðherrar Kristilega demókrataflokksins sögðu sig úr ríkisstjórninni um helgina og kröfðust þess að mynduð yrði ný stjórn á grundvelli nýs stjórnarsáttmála.
Rocco Buttiglione, einn af ráðherrum UDC, sagði við blaðamenn, að verið væri að ganga frá nýrri ríkisstjórn. Þið munuð fá góðu fréttirnar innan skamms," bætti hann við, en Berlusconi og Marco Follini, leiðtogi UDC, sátu þá enn á fundi.
UDC hafði krafist þess að Berlusconi segði af sér embætti og myndaði nýja ríkisstjórn á grundvelli nýs stjórnarsáttmála en stjórnarflokkarnir töpuðu allir miklu fylgi í sveitarstjórnarkosningum fyrr í þessu máli. Búist er við að Berlusconi gangi á fund Carlos Azeglio Ciampis, forseta Ítalíu, og segi formlega af sér embætti forsætisráðherra en Ciampi feli honum síðan að mynda nýja ríkisstjórn.
5.04.2005 / Ruv.is Margir vilja kveðja páfa Pílagrímar og ferðamenn bíða í allt að átta klukkustundir við Péturskirkjuna í Róm til að kveðja páfa. Búist er við 2 miljónum manna til borgarinnar næstu daga.
Ætlunin var að loka Péturskirkjunni í þrjár klukkustundir yfir blánóttina til hreingerninga en í nótt var hún aðeins lokuð í hálfa aðra klukkustund. Öll gistihús í Róm og nágrenni eru full og borgarstjórn íhugar að reisa tjaldbúðir á íþróttavöllum.
5.04.2005 / Ruv.is Gríðarleg öryggisgæsla við útför páfa Útför Jóhannesar Páls II páfa í Róm á föstudag gæti orðið algjör öryggismartröð. Búist er við því að 2 mlljónir katólskra manna leggi leið sína til borgarinnar eilífu til að kveðja leiðtoga sinn hinstu kveðju.
Einnig hafa um 200 þjóðhöfðingjar, leiðtogar, kirkjuhöfðingjar og önnur stórmenni boðað komu sína í útförina. Þar á meðal eru forsetahjónin bandarísku og hugsanlega tveir fyrrverandi Bandaríkjaforsetar, George Bush eldri og Bill Clinton.
Sjónvarpað verður frá útförinni um allan heim. Því kynni hún að freista hryðjuverkamanna til illvirkja. Að minnsta kosti 10.000 öryggisverðir og lögreglumenn verða á Péturstorginu, og í grennd við það, á föstudag. Leyniskyttur verða á þökum húsa, þyrlur hnita hringa í lofti og leynilögreglumenn, sumir í dökkum sparifötum, aðrir dulbúnir sem munkar og prelátar, verða um allt.
4.04.2005 / Ruv.is Berlusconi bíður ósigur Flest bendir til að stjórnarflokkarnir á Ítalíu bíði ósigur í héraðsstjórnarkosningunum þar í gær og í dag.
Kosningar eru í 13 af 20 héruðum landsins og samkvæmt útgönguspám sjónvarpstöðvarinnar RAI missa stjórnarflokkarnir meirihluta í 6 af 8, en bandalag stjórnarandstöðu undir forystu Romanos Prodis mun ráða í 11 í stað 5 eftir kosningar. Búist er við að úrslit liggi fyrir síðar í kvöld.
4.4.2005 / Mb.is Jarðarför páfa fer fram á föstudagsmorgun Jóhannes Páll páfi verður jarðsunginn á föstudagsmorgun, að því er tilkynnt var í dag. Verður útförin klukkan tíu að staðartíma í Vatíkaninu, eða klukkan átta að íslenskum tíma.
Pílagrímar hafa safnast saman við Péturskirkjuna í Róm þar sem lík páfa mun standa uppi. Verður almenningi leyft að kveðja páfa síðdegis í dag, en í gær gengu starfsmenn Páfagarðs og ítalskir fyrirmenn framhjá líki páfa og vottuðu honum virðingu sína. Þeirra á meðal var Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu.
Í dag verður lík páfa flutt í Péturskirkjuna. Yfirvöld í Róm búast við allt að tveim milljónum pílagríma í Péturskirkjuna, en líklegt er talið að páfi verði jarðsunginn á miðvikudag, fimmtudag eða föstudag. Reikna má með að þangað komi einhver fjölmennasti hópur þjóðarleiðtoga heims sem sést hefur í langan tíma.
Öll hótel og gistihús í Róm eru full, og verið er að koma upp bráðabirgðaskýlum á íþróttavöllum í borginni þar sem gestir geta náttað.
