 Ítalir heimsmeistarar í fótbolta í fjórða sinn Ítalir urðu heimsmeistarar í fótbolta í fjórða sinn þegar þeir unnu Frakka 5-3 í vítaspyrnukeppni eftir 1-1 jafntefli í framlengdum úrslitaleik á Ólympíuleikvangnum í Berlín að kvöldi 9. júlí sl.. Voru bæði mörkin í leiknum skoruð í fyrri hálfleik. Strax á sjöundu mínútu tók Zinedine Zidane forystu fyrir Frakka með marki úr vítaspyrnu sem dæmd var á Marco Materazzi varnarmann Ítalíu. Materazzi tókst síðan að jafna metin á nítjándu mínútu með skallamarki og þar við sat til loka framlengingar. Frakkar höfðu betur í síðari hálfleiknum og framlengingunni, en höfðu ekki erindi sem erfiði. Rétt fyrir lok framlengingarinnar lauk löngum og frækilegum ferli Zidans fyrirliða Frakka þegar hann var rekinn af velli fyrir að stanga Materazzi. Ítalir náðu ekki að færa sér liðsmuninn í nyt og því varð að knýja fram úrslit í vítaspyrnu og þar voru vinir vorir loksins rétt skóaðir. | 11.07.2006 / Ruv.is Ýmsar kenningar um ókvæðisorð Materazzis Marco Materazzi, varnarmaður knattspyrnulandsliðs Ítalíu, þvertekur fyrir að hafa kallað Zinedine Zidane, fyrirliða landsliðs Frakklands, skítugan hryðjuverkamann í leik liðanna á sunnudag. Eitthvað misjafnt fór þeim á milli sem olli því að Zidane skallaði Materazzi í brjóstið og var vikið af velli. Frakkar bíða með öndina í hálsinum eftir skýringu landsliðsfyrirliðans á atvikinu. Umboðsmaður Zidanes staðhæfði í gær að Materazzi hefði kallað hann skítugan hryðjuverkamann, en Ítalinn sór og sárt við lagði í gærkvöld að þetta væri rangt. Baráttusamtök gegn kynþáttahatri í Frakklandi, og einnig í Bretlandi, krefjast þess að Alþjóða knattspyrnusambandið rannsaki þetta mál. Zidane er arabi og íslamskrar trúar. En hvað sagði þá Materazzi, hafi hann ekki kallað Zidane skítugan hryðjuverkamann. Sérfræðingar í varalestri þykjast hafa ráðið þessa mestu gátu Heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu. Gallinn er bara sá að þeim ber ekki saman. Þannig hefur Independent eftir varalesara brasilísku sjónvarpsstöðvarinnar Globo að Materazzi hafi sneitt með ærumeiðandi hætti að systur Zidanes, Lili. Staðhæft að hún legði stund á vændi. Ítalskur sérfræðingur hefur aðra sögu að segja. Hann les þetta af vörum Materazzis: "Ég óska þess að þú, og fjölskylda þín gjörvöll, deyið á hræðilegan hátt. Farðu í rass og rófu." Um fátt annað var rætt í kaffihúsum Parísar í gær en bræðiskast Zidanes og aðdraganda þess. Sumir sögði að Materazzi hefði farið óvirðingarorðum um móður knattspyrnujöfursins, en hún á við heilsubrest að stríða, aðrir að eiginkonu hans hefði verið úthúðað. Hvað sem öllum bollaleggingum líður segja menn nauðsynlegt að Zidane tjái sig um þetta mál. Ella geti farið svo að óvissan verði ýmsum aðdándum hans óbærileg og þeir missi vitið. Þá kunni fyrirtæki að segja upp auglýsingasamningum við hann. 10.07.2006 / NFS Niðrandi ummæli um móður Zidane orsök reiðikastsins? Talið er að niðrandi ummæli um móður Zinedine Zidane, fyrirliða franska knattspyrnulandsliðsins, hafi orðið til þess að Zidane skallaði Materazzi leikmann Ítala í leik liðanna á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í gær. Umboðsmaður Zidane sagði í viðtalið við fréttastofu BBC að Marco Materazzi leikmaður Ítala hefði látið mjög alverleg ummæli falla við þann franska í úrslitaleik HM í gærkvöldi. Zidane var rekinn af leikvangi vegna atviksins. Umboðsmaður Zidane segist ekki vita nákvæmlega hvað það var sem Materazzi sagði en franskir fjölmiðlar segja að hann hafi látið mjög niðrandi orð falla um móður Zidane. Umboðsmaðurinn sagði að Zidane muni tjá sig um málið við fölmiðla á næstu dögum. 09.07.2006 / Ruv.is HM 2006: Ítalir sigruðu í vítakeppni Ítalir urðu í kvöld heimsmeistarar í knattspyrnu í 4. sinn þegar þeir unnu Frakka 5-3 í vítaspyrnukeppni eftir 1-1 jafntefli í framlengdum úrslitaleik á Ólympíuleikvangnum í Berlín. Bæði mörkin í leiknum voru skoruð í fyrri hálfleik. Zinedine Zidane tók forystu fyrir Frakka strax á 7. mín. með marki úr vítaspyrnu sem dæmd var á Marco Materazzi
varnarmann Ítalíu. Materazzi jafnaði síðan
metin á 19. mín. með skalla eftir hornspyrnu
frá Andrea Pirlo og þar við sat til loka framlengingar.
Frakkar höfðu reyndar betur í síðari
hálfleiknum og framlengingunni,en höfðu ekki
erindi sem erfiði upp við mark Ítala og á
110 mín. lauk löngum og frækilegum ferli Zidans,
fyrirliða Frakka, þegar hann var rekinn af velli fyrir
glórulaust brot á Materazzi. Ítalir náðu
ekki að færa sér liðsmuninn í nyt
og úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni.
Ítalir skoruðu úr öllum 5 vítaspyrnum
sínum en ein spyrna Frakka fór forgörðum.
Það var því Fabio Cannavaro, fyrirliði
Ítala, sem tók við heimsbikarnum að leik
loknum en hann lék 100. landsleikinn í kvöld.
07.07.2006 / Ruv.is
Berlusconi hlýtur að hafa vitað um mannrán
Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra
Ítalíu, og félagar hans ríkisstjórn,
hljóta að hafa unnið með Leyniþjónustu
Bandaríkjanna, CIA, þegar hún rændi
egypskum flóttamanni á götu úti í
Mílanó fyrir þremur árum. Þetta
sagði Massimo D´Alema, utanríkisráðherra
Ítalíu, á ríkisstjórnarfundi
í gær. D´Alema segir nær útilokað
að skipuleggja og framkvæma svo umfangsmikla leyniþjónustuaðgerð
án vitundar ítalskra yfirvalda, og þátttöku
Leyniþjónustu Ítalíu. Marco Mancini,
annar valdamesti leyniþjónustumaður Ítalíu,
var tekinn höndum í fyrradag. Starfsbróðir
hans er í stofufangelsi. Þeir eru bornir þeim
sökum að hafa liðsinnt erindrekum CIA við að
ræna Osama Mustafa Hassan, egypskum trúarleiðtoga,
sem var landflótta á Ítalíu. Hann
var fluttur til Egyptalands þar sem hann er enn í
varðhaldi, án þess að réttað
hafi verið í máli hans, og hefur sætt
pyntingum. Mancini ber af sér sakir.
Saksóknarar í Mílanó hafa gefið
út tilskipun um framsal og handtöku 26 erindreka
CIA vegna ætlaðrar þátttöku þeirra
í mannráninu. D´Alema segir brýnt
að leiða þetta mál til lykta. Hvort háttsettir
ítalskir embættismenn séu meðsekir erlendum
útsendurum við að fremja alvarlegan glæp
á Ítalíu. Sannist að ríkisstjórn
Berlusconis hafi vitað um mannránið, og lagt
blessun sína yfir það, staðfestir það
ýmsar ásakanir sem koma fram í nýlegri
skýrslu Evrópuráðsins. Niðurstaða
hennar er sú að ríkisstjórnir ýmissa
Evrópuríkja hafi fallist á svonefnt fangaflug
CIA, flutning grunaðra hryðjuverkamanna í leynifangelsi
eða til ríkja þar sem pyntingar eru alsiða
við yfirheyrslur fanga.
26.06.2006 / Fréttablaðið
Ómar á minnsta bíl landsins
Ómar Ragnarsson fréttamaður festi nýlega
kaup á smæsta bíl landsins. Bíllinn
er gulur, 34 ára og af gerðinni Fiat 500, stundum
kallaður Fíat lús. Fyrsti bíllinn sem
ég átti var næstum því svona
lítill. Ég á hann ennþá en
hann er bara svartur, segir hinn stolti bílaeigandi sem
flutti lúsina inn frá Bretlandi. Ég er
í góðum félagsskap því
Michael Schumacher og fleiri ökuþórar eiga
svona bíla. Þessir bílar voru strax teknir
inn í kappaksturinn eins og Míníinn enda
bara 480 kíló, segir Ómar sem beið
lengi eftir því að komast yfir bílinn.
Mig hafði lengi langað í svona bíl, en
hann varð að vera gulur og góður. Biðinn
eftir honum var því nokkur en þess virði.
Hann er ódýr og lítill - í raun
eru þetta ódýrustu og einföldustu bílar
sem hafa verið til í Evrópu í hálfa
öld.
Ómar hefur misst töluna yfir bílana sem hann
á. Suma hefur hann fengið gefins frá fólki
sem ætlaði að henda þeim og margir þeirra
eru númeralausir en ökufærir. Þó
á hann fimm merkilega bíla á númerum.
Þessi sem ég var að kaupa er minnsti bíll
á Íslandi. Síðan á ég
Fíat 126 sem er ódýrasti bíllinn
á Íslandi, hann er pólskur og 2000 módelið
af honum kostaði 120 þúsund kominn á
götuna. Svarti bílinn var minnsti bílinn
á Íslandi og svo á ég Dihatsu Cuore
sem er minnsti fjórhjóladrifni bíllinn
á landinu og svo verðlausan gamlan Suzuki Fox sem
er minnsti jöklabíll landsins, segir Ómar
stoltur og bætir við. Þessir fimm bílar
eru minstu og ódýrstu bílar á Íslandi.
Samanlagt verð þeirra er minna en hálfvirði
af nýjum bíl af ódýrstu gerð.
27.06.2006 / Fréttablaðið
Hafna nýrri stjórnarskrá
Í þjóðaratkvæðagreiðslu
sem fram fór í gær og fyrradag hafnaði
meirihluti ítalskra kjósenda tillögu að
víðtækri uppfærslu á stjórnarskrá
Ítalíu sem fyrri ríkisstjórn undir
forystu Silvios Berlusconi hafði látið gera.
Samkvæmt fyrstu tölum var tillagan felld með
öruggum mun, en sú niðurstaða er fagnaðarefni
fyrir núverandi ríkisstjórn miðju-
og vinstriflokka undir forystu Romanos Prodi.
Atkvæðagreiðslan var álitin prófraun
á fylgi við nýju stjórnina, tveimur
mánuðum eftir að flokkabandalagið sem að
henni stendur vann nauman sigur í þingkosningum.
Þegar atkvæði höfðu verið talin
í vel yfir helmingi allra hinna rúmlega sextíu
þúsund kjördæma höfnuðu rúmlega
62 prósent kjósenda stjórnarskrárbreytingunum
en tæplega 38 prósent vildu samþykkja þær.
Þessar niðurstöður eru okkur hvatning til
að fylgja ótrauðir okkar striki, sagði Arturo
Parisi, varnarmálaráðherra og samherji Prodis
til margra ára. Stjórn Prodis hafði beitt
sér gegn stjórnarskrárbreytingunni, sem
hún sagði myndu færa óhóflega
miklar valdheimildir til framkvæmda valdsins.
Breytingarnar hefðu meðal annars styrkt völd forsætisráðherrans,
fært héraðsstjórnum aukin völd
á kostnað miðstýringarvaldsins í
Róm, og fækkað þingmönnum. Aðrar
breytingar miðuðu meðal annars að því
að stuðla að stöðugri ríkisstjórnum
en Ítalir hafa búið við á síðustu
áratugum.
26.06.2006 / Ruv.is
Ítalía: Breyttri stjórnskipan hafnað
Mikill meirihluti Ítala hafnaði róttækum
stjórnskipunarbreytingum í atkvæðagreiðslu
sem fram fór í gær og í dag. Samkvæmt
breska ríkisútvarpinu BBC greiddu 61,7% kjósenda
atkvæði gegn breytingunum. 38,3% voru á móti.
Það var fyrrverandi ríkisstjórn Ítalíu
undir forystu Silvios Berlusconis, sem kom tillögum um
stjórnkerfisbreytingarnar í gegnum þingið
síðasta mánuðinn sem hún var við
völd. Ætlunin var að auka vald forsætisráðherra
og tilgangurinn var sá að koma í veg fyrir
tíð stjórnarskipti. Þá hefðu
breytingarnar einnig aukið sjálfstæði héraðs-
og sveitarstjórna. Romano Prodi forsætisráðherra,
var andvígur breytingunum. Hann kvað ógerlegt
að stjórna landinu yrðu þær samþykktar.
26.06.2006 / Ruv.is
Óttast að Ítalía klofni
Prodi og Berlusconi takast enn á
Óvíst er um þátttöku á
seinna degi þjóðaratkvæðagreiðslu
um stjórnskipan Ítalíu í dag. Ítalir
virðast hafa mun meiri áhuga á leik landa
sinna og Ástrala í 16 liða úrslitum
heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu en mestu stjórnskipunarbreytingum
frá stofnun lýðveldis 1948, breytingum sem
sumir fréttaskýrendur segja að gætu
þýtt endalok þeirra Ítalíu
sem Cavour og Garíbaldí sameinuðu 1861.
Tillögurnar eru runnar undan rifjum Silvios Berlusconis,
fyrrverandi forsætisráðherra, og félaga
hans í Norðurbandalaginu sem vilja aukið sjálfsforræði
héraða og landshluta. Samkvæmt þeim yrði
stórlega dregið úr völdum miðstjórnarinnar
í Róm en 20 héraðsstjórnir fengju
yfirráð margra málaflokka. Þannig féllu
menntamál, löggæsla og heilbrigðisþjónusta
þeim í skaut, þær fengju mun meiri
skatttekjur í sinn hlut en áður, eða allt
að 40%. Þá fengi forsætisráðherra
aukin völd. Hann réði og ræki aðra
ráðherra eftir eigin geðþótta, gæti
rofið þing og mótaði að öllu leyti
stefnu ríkisstjórnarinnar.
Í stjórnarskránni frá 1948 eru ákvæði
sem einmitt eiga að stemma stigu við því
að forsætisráðherra verði of valdamikill,
menn vildu ekki nýjan Benító Mússólíní.
Romano Prodi forsætisráðherra, og félagar
hans í ríkisstjórn Ítalíu,
eru andvígir breytingunum, segja ógjörning
að stjórna landinu verði þær samþykktar,
við tæki glundroði. Þá yrði Ítalía
í raun tvö ríki, annað í norðri,
hitt í suðri.
26.06.2006 / Ruv.is
Ítalía: Breyttri stjórnskipan líklega
hafnað
Ítalskir kjósendur virðast hafa hafnað
breyttri stjórnskipan í atkvæðagreiðslu
í dag og í gær, ef marka má skoðanakannanir
og spár byggðar á fyrstu tölum. Tveggja
daga þjóðaratkvæðagreiðslu á
Ítalíu er lokið og talningu er lokið á
14.000 af 61.000 kjörstöðum. Samkvæmt fyrstu
tölum hafa liðlega 65% hafnað breytingum á
stjórnarskrá, tæplega 35% samþykkt
þær.
Samkvæmt tölvuspám hafa 59% ítalskra
kjósenda hafnað breytingum, liðlega 40% samþykkt
þær. Lokatölur ættu að birtast fyrir
kvöldið. Stjórn Berlusconis, fyrrverandi forsætisráðherra,
kom tillögunum um stjórnarskrárbreytingar
gegnum þingið, síðasta mánuðinn
sem hann var við völd. Ætlunin var að auka
vald forsætisráðherra og tilgangurinn að
koma í veg fyrir tíð stjórnarskipti,
eins og Ítalir hafa mátt búa við í
hálfa öld. Einnig hefðu breytingarnar í
för með sér aukið sjálfstæði
héraðs- og sveitastjórna.
Romano Prodi forsætisráðherra, er andvígur
breytingunum. Hann segir að ógerlegt verði að
stjórna landinu verði þær samþykktar.
20 sýslur Ítalíu fengju í sínar
hendur yfirráð yfir heilbrigðismálum skólum
og löggæslu. Andstæðingar breytinganna
segja að það myndi gagnast Norður Ítalíu
á kostnað fátæku héraðanna
á Suður Ítalíu. Kvartað var undan
því að Ítalir hefðu meiri áhuga
á leik landa sinna við Ástrala í heimsmeistarakeppninni
en stjórnarskrárkosningunum.
23.06.2006 / Fréttablaðið
Juventus, AC Milan, Lazio og Fiorentina hafa öll verið
ákærð af ítalska knattspyrnusambandinu:
Juventus dæmt niður í Serie-C deildina?
Juventus, AC Milan, Lazio og Fiorentina hafa öll verið
ákærð af ítalska knattspyrnusambandinu.
Þetta eru liðin fjögur sem voru til rannsóknar
af aganefnd sambandsins en málið teygir anga sína
víða.
Forráðamenn Juventus hafa verið til rannsóknar
frá því í vor vegna skandalsins sem
hefur snúið öllu fótboltalífi
á Ítalíu á hvolf. Juventus er ásakað
um að hafa hagrætt úrslitum í leikjum
hjá sér, í samráði við Pierluigi
Pairetto sem útnefndi dómara á leiki í
Serie-A deildinni. Stjórn Juventus, með Luciano Moggi
í broddi fylkingar, sagði af sér vegna málsins
en símtöl hans við Pairetto voru birt í
heild sinni í ítölskum fjölmiðlum.
Hlutur hinna liðanna þriggja er alvarlegur, en þó
mun minna en Juventus.
Verðgildi Juventus hefur lækkað um 40 prósent
frá 9. maí en stjórnin sagði af sér
14. maí og er klúbburinn nú talinn vera
um 112 milljóna punda virði. Meira að segja stjórnandi
vinsælasta knattspyrnusjónvarpsþáttar
á Ítalíu sagði af sér eftir
að ásakanir komu fram um að Moggi hefði beðið
hann um að fegra ímynd Juventus.
Auk þess var Juventus ásakað um skattsvik og
fölsun á opinerum gögnum en félagið
á yfir höfði sér hörðustu refsinguna.
Hún gæti verið allt frá því
að dregin verði af félaginu stig í besta
falli fyrir þá, til sviptunar titla og falls í
Serie-B eða jafnvel Serie-C deildina í versta falli.
Réttarhöldin hefjast 28. júní og ef
áfrýjað verður, er réttað milli
7. og 9. júlí. Dómur verður kveðinn
upp fyrir 20. júlí.
22.06.2006 / NFS
Ítalski boltinn: Fjögur stórlið fyrir
rétt
Í stuttri fréttatilkynningu frá Ítalíu
í dag kemur fram að risafélögin Juventus,
AC Milan, Fiorentina og Lazio hafi öll verið boðuð
til að mæta fyrir rétt vegna þáttar
síns í stóra knattspyrnuhneykslinu sem
riðið hefur yfir ítalska knattspyrnu á
síðustu vikum.