4.04.2005 / Ruv.is Allar leiðir liggja til Rómar Búist er við því að tvær milljónir katólskra manna hvaðanæva úr heiminum leggi leið sína til Rómar í vikunni til að verða við útför Jóhannesar Páls II páfa. Embættismenn Páfagarðs sem skipuleggja útförina hafa ekki dagsett hana en segja útilokað að hún verði fyrr en á fimmtudag. Samkvæmt stjórnarskrá Páfagarðs, Universi Domenici Gregis, sem sett var 1996, og samin í umsjá Jóhannes Páls II sjálfs, fer útför páfa fram fjórum til sex dögum eftir lát hans, nema brýn nauðsyn neyði menn til að slá henni á frest. Útförin er síðan upphaf níu daga sorgartíðar katólskra manna, Novendial. Ekki hefur enn verið látið uppi hvar páfi óskaði eftir að vera jarðsettur.
Lík páfa stendur uppi í viðhafnarsal í Páfagarði, klætt biskupsskrúða með bagal undir hendi og mítur á höfði. Ýmsir forystumenn katólsku kirkjunnar eru þegar farnir að tala um Jóhannes Páll II eins og hann sé helgur maður. Þannig kallaði Angelo Sodano kardínáli hann Jóhannes Pál "hinn mikla" í gær, en aðeins þrír páfar af 263 alls, eru nefndir "hinir miklu", þeir voru uppi á miðöldum og eru í dýrlingatölu.
Allir kardínálar hinnar rómversk katólsku kirkju eru ýmist á leið til Rómar eða þegar komnir þangað. Þótt páfakjör megi ekki hefjast fyrr en 15 dögum eftir lát páfa þurfa menn að bera saman bækur sínar. Margur fundurinn, fámennur eða fjölmennur, er framundan þar sem kardínálarnir leggja á ráðin um val á nýjum páfa. Áttræðir kardínálar, og eldri, eru hvorki kjörgengir né hafa kosningarrétt á samkomunni sem velur páfa. Þennan rétt hafa því aðeins 117 kardínálar af 183 alls. 52 eru úr Evrópu, 21 úr Rómönsku Ameríku, 14 úr Norður-Ameríku, 11 úr Afríku, 11 úr Asíu og 2 úr Eyjaálfu. Þetta eru ekki ungir menn, meðalaldur þessara kjörmanna er 71 ár. Þegar þeir hafa síðan loks valið nýjan arftaka Péturs postula stíga hvítir reykir til himins yfir Páfagarði.
2.4.2005 / Mbl.is Jóhannes Páll páfi látinn í Róm Jóhannes Páll páfi annar er látinn á 85. aldursári. Hann lést í kvöld klukkan 19:37 að íslenskum tíma, 21:37 að staðartíma í Róm, eftir erfið veikindi og meðal annars hjarta- og nýrnabilun.
Jóhannes Páll, sem fæddist sem Karol Wojtyla í Póllandi, tók við páfadómi árið 1978 og hefur því verið leiðtogi kaþólskra um 27 ára skeið. Fáir hafa setið lengur á páfastóli en hann og enginn páfi hefur víðar farið en Jóhannes Páll heimsótti rúmlega 120 ríki meðan hann sat í embætti.
Heilsu páfa hefur hrakað jafnt og þétt undanfarna daga uns yfir lauk í kvöld. Í tilkynningu Vatikansins segir að mjög hafi sigið á ógæfuhliðina síðastliðna nótt og í dag af völdum þvagfærasýkingar og síðar hás hita. Hafi það á endanum leitt til blóðsýkingarlosts í kvöld og öndunar- og hjartastopps.
DÁÐUR OG UMDEILDUR Riccardo Muti hljómsveitarstjóri og fyrrverandi listrænn stjórnandi Scala óperunnar í Mílanó í nær 20 ár. Mynd: AP
2.4.2005 / Mbl.is Muti hrökklast frá La Scala Riccardo Muti tilkynnti í gær að hann hefði sagt upp störfum sem listrænn stjórnandi í La Scala óperuhúsinu í Mílanó. Sagðist hann ekki hafa átt annarra kosta völ vegna innanhússátaka.
Átökin hafa sett svip sinn á starf óperuhússins undanfarið en þar hefur Muti verið tónlistarstjóri frá því á árinu 1986.
Nýverið samþykktu meira en 700 af 800 starfsmönnum hússins vantrauststillögu á Muti og kröfðust afsagnar hans og Mauro Meli, framkvæmdastjóra óperunnar. Ástæðan fyrir óánægju starfsmannanna var ákvörðun stjórnar La Scala að segja forvera Meli, Carlo Fontana, upp en þá Muti hafði greint á. Margar sýningar hafa fallið niður vegna deilunnar undanfarnar vikur. 4.2.2005 / Fréttablaðið Flytja seint að heiman Meira en fjórði hver Ítali á aldrinum 30 til 34 ára býr enn í foreldrahúsum. Mun fleiri karlmenn en konur búa enn í foreldrahúsum á þessum aldri, 18% kvenna eru enn í heimahúsum en 36,5% karlmanna búa enn á Hótel mömmu samkvæmt útreikningum hagstofunnar Eurispes. Níu af hverjum tíu Ítölum á aldrinum 20 til 24 ára búa enn í foreldrahúsum og hafði fjölgað um tíu prósentustig á áratug.