Sérstakur saksóknari var skipaður í
málinu, sem tekur á 30 ákæruatriðum
sem snúa að spillingu í ítölsku
knattspyrnunni. Refsing þeirra félaga eða aðila
sem fundnir verða sekir í málinu getur verið
allt frá fjársektum upp í leikbönn,
fangelsi eða brottrekstur úr deildarkeppninni.
20.06.2006 / Ruv.is
52 mafíósar handteknir á Sikiley
Bernardo Provenzano fór huldu höfði í
40 ár
52 félagar í ítölsku mafíunni
voru handteknir á Sikiley í nótt og í
morgun. Gögn, sem lögreglan komst nýverið
yfir, leiða í ljós að mafían hefur
verið í nánum tengslum við hóp
ítalskra stjórnmála- og kaupsýslumanna.
Handtökurnar í nótt og í morgun koma
í kjölfar þess að lögreglan gómaði
í apríl síðastliðnum Bernardo Provenzano,
"Traktorinn" sem kallaður var foringi foringjanna
og hafði verið á flótta undan réttvísinni
í fjóra áratugi. Í hrörlegu
sveitahúsi, skammt frá bænum Corleone á
Sikiley var þessi hættulegasti glæpamaður
Ítalíu gómaður. Þar var líka
lagt hald á mikið af skjölum, sem sum hver voru
á torræðu dulmáli sem byggðist á
Biblíunni. Eftir að sérfræðingum
lögreglunnar tókst að ráða lögmálið
var blásið til nýrrar sóknar gegn mafíósum
á Sikiley. 52 voru handteknir, þar á meðal
leiðtogar 13 mafíufjölskyldna á eyjunni.
Ítalska fréttastofan Ansa hefur eftir Piero Grasso
lögregluforingja sem elt hefur liðsmenn mafíunnar
í áraraðir að í skjölunum
hafi meðal annars komið í ljós að
mafían hafði náin samskipti við hóp
ítalskra stjórnmálamanna og kaupsýslufólk.
Til dæmis hafði mafían tekið saman lista
fyrir þingkosningarnar í vor með nöfnum
stjórnmálamanna sem álitnir voru hliðhollir
málstaðnum. Aðgerðirnar í nótt
og í morgun byggðust ekki eingöngu á
skjölunum sem fundust í fórum Traktorsins.
Fyrir nokkru tókst lögreglunni að koma fyrir
hlerunarbúnaði í bílskúr einum
í Palermo, sem reyndist vera leynilegur fundarstaður
margra mafíuforingja. Af upptökunum má ráða
að þeir töldu sig óhulta í skúrnum.
Piero Grasso þakkar það nútíma
hlustunartækni að hægt var að hlera bílskúrinn
og komast þannig að mikilvægum upplýsingum
sem hjálpuðu til við síðustu aðgerðir
lögreglunnar. Henni hefur orðið töluvert ágengt
í baráttunni við glæpamenn það
sem af er árinu. Í janúar voru 46 mafíubófar
handteknir og 82 í mars.
19.06.2006 / Ruv.is
Bandarískur hermaður kærður fyrir morð
Saksóknarar á Ítalíu lögðu
í dag fram formlega kæru á hendur bandarískum
landgönguliða, fyrir að hafa í mars í
fyrra skotið ítalskan leyniþjónustumann
í Bagdad.
Hermaðurinn er sakaður um manndráp og tilraun
til að myrða tvo menn. Hann skaut ítalskan leyniþjónustumann
sem fylgdi ítalskri blaðakonu sem hafði verið
sleppt úr haldi mannræningja, þegar þau
óku framhjá vegaeftirlitsstöð. Bandaríski
herinn segir þau hafa ekið of hratt, og hermennirnir
þess vegna skotið á bílinn.
Samkvæmt athugun sem ítölsk stjórnvöld
létu gera óku þau á 40-50 km hraða
á klukkustund. Dómari á Ítalíu
ákveður nú hvort réttað verði
yfir hermanninum, og ef hann telur sönnunargögn nægileg,
gætu réttarhöldin farið fram í
fjarveru ákærða.
01.06.2006 / Ruv.is
Hægrimenn súrir
Hægriflokkarnir á Ítalíu eru í
uppnámi eftir að Napolitano forseti náðaði
Ovidio Bompressi, sem á sínum tíma var
dæmdur í 22 ára fangelsi fyrir að ráða
af dögum Calabresi lögreglustjóra í
Mílanó árið 1972.
Það var Mastella dómsmálaráðherra
sem lagði til að Bompressi yrði náðaður
og hann fór einnig fram á að forsetinn náði
síðar í ár Adriano Sofri, sem hlaut
sama dóm fyrir aðild að morðinu.
Dómarnir yfir þeim Bompressi og Sofri voru endanlega
staðfestir fyrir 6 árum. Castelli, fyrrverandi dómsmálaráðherra,
segir náðunina óréttlætanlega
með öllu. Réttarhöldin yfir þeim
Bompressi og Sofri voru afar umdeild á sínum tíma.
30.05.06 / Visir.is
Kosið til borgarstjórna á Ítalíu:
Vinstriflokkar höfðu betur
Flokkabandalag vinstri- og miðjuflokka, sem stendur að
ríkisstjórn Romanos Prodi á Ítalíu,
hélt meirihluta í borgarstjórnum Rómar,
Tórínó, Napolí og fleiri borgum
landsins í sveitarstjórnarkosningum í gær,
en í Mílanó, sem lengi hefur verið
eitt helsta vígi hægrimanna, var það
mjótt á mununum að erfitt var að segja
fyrir um úrslit á grundvelli fyrstu talna.
Piero Fassino, leiðtogi stærsta flokksins í
mið- og vinstriflokkabandalaginu sagði úrslitin
"almennan sigur fyrir miðju- og vinstrimenn, en vonir
Berlusconis um uppreisn æru brustu." Hægriflokkabandalag
Berlusconis tapaði naumt í þingkosningunum
í apríl.
 |
| SKYLDI HÚN HALDA?
Þetta er hópur sem endist allt
kjörtímabilið, sagði Romano
Prodi um nýju ríkisstjórnina.
Mynd: AFP |
Prodi með nýja ríkisstjórn
Romano Prodi hefur myndað nýja ríkisstjórn
á Ítalíu. Tilviljun ein réði
því að þennan sama dag, 17. maí,
tíu árum áður myndaði hann
sína fyrstu ríkisstjórn sem entist
aðeins til ársins 1998 eða í um
tvö ár. Prodi segir nýju stjórnina
skipaða samhentum hópi manna sem séu
staðráðnir í að láta
stjórnina endast út allt kjörtímabilið.
Prodi afhenti nýkjörnum forseta, Giorgio Napolitano,
ráðherralista sinn í gær, daginn
eftir að hann fékk stjórnarmyndunarumboð.
Þar með lauk meira en mánaðarlöngu
óstöðugleikatímabili í ítölskum
stjórnvöldum, sem hófst í kjölfar
þingkosninganna í síðasta mánuði.
Prodi og flokkabandalag hans vann þar afar nauman
sigur á Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra,
sem lengi vel neitaði þó að viðurkenna
ósigur sinn.
Að nýju stjórninni standa tveir stórir
miðjuflokkar ásamt fjölskrúðugum
hópi smærri flokka, allt frá kommúnistum
til fyrrverandi kristilegra demókrata. Tveir fyrrverandi
forsætisráðherrar eru í nýju
ríkisstjórninni, þeir Massimo D'Alema,
fyrrverandi kommúnisti sem verður utanríkisráðherra,
og Giuliano Amato úr Sósíalistaflokknum,
sem verður innanríkisráðherra og
þar með yfirmaður lögreglu landins
og leyniþjónustunnar. Náinn samstarfsmaður
Prodis, Arturo Parisi, verður varnarmálaráðherra.
Lestu um stjórnsýslu
og stjórnarfar Ítalíu
og fleiri fréttir
af Ítalíu hér í Rómarvefnum.
|
26.05.2006 / Fréttablaðið
Páfi í Póllandi: Vill græða sár
fortíðarinnar
Benedikt XIV páfi fékk hlýjar móttökur
í Varsjá í gær, við upphaf opinberrar
heimsóknar hans til heimalands fyrirrennara síns
í embætti, Jóhannesar Páls II páfa.
Páfi, sem er þýskur að uppruna, lýsti
því yfir að hann vildi leggja sitt af mörkum
til að græða þau sár sem hin hörmulega
kúgunarstjórn þýskra nasista olli.
Hann sagðist ætla að halda í heiðri
markmið fyrirrennara síns - að stuðla að
sáttum Pólverja og Þjóðverja
og að efla tengsl kirkjunnar við gyðinga.
21.05.2006 / Fréttablaðið
Bókabrenna á Ítalíu: Brenndu Da
Vinci lykilinn
Tómötum var kastað og stympingar urðu milli
manna í ítalska bænum Ceccano á laugardag
þegar tveir bæjarfulltrúar brenndu eintak
af bókinni Da Vinci lykillinn á torgi í
miðbænum. Þeir sögðust vera að
vernda Jesú með þessu athæfi.
Bókabrennan átti sér stað degi eftir
frumsýningu myndarinnar á Ítalíu
en hún hlaut metaðsókn í ítöskum
kvikmyndahúsum. Bæjar stjórinn lýsti
óánægju sinni með uppátæki
bæjarfulltrúanna en um hundrað manns horfðu
á og sumir skóku hnefa og atyrtu mennina tvo fyrir
vitleysisgang.
19.05.2006 / Ruv.is
Ítalía: Prodi vill kalla herliðið heim
frá Írak
Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu,
kynnti í gær stefnu stjórnar sinnar í
efrideild ítalska þingsins. Mikið uppnám
varð á þingi þegar Prodi hét því
að kalla heim ítalska hermenn í Írak,
sagði að Írak væri hernumið og innrásin
hefði verið alvarleg mistök.
Undir stjórn Berlusconis voru Ítalir ákafir
stuðningsmenn Bush-Blair stefnunnar gagnvart Írak
og Ítalir eru með þriðja stærsta
herinn þar. Með heimkvaðningu ítalska hersins
verða Bretar og Bandaríkjamenn nánast einangraðir
í Írak. Prodi var harðorður um samspil
Breta og Bandaríkjamanna í málefnum Íraks.
Þingmenn hægriflokka blístruðu og bauluðu
þegar Prodi ræddi um Írak og sagði að
mistökin spilltu friði og öryggi. Hryðjuverk
í Írak hefðu farið í nýja
farveg og orðið nýr grunnur fyrir hryðjuverk,
bæði innan og utan Íraks. Írakstríðið
hefði aukið hættuna á nýjum átökum
í Mið-Austurlöndum.
Andúð almennings í Evrópu á
Íraksstríðinu varð til þess að
Aznar forsætisráðherra Spánar féll
í kosningum 2004, Úrkaina kallaði heim her
sinn um áramótin og pólskum hermönnum
hefur verið fækkað. Fjölmargar minni hersveitir
hafa verið kallaðar heim. Prodi hefur heitið því
að viðhalda góðu sambandi við Bandaríkjastjórn
og hann nefndi engar dagsetningar í sambandi við
heimkvaðninu ítalska hersins. Stjórn Berlusconis
hafði heitið því að hermenn kæmu
heim fyrir árslok og líklegt þykir nú
að þeir komist heim í sumar.
18.052006 / Rómarvefurinn
Romano Prodi hefur myndað nýja ríkisstjórn
á Ítalíu. Tilviljun ein réði
því að þennan sama dag tíu árum
áður myndaði hann sína fyrstu ríkisstjórn
sem entist aðeins til ársins 1998 eða í
um tvö ár. Prodi segir nýju stjórnina
skipaða samhentum hópi manna sem séu staðráðnir
í að láta stjórnina endast út
allt kjörtímabilið.
Prodi afhenti nýkjörnum forseta, Giorgio Napolitano,
ráðherralista sinn í gær, daginn eftir
að hann fékk stjórnarmyndunarumboð. Þar
með lauk meira en mánaðarlöngu óstöðugleikatímabili
í ítölskum stjórnvöldum, sem
hófst í kjölfar þingkosninganna í
síðasta mánuði. Prodi og flokkabandalag
hans vann þar afar nauman sigur á Silvio Berlusconi,
fyrrverandi forsætisráðherra, sem lengi vel
neitaði þó að viðurkenna ósigur
sinn.
Að nýju stjórninni standa tveir stórir
miðjuflokkar ásamt fjölskrúðugum
hópi smærri flokka, allt frá kommúnistum
til fyrrverandi kristilegra demókrata. Tveir fyrrverandi
forsætisráðherrar eru í nýju
ríkisstjórninni, þeir Massimo D'Alema, fyrrverandi
kommúnisti sem verður utanríkisráðherra,
og Giuliano Amato úr Sósíalistaflokknum,
sem verður innanríkisráðherra og þar
með yfirmaður lögreglu landins og leyniþjónustunnar.
Náinn samstarfsmaður Prodis, Arturo Parisi, verður
varnarmálaráðherra.
18. maí 2006 / Vísir.is
Prodi myndar stjórn
"Þetta er hópur sem endist allt kjörtímabilið,"
sagði Romano Prodi í gær um nýju ríkisstjórnina.
"Þetta er mjög samleitur hópur og ég
vona að okkur komi vel saman."
Prodi afhenti Giorgio Napolitano forseta ráðherralista
sinn í gær, daginn eftir að hann fékk
stjórnarmyndunarumboð. Þar með lauk meira
en mánaðarlöngu óstöðugleikatímabili
í ítölskum stjórnvöldum, sem
hófst í kjölfar þingkosninganna í
síðasta mánuði. Prodi og flokkabandalag
hans vann þar afar nauman sigur á Silvio Berlusconi,
fyrrverandi forsætisráðherra, sem lengi vel
neitaði þó að viðurkenna ósigur
sinn.
Prodi gat þó ekki myndað nýja stjórn
fyrr en nýr forseti væri tekinn við af Carlo
Azeglio Ciampi, sem hafði tilkynnt fyrirfram að hann
myndi láta eftirmanni sínum eftir að veita
stjórnarmyndunarumboð. Napolitano tók við
forsetaembættinu á mánudaginn og afhenti
síðan Prodi stjórnarmyndunar umboð degi
síðar. Að nýju stjórninni standa
tveir stórir miðjuflokkar ásamt fjölskrúðugum
hópi smærri flokka, allt frá kommúnistum
til fyrrverandi kristilegra demókrata.
"Þeir hafa sæst á þetta, þótt
ekki sé víst að allir séu ánægðir,"
sagði Prodi stuttu áður en hann kynnti ráðherralista
sinn í gær. Hann þarf þó að
geta treyst á stuðning þeirra allra, þar
sem einungis fáir þingmenn þurfa að hlaupast
undan merkjum til þess að stjórnin falli.
Tveir fyrrverandi forsætisráðherrar eru í
nýju ríkisstjórninni, þeir Massimo
D'Alema, fyrrverandi kommúnisti sem verður utanríkisráðherra,
og Giuliano Amato úr Sósíalistaflokknum,
sem verður innanríkisráðherra og hefur
þar með yfirráð yfir lögreglu landins
og leyniþjónustunni. Arturo Parisi, náinn
samstarfsmaður Prodis, verður varnarmálaráðherra.
Í gær voru liðin nákvæmlega tíu
ár frá því fyrri ríkisstjórn
Prodis tók til starfa, hinn 17. maí árið
1996. Sú stjórn entist til ársins 1998
þegar Kommúnistaflokkurinn lét af stuðningi
sínum. "Þetta er virkilega sérstakt,"
sagði Prodi um þessa tilviljun. "Það
er svo margt sem hefur gerst."
17.05.2006 / Ruv.is
Prodi svarinn í embætti
Romano Prodi sór embættiseið og tók
formlega við sem forsætisráðherra Ítalíu
fyrr í dag. Við það tækifæri
sagði hann mikilvægast að auka samstöðu
þjóðarinnar, setja landinu markmið og
sækja fram. Þá þyrfti að draga
úr pólitískri spennu og þrætum.
Ný ríkisstjórn var einnig kynnt. Prodi
sagði hana samheldna sveit, en ekki aðeins hóp
einstaklinga. Tveir fyrrverandi forsætisráðherrar
eru í stjórninni, Massimo D'Alema, sem verður
utanríkisráðherra, og Guiliano Amato, sem
verður innanríkisráðherra. Búist
er við að þingið greiði atkvæði
um traustsyfirlýsingu við nýju stjórnina
í næstu viku.
16.5.2006 / Mbl.is
Prodi segir samsteypustjórnina standa traustum fótum
Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu,
hitti forseta Ítalíu í dag og fullvissaði
hann um að samsteypustjórn hans standi traustum
fótum og að hún hafi styrk til þess
að stýra landinu. Prodi vonast til þess að
fá umboð frá forsetanum til þess að
mynda ríkisstjórn áður en að
dagurinn er úti.
Ég hef fullvissað forsetann að samsteypustjórnin
sé traust, sagði Prodi og bætti því
við að samsteypustjórn hans hafi þann
styrk og þann samloðunarkraft sem þörf
er á til stjórnarmyndunar.
11.05.06 / Fréttablaðið
Forsetakjör á Ítalíu heppnaðist
í fjórðu umferð
Giorgio Napolitano verður næsti forseti Ítalíu.
Sameinað þing efri og neðri deildar, þar
sem einnig sátu fulltrúar frá héraðsstjórnum,
kaus forsetann í fjórðu umferð með
543 atkvæðum, sem er nokkru meira en sá 505
atkvæða meirihluti sem dugað hefði til að
niðurstaða fengist.
Fyrri umferðirnar þrjár höfðu ekki
skilað neinni niðurstöðu, enda þurfti
þá tvo þriðju atkvæða. Bandalag
vinstriflokkanna hefur nauman meirihluta á þinginu,
þannig að hægrimenn gátu hæglega
komið í veg fyrir að forsetaefni vinstrimanna
næði sigri.
Napolitano er fyrrverandi kommúnisti, sá fyrsti
úr þeirra röðum sem tekur við forsetatign
á Ítalíu. Hann er áttræður
og hefur átt sæti á þingi sem heiðursþingmaður
til æviloka, einn af sjö manns sem njóta
þess heiðurs. Napolitano nýtur víða
virðingar, þykir bæði hógvær
og réttsýnn. Hann átti þátt
í að umbreyta Kommúnistaflokknum í
vinstrisinnaðan demókrataflokk.
8.05.06 / Fréttablaðið
Forsetakjör á Ítalíu
Tvær meginfylkingar ítalskra stjórnmála
deila nú hart um hver verði næsti forseti
landsins. Nýkjörið þing landsins gengur
til atkvæða í dag um það hver verður
eftirmaður Carlos Azeglios Ciampis á forsetastólnum.
Romano Prodi og bandalag vinstriflokka unnu í þingkosningum
í síðasta mánuði nauman meirihluta
bæði í efri og neðri deild þingsins.
Þeir hafa lagt til að næsti forseti verði
Massimo D'alema, fyrrverandi forsætisráðherra
og leiðtogi stærsta flokksins í fylkingu
Prodis.
Hægriflokkarnir, undir forystu Silvios Berlusconis,
vilja hins vegar að næsti forseti verði Gianni
Letta, náinn samstarfsmaður Berlusconis. Í
gær hélt Berlusconi því fram að
DAlema væri ómögulegur í embættið
og hótaði því að stjórnarandstaðan
myndi láta öllum illum látum framvegis
í umræðum á þingi ef vinstriflokkarnir
keyra það í gegn að DAlema verði
fyrir valinu.
Tillagan um stjórnmálamann frá vinstriflokki
er hreinlega ósiðleg, sagði Berlusconi við
fréttamenn í gær. Okkar frambjóðandi,
frambjóðandi miðju- og hægriflokkanna,
er Gianni Letta, og við krefjumst þess að atkvæðin
falli honum í vil.