VEIKUR EN SAMT KEIKUR Páfi, sem er 84ra ára gamall og haldinn Parkinsonveiki, virtist nokkuð hress við flutning nýársávarps síns yfir sendifulltrúum 174 landa sem eru í Vatíkani og var vel uppréttur við athöfnina. Mynd: AP
10.1.2005 Páfi kallar eftir andstöðu við frjálsræði í fjölskyldumálum
- ítrekar andstöðu kirkjunnar við fóstureyðingar, glasafrjóvgun og rannsókir á stofnfrumum úr fóstrum manna
Jóhannes Páll páfi II. kallaði eftir meiri andstöðu við lög sem heimila hjónaband samkynhneigðra og tryggja réttindi ógiftra para, í nýársávarpi í Vatíkaninu í dag. Hann hvatti til átaks gegn hungri í heiminum og ítrekaði andstöðu kaþólsku kirkjunnar við fóstureyðingar, glasafrjóvganir og stofnfrumurannsóknir á fóstrum mannfólksins.
Talaði hann yfir sendifulltrúum 174 landa sem eru í Vatíkaninu. Hann sagði að ýmsir atburðir síðasta árs skyggðu á gleði sína þegar hann óskaði þeim nýs árs, m.a. hamfarirnar í Asíu, hryðjuverkin í Madríd í mars, gíslatökurnar í barnaskóla Beslan í Rússlandi og ofbeldi í Írak og Darfur-héraði í Súdan.
Páfi, sem er 84 ára gamall og er með Parkinson-veiki, virtist nokkuð hress og var vel uppréttur við athöfnina. Sagði hann að í sumum löndum væri hinu náttúrlega fjölskyldumunstri ógnað og átti hann þar augljóslega við lög í ýmsum löndum sem leyfa hjónabönd samkynhneigðra og tryggja réttindi fólks í óvígri sambúð. Fjölskyldur verða að byggjast á sambandi karls og konu og þau þurfa að vera í hjónabandi, sagði hann.
Þá ítrekaði hann andstöðu kirkjunnar við fóstureyðingar, glasafrjóvgun og rannsókir á stofnfrumum úr fóstrum mannfólksins og bætti við að andstaðan byggðist á skynsemi og vísindum. - Mbl.is sagði frá.
Lestu um Jóhannes Pál II., fyrsta Slavann á páfastóli, hér í Rómarvefnum.
EKKI BARA GÓÐ HELDUR HOLL LÍKA Allt er vænt sem vel er grænt: það eru síður þroskaðri ólífur sem gefa jómrúarolíunni græna litinn.
10.01.2005 Ólífuolía gegn brjóstakrabba Vísindamenn hafa greint hvað veldur því að konur við Miðjarðarhaf fá ekki brjóstakrabbamein. Það er sýra í ólífuolíunni, sem stöðvar myndun krabbameinsfrumna. Þessar frumur finnast í þriðja hverjum brjóstakrabbameinssjúklingi.
Lengi hefur verið vitað að matarræði í Miðjarðarhafslöndum er heilnæmt og að fólki á þessum slóðum er ekki jafnhætt og öðrum við alvarlegum sjúkdómum á borð við krabbamein, hjarta- og æðasjúkdóma. Nú hefur tekist að einangra aðal varnarþáttinn gegn brjóstakrabbameini í ólífuolíunni. - Ruv.is sagði frá.
07.01.2005 13 fórust í lestarslysi, 50 slösuðust 13 menn fórust þegar tvær lestir rákust saman í hæðum í grennd við Bologna á Norður-Ítalíu í dag. Farþegalest var á leið frá Verona þegar hún ók á vöruflutningalest á sama spori. Að minnsta kosti 50 eru slasaðir. - Ruv.is sagði frá.
Eldaðu
ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur
best og segja má að eitt af því
sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg
notkun hráefnis og krydda.
Söguás:
1929
Mússolíní og Píus páfi
XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs
sem sjálfstætt ríki innan ítalska
ríkisins með samningi sem kenndur er við
Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm
svo til allan febrúarmánuð og nær
hámarki á Martedí Grasso,
sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist
aðallega vera hátíð smáfólksins;
telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla
og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver
er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn
sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en
tók síðan að stunda viðskipti
og sá sér þá hag í að
stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum
og helsti ferðamáti íbúa innan
borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf
klaustur-
lífs
Það féll í hlut Benedikts frá
Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri
á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk
trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið
við altarisgöngu verður brauðið að
holdi Krists í munni honum vegna þess að
presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd
kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður
sögunnar. Hann fæddist í smábænum
Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina
og hefur æ síðan verið við þann
bæ kenndur.
ÁBÓTINN
SAGÐI ...
Rómaborg er
yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir
að virða sem þorp, því að jörð
og steinar og stræti öll eru roðin
í blóði heilagra manna.