Forsetinn hefur meðal annars það hlutverk að
veita umboð til stjórnarmyndunar. Ciampi, sem lætur
af embætti nú í maí, hefur sagt
að hann vilji að eftirmaður hans í embætti
veiti stjórnarmyndunarumboð, þannig að
Prodi, sem er með meirihluta í þinginu, þarf
að bíða eftir nýjum forseta til að
geta myndað ríkisstjórn.
Á Ítalíu er forseti kosinn af þingmönnum
og héraðsstjórnarmönnum, samtals um
þúsund manns. Aðrir stjórnmálamenn
hafa einnig verið nefndir til sögunnar sem hugsanleg
forsetaefni, þar á meðal Giuliano Amato,
fyrrverandi forsætisráðherra, og Mario Monti,
fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Evrópusambandinu.
Til þess að flækja málin enn frekar
hefur Norðurbandalagið, samstarfsflokkur Berlusconis,
sagt að leiðtogi þess ætti að verða
næsti forseti og mun greiða honum atkvæði
sín.
06.05.2006 / Ruv.is
Lífvarðasveit páfa 500 ára
Um þessar mundir eru 500 ár liðin síðan
sveit svissneskra lífvarða var sett á laggirnar
í Páfagarði. Í messu sem var haldin
lífvarðasveitinni til heiðurs í morgun,
þakkaði Benedikt páfi henni dygga þjónustu.
Predikun páfa í morgun fór fram á
þremur þjóðtungum Sviss, þýsku,
frönsku og ítölsku. Messan var til heiðurs
lífvarðasveit Páfa, sem hefur einungis verið
skipuð Svisslendingum í 500 ár. Sveitin
var stofnuð í janúar 1506 þegar 150
svissneskir málaliðar voru fengnir til að þjóna
páfanum í Róm.
Þann 6. maí hvert ár eru nýir verðir
teknir inn í sveitina, og messan í dag fór
fram áður en 33 nýir lífverðir
voru vígðir. Lífverðir páfa eru
nú 110. Margir þeirra bera enn einkennisvopn
sveitarinnar, bryntröll, sem er í senn öxi
og spjót. Sumir þeirra bera þó einnig
sjálfvirka riffla, sem ætla má að
verði frekar gripið til ef hætta steðjar
að páfanum. Páfi þakkaði í
predikun sinni lífvörðunum dygga þjónustu
og hugrekki þeirra. Hann bað þess að þeir
yrðu áfram menn bænarinnar, og fyrir atbeina
heilagrar visku sannir guðsmenn.
03.05.06 / Fréttablaðið
Berlusconi forsætisráðherra Ítalíu
viðurkennir ósigur sinn og segir af sér:
Viss um að sín verði saknað.
Silvio Berlusconi gekk í gær á fund Carlos
Azeglios Ciampis, forseta Ítalíu, og sagði
af sér forsætisráðherraembættinu.
Berlusconi hefur vikum saman neitað að viðurkenna
ósigur sinn í þingkosningunum, sem haldnar
voru 9. og 10. apríl.
"Þau eiga eftir að sakna mín,"
sagði hann stuttu áður en hann gekk á
fund Ciampis, en eftir fundinn var hann kokhraustur og lofaði
harðri stjórnarandstöðu. "Ég
er ekkert að gefast upp," sagði Berlusconi. "Lýðræðið
heldur áfram, stundum hægt, en það
gerist," sagði Romano Prodi, leiðtogi vinstrimanna,
og fagnaði um leið ákvörðun Berlusconis.
Ekki var samt ljóst í gær hvort Ciampi
forseti myndi veita Prodi stjórnarmyndunarumboð.
Kjörtímabil Ciampis í forsetaembættinu
rennur út 18. maí og hann hefur áður
sagt að hann vilji láta arftaka sínum í
forsetaembættinu það eftir að veita næsta
stjórnarmyndunarumboð.
"Ég vona að þetta pólitíska
tómarúm standi ekki lengi yfir," sagði
Prodi og gerir sér vonir um að Ciampi muni snúast
hugur. "Ég er reiðubúinn að taka
við embætti en ég hef ekki nefnt nákvæma
dagsetningu við Ciampi forseta hvenær ég
vil taka við."
RUV 02.05.2006
Berlusconi biðst lausnar
Síðasti ríkisstjórnarfundur Silvios
Berlusconis, fráfarandi forseta Ítalíu,
var haldinn í morgun. Að honum loknum gekk forsætisráðherrann
á fund Ciampis forseta til að biðjast lausnar
fyrir sig og ráðuneyti sitt.
Berlusconi lætur þar með af embætti
eftir fimm ár við stjórn, en hann hefur
setið lengur við völd en nokkur annar forsætisráðherra
Ítalíu frá lokum síðar heimsstyrjaldar.
Búist er við að Ciampi forseti biðji hann
að sitja áfram þangað til ný stjórn
hefur verið mynduð, en forsetinn mun líklega
veita Romano Prodi, leiðtoga bandalags mið- og vinstriflokka,
umboð til stjórnarmyndunar á næstu
dögum, jafnvel fyrir vikulok.
Ciampi, sem brátt lætur af störfum, hafði
vonast til að eftirmaður sinn hefði umsjón
með stjórnarmyndun að loknum kosningum á
dögunum, en mikill þrýstingur er á
hann að fela Prodi að mynda stjórn sem fyrst.
Prodi segist vonast til að hafa ráðherralista
tilbúinn þegar kallið komi frá Ciampi.
Flokkabandalag Prodis náði meirihluta í
báðum deildum þingsins í kosningunum,
þó naumlega í öldungadeildinni.
Framundan er hörð barátta um næsta forseta
landsins, en kjörtímabil Ciampis rennur út
18. þessa mánaðar. Ítalskir fjölmiðlar
telja líklegt að Massimo de'Alema, fyrrverandi
forsætisráðherra, verði forsetaframbjóðandi
mið- og vinstrimanna, en Berlusconi hefur nefnt Gianni
Letta, aðstoðarráðherra, sem hugsanlegan
frambjóðanda mið- og hægrimanna. Forsetinn
er kjörinn á sameinuðu þingi.
22.04.2006 / Ruv.is
Rómverskur kardináli mælir með smokkum
Carlo Maria Martini, einn áhrifamesti kardináli
rómversk kaþólsku kirkjunnar, styðjur
kröfuna um að Páfagarður leyfi alnæmissmituðum
að nota smokk. Kirkjan bannar notkun smokks, jafnvel í
sóttvarnarskyni, og lítur eingöngu á
smokkinn sem getnaðarvörn, sem hún telur stríða
gegn vilja guðs.
Tímaritið L' Espresso hefur eftir kardinálanum,
sem áður var biskup í Milanó, að
auðvitað verði að nota smokk í sérstökum
tilvikum, til dæmis þar sem hann ver maka gegn
alnæmissmiti. Páfagarður hefur ekki brugðist
opinberlega við sinnaskiptum kardinálans.
15.04.06 / Fréttablaðið
Benedikt páfi XVI á föstudaginn langa:
Eigingirni og erfðatæknin kvelja Krist
"Skipting heimsins í svæði velfarnaðar
og svæði eymdar er kvöl Krists í dag,"
sagði hann við guðsþjónustu á
föstudaginn langa í Róm. Á öðru
svæðinu sagði hann fólk óttast
offitu, á hinu dæi fólk úr fátækt,
og spurði síðan: "Hvers vegna skiljum
við ekki að hinir fátæku eru meðferðarúrræði
hinna ríku?"
Á föstudaginn langa leiðir páfi jafnan
táknræna píslargöngu þar sem
áfangarnir á leið Krists upp á Golgatahæð
eru raktir. Þar minnist hann pínu Krists og spyr
hvað fólk getur af henni lært á okkar
tímum. "Hvað er það sem sérstaklega
kvelur líkama Krists á okkar tímum?"
spurði páfi, og svaraði því til
að engu líkara væri en fólk vildi
"leggja niður fjölskylduna" og sagði
það "djöfullegan hroka". Einnig nefndi
hann erfðatækni nútímans, og sagði
vísindamenn fremja synd með því að
reyna að taka að sér hlutverk guðs.
15.04.06 / NFS
Impregilo þarf að svara fyrir meintar mútugreiðslur
Ítalska verktakafyrirtækið Impregilo, sem
er aðalverktaki framkvæmdanna við Kárahnjúka,
tapaði á fimmtudag áfrýjun fyrir
dómstólum í Afríkinu Lesótó
vegna meintra mútugreiðslna fyrirtækisins
til embættismanna.
Impregilo er sakað um mútugreiðslur upp á
um 80 milljónir króna til þess að
vinna 500 milljarða króna samning um að reisa
svokallaða Katse stíflu í Lesótó.
Yfirvöld í Lesótó hava um árabil
verið í herferð gegn spillingu og hafa hlotið
hrós á alþjóðavettvangi fyrir
að sækja stórfyrirtæki og embættismenn
til saka. Dómsmálið sem Impregilo tapaði
snerist um rétt dómstóla í Lesótó
til að dæma í mútumálinu og
niðurstaðan þýðir að Impregilo
þarf að svara til saka fyrir meintar mútugreiðslur.
14.04.06 / Ruv.is
Páfi harðorður í hugvekju dagsins
Benedikt páfi XVI stýrir í fyrsta skipti
helgum athöfnum í Páfagarði um páska.
Í hugvekju sinni í dag, föstudaginn langa,
fordæmir hann djöfullegan hroka nútímamannsins
og dýrkun illskunnar.
Benedikt páfi segir ofdramb manna birtast átakanlegast
í því að þeir telji sig þess
umkomna að grípa fram fyrir hendur almættisins
og breyta sköpunarverkinu með margvíslegum
erfðabreytingum. Þeir hunsi vilja Guðs, setjist
sjálfir í hásæti hans og hefji
tilraunastarf sem sé ekkert annað en háskaleg
brjálsemi. Þá grafi þeir undan fjölskyldunni
og séu helteknir úrkynjaðri eigingirni.
Lundúnablaðið Times segir boðskap páfa,
þar sem hann tali tæpitungulaust um skuggahliðar
mannssálarinnar, syndina og ofmetnaðinn, stinga
í stúf við boðskap margra annarra kirkjuhöfðingja
sem leggi meiri áherslu á kærleika og
fagnaðarerindi kristindómsins. Því
megi búast við því að hugvekjurnar
veki blendin viðbrögð katólskra manna.
13.04.06 / Ruv.is
Berlusconi að einangrast
Ýmsir samstarfsmenn Berlusconis, forsætisráðherra
Ítalíu, draga í efa fullyrðingar
hans um kosningasvik og telja að endurtalning atkvæða
muni engu breyta um úrslit þingkosninganna á
dögunum. Berlusconi hefur krafist þess að hluti
atkvæða verði talinn aftur en Ciampi forseti
hefur ekki gefið heimild til þess.
Ignazio La Russa, einn forystumanna Þjóðarbandalagsins,
eins flokkanna í fylkingu Berlusconis, segist ekki
hafa fengið neinar fregnir um kosningasvik. Ýmsar
athugasemdir hafi verið gerðar við kosningarnar,
en það sé ekkert nýtt. það
gerist í hverjum kosningum. Lorenzo Cesa, leiðtogi
Kristilegra demókrata UDC, segir að alltaf séu
gerðar kannanir á hluta atkvæða, en hann
telji engar líkur á að þær muni
breyta niðurstöðum kosninganna.
12.04.2006 / Ruv.is
Ítalía: Prodi myndar ekki stjórn fyrr
en í maí
Romano Prodi reiknar ekki með að geta myndað nýja
ríkisstjórn fyrr en eftir 18. maí. Í
viðtali á franskri útvarpsstöð
í morgun, sagði hann að Carlo Azeglio, núverandi
forseti, myndi líklega ekki standa fyrir stjórnarmyndunarviðræðum.
Kjörtímabili hans lýkur 18. maí,
en nýkjörið þing kýs nýjan
forseta þegar það kemur saman 12. og 13. maí.
11.04.2006 / Ruv.is
Ítalía: Prodi hafnar Berlusconi
Romano Prodi, leiðtogi mið- og vinstrimanna á
Ítalíu, hafnaði í dag tillögu
Silvios Berlusconis, forsætisráðherra og
leiðtoga fylkingar mið- og hægrimanna, um myndun
samsteypustjórnarfylkinganna beggja svipaða og
í Þýskalandi. Prodi lýsti í
dag yfir sigri í þingkosningum á Ítalíu
í gær og fyrradag en Berlusconi neitar að
játa sig sigraðan fyrr en atkvæði hafa
verið endurtalin.
Mjótt var á munum í kosningunum og ekki
ljóst fyrr en í dag eða rúmum sólarhring
eftir að kjörstöðum lauk, hvernig færi.
Vinstri fylking Prodis hlaut meirihluta í báðum
deildum þingsins, 348 þingsæti í
neðri deild gegn 277. Munurinn var hinsvegar minni í
efri deildinni, en þar munar einungis tveimur þingsætum,
158 á móti 156.
Berlusconi sagði í dag að rannsaka þyrfti
fjölda tilfella þar sem ekki hefði verið
rétt staðið að talningu atkvæða.
Í kosningum til neðri deildar munaði einungis
25.000 atkvæðum á fylkingunum tveimur, en
rúmlega 38 miljónir greiddu atkvæði.
Verði talið aftur eða endi málið fyrir
dómstólum kann það að dragast
nokkuð að formleg úrslitverða staðfest.
Nokkur óvissa ríkir því um framhaldið
og sérfræðingar segja að þótt
Prodi myndi nýja ríkisstjórn hafi hann
það nauman meirihluta að erfitt geti reynst
að hrinda í framkvæmd nauðsynlegum umbótum
í efnahagslífi landsins, en hagvöxtur hefur
verið lítill á Ítalíu undanfarinn
ár og enginn í fyrra. Prodi segist hinsvegar
sannfærður um að geta myndað sterka stjórn
sem sitji út næsta kjörtímabil.
9.4.2006 / Mbl.is
Ítalar ganga að kjörborðinu
Kjörstaðir voru opnaðir á Ítalíu
klukkan 6 í morgun að íslenskum tíma
en þingkosningar fara fram í landinu í
dag og í morgun. Þar takast á Silvio Berlusconi,
forsætisráðherra, og Romano Prodi, forsætisráðherraefni
mið- og vinstriflokkanna. Mikil óvissa ríkir
um úrslit því skoðanakannanir eru
bannaðar síðasta hálfa mánuðinn
fyrir kosningarnar en síðustu kannanirnar bentu
til sigurs Prodis.
Kjörsókn var frekar lítil fyrst í
morgun. Um það bil 50 manns kusu á fyrsta
hálftímanum í Lungatevere della Farnesina
í Róm, skammt frá Páfagarði.
Ég kaus þá sem vilja verja gildi
okkar: Fjölskylduna, menntun og öryggi. Þetta
eru ekki trúarleg gildi heldir þjóðfélagsins
almennt," sagði nunna, sem kom á kjörstað
eftir að hafa hlýtt á morgunmessu pálmasunnudags.
Berlusconi, sem er 69 ára og ríkasti maður
Ítalíu, hvatti kjósendur í kosningabaráttunni
til að verja hina kristnu ímynd Ítala og
fjölskyldugildi gegn kosningabandalagi Prodis. Í
því eru m.a. kommúnistar, sem vilja lögleiða
sambúð samkynhneigðra.
Ég kaus vinstrimenn og vil að Berlusconi
pakki niður," sagði Daniele Calente, ríkisstarfsmaður.
Ég ég óttast að fjölmiðlaárásir
hans hafi haft áhrif og allar hans lygar." Prodi,
sem er 66 ára og fyrrum forseti Evrópusambandsins.
Honum tókst að mynda bandalag stjórnarandstöðuflokka
sem inniheldur bæði miðflokka, jafnaðarmenn
og kommúnista.
07.04.2006
Þingkosningar á Ítalíu
Kosið er ti þings á Ítalíu
sunnudaginn 9. og mánudaginn 10. apríl. Ítalska
Þingið, Parlamento, skiptist í efri
og neðri deild, það er, fulltrúadeild,
Camera dei deputati, sem 630 þingmenn sitja,
og öldungadeild Senato, sem 315 sitja. Kosið
er til hvorrar deildar um sig á fimm ára
fresti. Alls eru um 49 milljónir manna á
kjörskrá sem kjósa um þessi 945 sæti.
Kosið er eftir nýju og umdeildu kerfi hlutfallskosningar
þar sem einfaldur meirihluti innan kjördæmis
kemur einum og aðeins einum frambjóðanda áfram.
Helstu fylkingarnar sem klást eru sem fyrr Hús
frelsisins, bandalag hægrimanna með forsætisráðherrann
í broddi fylkingar og svo Ólívubandalagið,
bandalag mið- og vinstri manna, sem Romano Prodi leiðir.
05.04.2006 / Rúv.is
Ítalía: Berlusconi mátti ekki fara í
viðtal
Stjórnarandstaðan á Ítalíu
neyddi í dag Berlusconi forsætisráðherra,
til að hætta við að koma fram í einkaviðtali
á besta útsendingartíma, á eigin
sjónvarpsstöð. Mótframbjóðandinn
Romano Prodi, þáði ekki boð um að
koma í útsendinguna. Þegar vitnaðist
um viðtalið, sem ekki var á auglýstri
dagskrá, ærðist stjórnarandstaðan
og minnti á strangar kosningareglur, sem kveða
skýrt á um að hvað stjórnmálamenn
mega og mega ekki vikuna fyrir kosningar.
Berlusconi varði ákvörðun sína
og sagði það ekki brot á reglum, ef keppnautar
í stjórnmálum fengju jafn mikinn tíma
í sjónvarpi. Hann benti á að hann
sæti fyrir svörum hjá vinstrisinnuðum
blaðamönnum. Útvarpsréttarnefnd kannaðist
ekki við að hafa leyft viðtalið við Berlusconi,
eins og hann hélt fram, og hún lýsti
yfir að viðtalið stríddi gegn lögum.
Hætt var við viðtalið aðeins nokkrum
klukkustundum fyrir útsendingu. Einn helsti gagnrýnandi
Berlusconis utan Ítalíu er breska vikuritið
The Economist, sem Berlusconi uppnefnir í staðinn
The Ecommunist. Ritið, sem er þrátt
fyrir uppnefni Berlusconis er talið hægri sinnað,
hefur haldið uppi skipulegri gagnrýni á
forsætisráðherrann ítalska síðustu
misserin. Hefur það leitt til þess að
Berlusconi hefur stefnt útgefendum þess fyrir
dómara í Róm, en ritið á móti
birt opin bréf til forsætisráðherrans.
The Economist hefur m.a. fullyrt að í stöðu
sinni sem fjölmiðlaeigandi og formlegur yfirmaður
ítalska ríkisútvarpsins ráði
hann hann yfir 90% sjónvarpsefnis í landinu.
Tök Berlusconis á fjölmiðlum landsins
voru staðfest í rannsókn hinnar óháðu
stofnunar Freedom House árið 2004.
04.04.2006 / Ruv.is
Ítalía: Prodi og Berlusconi takast á
Stóryrðin og klögumálin gengu á
víxl í seinni sjónvarpskappræðum
Silvios Berlusconis, forsætisráðherra Ítalíu,
og Romanos Prodis, leiðtoga stjórnarandstöðunnar,
í gærkvöld. Samkvæmt síðustu
könnunum hefur stjórnarandstaðan allt að
5 prósentustiga forskot á stjórnarflokkanna
fyrir þingkosningarnar á sunnudag.
Berlusconi lýsti yfir því að eignaskattur
af fyrsta húsnæði almennings yrði afnuminn,
ríkistekjur uppá 2,3 miljarða evra. Hann
spilaði þessu trompi út seint í kappræðunum,
þannig að Prodi gafst ekki ráðrúm
til athugasemda fyrr en eftir þær. Hann sagði
yfirlýsinguna ábyrgðarlausa á tímum
þegar nauðsynlegt væri að taka ríkisfjármálin
föstum tökum.
03.04.2006 / Ruv.is
Páfi messaði til minningar um fyrirrennara sinn
Benedikt páfi söng messu í dag til minningar
um Jóhannes Pál páfa annan. Í
gær var ár liðið síðan Jóhannes
Páll páfi lést. Benedikt mærði
fyrirrennara sinn, sagði hann hafa verið klett í
trúnni, að trú hans hefði verið
sterk og laus við ótta eða málamiðlanir.
Í maí síðastliðnum felldi Benedikt
úr gildi reglur um að 5 ár þyrftu
að líða frá dauða tilvonandi dýrlings,
og þangað til undirbúa mætti rannsókn
á því hvort til greina kæmi að
taka hann í dýrlingatölu.
Kirkjunnar menn rannsaka nú mál franskrar nunna
sem læknaðist af einkennum Parkinsonsveiki eftir
að hafa beðið til páfans. Ef satt reynist
gæti það verið kraftaverkið sem kirkjan
þarf á að halda til að taka Jóhannes
Pál í dýrlinga tölu.
03.04.2006 / Ruv.is
17 mánaða gísl myrtur
Sautján mánaða drengur fannst látinn
á Ítalíu í fyrradag, mánuði
eftir að honum var rænt. Grímuklæddir
menn réðust inn á heimili fjölskyldu
Tommasos Onofri í grennd við Parma á Norður-Ítalíu.
Foreldrarnir voru bundnir og barninu rænt.
Barnsránið hefur sett svip á ítalska
fjölmiðlun undanfarinn mánuð. Páfi,
forsetinn, listamenn og knattspyrnumenn sárbændu
ræningjana um að sleppa barninu. Nú er ljóst
að barnið var myrt stuttu eftir ránið.
Búið er að handtaka múrara sem vann
í húsi foreldranna og karlmann frá Sikiley.
Þeir saka hvor annan um ódæðið.
Ætlunin mun hafa verið að kúga fé
út úr foreldrunum.
02.04.2006 / Ruv.is
Ártíðar Jóhannesar Páls páfa
minnst
Búist er við að hundruð þúsunda
taka þátt í minningarathöfnum um
Jóhannes Pál páfa annan, í Karkov
og í Varsjá í dag þegar þess
er minnst að eitt ár er frá dauða hans.
Þá verður kirkjuklukkum hringt um gjörvallt
Pólland.
Talið er að tugir þúsunda pílagríma
verði á Péturstorginu í Róm
þegar páfa verður þar minnst. Margir
leggja leið sína að gröf páfa undir
Péturskirkjunni en þangað koma að jafnaði
10.000 gestir á dag.
02.04.2006 / Ruv.is
Stjórnarandstaðan hefur forskot
Stjórnarandstaðan á Ítalíu,
bandalag 11 miðju- og vinstriflokka, hefur enn fimm prósentustiga
forskot á stjórnarflokkanna þegar vika
er til þingkosninga.
Meðan Silvio Berlusconi forsætisráðherra
leggur sig í líma við að heilla kjósendur
með djarflegum yfirlýsingum og gamansögum,
tekur Romano Prodi, leiðtogi stjórnarandstöðunnar,
annan pól í hæðina. Í viðtali
við Sunday Telegraph viðurkennir Prodi að hann
sé leiðinlegur, en það komi ekki að
sök, hann sé traustur.
Kannanir benda til þess að Ítalir hafi fengið
nóg af Berlusconi, fréttaskýrendur segja
það ekki spilla fyrir Prodi að vera algjör
andstæða forsætisráðherrans í
sjón og raun. Prodi sé einsog vandræðalegur
og óframfærinn sveitaprestur og það
þyki ekki ókostur við nokkurn mann á
Ítalíu.
30.03.2006 / Ruv.is
Berlusconi móðgar Kínverja
Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu,
hefur vakið reiði stjórnvalda í Peking
með staðhæfingum um að Kínverjar
hafi soðið börn á valdatíma Maós,
og notað þau sem áburð á akra.
Berlusconi heyr harða kosningabaráttu þessa
dagana, en á undir högg að sækja, kannanir
benda til þess að stjórn hans bíði ósigur fyrir bandalagi miðju-og hægriflokka í næsta mánuði. Á kosningafundi á sunnudag sagðist hann hafa lesið um barnadrápin í Svörtu bókinni um kommúnismann, þetta væru allt sögulegar staðreyndir. Formælandi utanríkisráðuneytis Kína segir þetta hins vegar staðlausa stafi. Kínverjar eru ekki síst gramir Berlusconi fyrir þá sök að þeir hafa helgað árið 2006 góðum samskiptum við Ítali. Berlusconi dró nokkuð í land í sjónvarpsviðtali í gærkvöld, viðurkenndi að þetta hefði verið skrýtla, og vissulega orkað tvímælis, hann hefði bara ekki getað haldið aftur af sér. Þetta er ekki í fyrsta sinn að menn reka upp stór augu þessa dagana vegna yfirlýsinga forsætisráðherra Ítalíu. Þegar hann hóf baráttu fyrir kosningarnar í vor sagðist hann vera Jesús Kristur stjórnmálanna. Hann væri fórnarlamb, en gæddur þrautseigju, hann umbæri allt frá öllum og fórnaði sér fúslega fyrir sérhvern mann. 24.03.2006 / Ruv.is Stjórnarandstaðan með forskot Skoðanakannanir í ítölskum fjölmiðlum í dag, sýna að mið- og vinstriflokkar stjórnarandstæðinga, halda forskoti sínu á mið- og hægriflokkastjórn Berlusconis. Þingkosningar verða á Ítalíu 9-10. apríl. Könnun sem birtist í La Republica í dag, sýnir að stjórnarandstæðingar hafa 5,1% forskot á stjórnarflokkanna í neðri deild þingsins. Í efri deildinni er bilið milli fylkinganna ívið minna. Frá morgundeginum verður óheimilt að birta niðurstöður skoðanakannanna á Ítalíu vegna þingkosninganna. 22.05.2006 / Fréttablaðið Ítalir ófeimnir við fortíðina: Sýna glæsibyrgi Mussolinis Nítjándu aldar glæsibygging í Róm verður í dag opnuð almenningi. Þar hafði Benito Mussolini aðsetur og hafði hann látið byggja nokkur neðanjarðarbyrgi við húsið, sem fólk fær nú aðgang að. Mussolini lifði hátt og hélt miklar veislur í þessu húsi, en var við öllu búinn og gat brugðið sér niður í byrgin til þess að verjast loftárásum. Tvær stórar byggingar neðanjarðar voru byggðar með mikilli leynd og eru samtals tvö hundruð fermetrar að stærð. Eitt byrgið var sérhannað til að þola árásir eiturefna. 20.03.2006 / Fréttablaðið Ítalskir blaðamenn: Engar fréttir á Ítalíu í gær Blaðamenn allra helstu dagblaða Ítalíu lögðu niður störf á laugardag í mótmælaskyni við fyrirhugaðar breytingar á kjarasamningum, og þar af leiðandi komu fæst blöð út þar í landi á sunnudag. Sjónvarps- og útvarpsfréttamenn ætla sér að leggja niður störf á sunnudaginn. Fréttamennirnir óttast að breytingar í kjarasamningum muni ógna prentfrelsi og starfsöryggi blaðamanna. Talsmenn forsætisráðherrans, Silvios Berlusconi, héldu því fram að verkfallið hefði verið haldið svo hann fengi ekki fréttaumfjöllun þessa daga. Kosningar verða haldnar í landinu í byrjun apríl. 13.03.2006 / Ruv.is Berlusconi gekk út úr sjónvarpsviðtali Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, strunsaði út í miðju sjónvarpsviðtali í ítalska ríkissjónvarpinu í gær. Kosningar eru á Ítalíu í næsta mánuði og Berlusconi vildi greina frá því hverju stjórn hans hefði komið í verk undanfarin ár. Þáttarstjórnandinn vildi hins vegar fá skýringu hans á því hvers vegna hann væri einna helst þekktur erlendis fyrir stuðning sinn við Írakstríðið og hagsmunaárekstra, annars vegar auðjöfursins og hins vegar forsætisráðherrans Berlusconi. Berlusconi vildi ekki ræða stuðning sinn við Írakstríðið, sem er afar óvinsælt á Ítalíu, jós úr skálum reiði sinnar yfir þáttarstjórnandann og hvarf á braut. Samkvæmt könnunum hefur kosningabandalag mið- og vinstri flokkar undir forystu Romano Prodi þriggja og hálfs prósents forskot á kosningabandalag Berlusconis. 07.03.2006 / Fréttablaðið Heimilisstörfin í Evrópu: Ítalskir karlmenn latir Ítalskir og spænskir karlmenn standa sig verst allra karlmanna við að aðstoða maka sinn við heimilisstörfin samkvæmt nýrri könnun Eurostat. Eyða ítalskir karlmenn þannig aðeins 95 mínútum á dag við matseld, uppvask, þrif eða annað það sem telst öllu jöfnu til heimilisverka. Spænskir karlmenn eru vart hótinu betri með aðeins 97 mínútur að meðaltali daglega en það er tæplega klukkustund skemur en til að mynda karlmenn í Noregi og Svíþjóð segjast gera. 19.02.2006 / NFS Gekk í bol með skopteikningu úr Jótlandspóstinum Ítalskir ráðamenn reyna nú hvað þeir geta að lægja öldurnar meðal múslima, eftir að einn ráðherra ríkisstjórnarinnar móðgaði múslima með því að ganga í bol með einni af skopteikningu Jótlandspóstsins framan á. Í kjölfarið brutust út óeirðir við ítalska sendiráðið í Lýbíu með þeim afleiðingum að 11 manns létust. Ráðherrann hefur þegar sagt af sér, og ítalski utanríkisráðherran, Gianfranco Fini, heimsótti stærstu moskuna í Rómarborg í gærkvöldi, og hitti fulltrúa frá Arabalöndum til að freista þess að minnka ólguna. Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Jose Manuel Barroso, fordæmdi ofbeldið og lýsti yfir stuðningi við ítölsku ríkisstjórnina í gær. 4.03.2006 / Fréttablaðið Eiginmaður ráðherra í bresku stjórninni í ítalskri spillingarrannsókn: Ásakanir um mútuþægni Tessa Jowell, menningarmálaráðherra Bretlands, braut ekki gegn siðareglum bresku ríkisstjórnarinnar með aðkomu sinni að fjármálaviðskiptum eiginmanns hennar. Þessu lýsti breski forsætisráðherran Tony Blair yfir á fimmtudag eftir að Sir Gus O'Donnell, æðsti embættismaður breska stjórnkerfisins, komst að þeirri niðurstöðu að Jowell hefði ekki gerst sek um slíkt brot. Blair sagðist bera fullt traust til Jowell. Mál Jowell hefur verið fyrirferðamikið í bresku pressunni í vikunni. David Cameron, leiðtogi Íhaldsflokksins, kallaði eftir því að rannsókn á viðskiptum eiginmanns Jowell, lögmannsins David Mills, við ítalska forsætisráðherrann og auðkýfinginn Silvio Berlusconi verði víkkuð út. Mills sætir rannsókn af hálfu saksóknara í Mílanó í tengslum við hugsanlega málsókn vegna spillingar á hendur Berlusconi. Blair sagði að í opinberri rannsókn málsins verði "allar ásakanir sem fram koma" kannaðar. Berlusconi er sakaður um að hafa fyrirskipað greiðslu upp á minnst 600.000 bandaríkjadali, andvirði um 39 milljóna króna, til Mills á árinu 1997. Greiðslan hafi verið mútur fyrir að bera ljúgvitni í réttarhöldum á árunum 1997 og 1998. Berlusconi og Mills segja ásakanirnar pólitískan róg. Í Sunday Times var greint frá því að veðlán sem Mills og Jowell tóku hafi verið liður í því að breiða yfir hina meintu mútugreiðslu. 4.03.2006 / NFS Jowell hyggst skilja við eiginmann sinn Tessa Jowell, menningarmálaráðherra Bretlands, ætlar að skilja við eiginmann sinn David Mills. Ítalskir saksóknarar sökuðu Mills á dögunum um að hafa þegið mútur frá Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, gegn því að hann bæri ljúgvitni fyrir sig. Breska blaðið Guardian greindi svo frá því í morgun að Mills hefði ráðið mann til að stjórna fyrirtæki sínu sem hefði áður starfað sem milligöngumaður Berlusconi og ítölsku mafíunnar. Jowell hefur ávallt haldið sakleysi sínu fram og í vikunni lýsti Tony Blair forsætisráðherra því yfir að hún hefði ekki brotið siðareglur ríkisstjórnarinnar. 2.3.2006 / Mbl.is Fullyrða að sovétstjórnin hafi viljað Jóhannes Pál II feigan Sérstök rannsóknarnefnd ítalska þingsins hefur komist að þeirri niðurstöðu að stjórnvöld í Sovétríkjunum sálugu hafi staðið að baki morðtilraun á Jóhannesi Páli II páfa árið 1981. Formaður nefndarinnar, Paolo Guzzanti, sagði það nokkuð öruggt að sovétstjórnin hafi skipað fyrir um að páfinn skyldi skotinn. Tyrkinn Mehmet Ali Agca skaut á páfann á Péturstorgi í Róm þann 13. maí 1981, og hæfði hann fjórum sinnum. Agca nefndi aldrei ástæðu tilræðisins og enn þykir tilræðið ráðgáta. Nefndin hefur hins vegar fundið tengsl milli hans og búlgarskra leyniþjónustumanna sem tengdust KGB, leyniþjónustu Sovétríkjanna. Lengi hafa verið uppi kenningar um að sovétstjórnin hafi viljað ráða páfann af dögum en páfinn sagði sjálfur við heimsókn sína til Póllands árið 2002 að hann tryði því ekki. BBC greinir frá þessu. 2.03.2006 / RUV Rússar og Búlgarar neita aðild að tilræði við páfa Rússnesk og búlgörsk yfirvöld hafna algerlega ásökunum rannsóknarnefndar ítalska þingsins sem fullyrti í dag að Rússar hefðu staðið að morðtilræði við Jóhannes Pál annan páfa árið 1981. Tyrkinn Mehmet Ali Agca var dæmdur fyrir morðtilræðið en grunsemdir um aðild Rússa að voru ávallt til staðar. Þá voru einnig grunsemdir um að kommúnistar í Búlgaríu hefðu skipulagt tilræðið en í réttarhöldum árið 1986 mistókst saksóknurum að færa sönnur á aðild þeirra. Í skýrslunni er því haldið fram að Rússar hafi reynt að bendla Búlgara við tilræðið til að afvegaleiða rannsóknarmenn málsins. Búlgarar hafa ætíð staðfastlega neitað aðild að málinu og nú síðast í dag. Áhrif páfa á stjórnmál í austur-Evrópu náðu langt út fyrir veggi Vatíkansins og halda margir sérfræðingar því fram að hann hafi átt drjúgan þátt í falli kommúnismans í Austur-Evrópu. Skýrsla rannsóknarnefndarinnar byggir að hluta til á gögnum sem rússneskur sagnritari Vasili Mitrokhin safnaði á tímum kalda stríðsins og verður birt í heild síðar í mánuðinum. 15.02.06 / Deiglan.com Da Vinci lykillinn móðgandi - segja Opus Dei Hin íhaldssömu og kaþólsku Opus Dei samtök í Róm hvöttu í dag aðstandendur myndarinnar um Da Vinci lykilinn að móðga ekki hina kaþólsku trú við gerð hennar. Hópurinn sagði það vera mjög mikilvægt að misbjóða ekki neinni trú á nokkurn hátt. Slíkt gæti haft mjög alvarlegar afleiðingar í för með sér og bentu þeir á nýjasta tilfellið vegna skopmyndateikninganna um Muhammed spámann. Þó svo að ímynd Opus Dei sé töluvert frábrugðin þeirri sem kann að birtast í kvikmyndinni þá segja þeir þetta ekki snúast um þá sem slíka heldur alla kaþólsku trúna í heild sinni. Metsölubók Dan Brown sem myndin er byggð á segir að Jesú Kristur hafi verið giftur Maríu Magdalenu og fram kemur í bókinni að þetta hafi verið hulið af Kaþólsku kirkjunni. Í myndinni eru Opus Dei samtökin látin líta úr fyrir að vera samtök sem eru tilbúin til þess að drepa til þess að forða sannleikanum frá því að koma í ljós. Samtökin segjast ekki ætla að aðhafast neitt varðandi myndina sem verður frumsýnd þann 19.maí með Tom Hanks í aðalhlutverki. Í yfirlýsingu sem þeir birtu í gær, vöruðu þeir engu að síður við því að fjöldi fólks hefði móðgast vegna virðingaleysis í bókinni sem snéri að hinni kristnu trú. Febrúar 2006 06:00 Silvio Berlusconi: Ber sig saman við Jesú Krist Ítalía Forsætisráðherra Ítalíu, Silvio Berlusconi, olli pólitísku fjaðrafoki er hann líkti sér við Jesú Krist undir kvöldverði með dyggum stuðningsmönnum sínum um helgina. Kemur þessi yfirlýsing í kjölfar þess að í síðustu viku bar hann sig saman við Napóleón er hann dásamaði afrek sín í embætti síðastliðin fimm ár. Síðar sagðist Berlusconi aðeins hafa verið að grínast. Andstæðingar Berlusconis hafa gagnrýnt yfirlýsingarnar og segja þær bera vott um mikilmennskubrjálæði. Vísir, 11. Febrúar 2006 06:00 Ólympíuleikarnir hafnir Ólympíuleikar Íslenski keppnishópurinn ásamt þjálfurum og fararstjórum voru viðstaddir opnunarhátíð tuttugustu vetrarólympíuleikanna í Tórínó í gærkvöld. Þar voru einnig menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, og eiginmaður hennar Kristján Arason, einnig Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ og Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ í boði Alþjóða Ólympíunefndarinnar. Setningarathöfnin hófst á inngöngu þátttökuþjóða og komu Grikkir fyrstir í virðingarskyni við sögulegan uppruna leikanna en gestgjafarnir síðastir. nÞingkosningar eru á Ítalíu 9. apríl.  | | BARA HRESSIR! Berlusconi og Rocco Buttiglione, menningarmálaráðherra í nýju stjórninni og sá hinn sami og Evrópa hafnaði sem stjórnarliða í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Mynd: AP | 23.4.2005 / Mbl.is Sextugasta ríkisstjórnin á Ítalíu á jafn mörgum árum Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, sór nú síðdegis embættiseið sem forsætisráðherra í 60. ríkisstjórninni sem mynduð er í landinu á jafn mörgum árum. Skömmu áður hafði hann birt ráðherralista nýju stjórnarinnar, og er hann næsta líkur listanum yfir ráðherrana sem sátu í síðustu stjórn Berlusconis, sem hann baðst lausnar fyrir fyrr í vikunni. Berlusconi fékk stjórnarmyndunar- umboð í gær, tveim dögum eftir að hann baðst lausnar í kjölfar valdabaráttu milli stjórnarflokkanna. Fréttaskýrendur segja að með myndun nýrrar stjórnar vonist Berlusconi til að auka vinsældir sínar meðal kjósenda og halda völdum fram á mitt næsta ár, þegar kosningar eiga að fara fram. Hér eru eldri fréttir. |