E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center
ÍS-ÍT: islandaoggi.com

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
  ÍTALÍA > FERÐASÖGUR
Bændagisting Ca' Monti
  Sjöfn Kjartansdóttir og fjölskylda keyrðu um sveitir
Ítalíu sumarið 2003 og fengu inni hjá bændum.
Hér segir hún frá gistingu hjá Monti fjölskyldunni.

Eftir Sjöfn Kjartansdóttur

Þetta sumarið eyddum við sumarfríinu okkar á marg-
rómaðri Ítalíu. Við komumst snemma að því að allar frásagnir og lýsingar á dásemdum þessa sögufræga lands eru á engan hátt ýktar. Hvort sem um ræðir sögu, menningu, veðurfar eða listir - og þá er listin að elda að sjálfsögðu þar með talin. Fegurð og frjósemi þessa lands er með ólíkindum, að ekki sé minnst á vinsemd og alúð íbúanna. Við urðum semsagt ástfangin upp fyrir haus af Ítalíu!


Gott að rata, gott að keyra
Það er gott að rata á Ítalíu, jafnvel eftir ókeypis Hertz bílaleigukorti. Það er líka auðvelt að keyra um þjóðvegi landsins og það er góð leið til að berja augum öll litlu þorpin og fallegar sveitir þessa lands, ramba inn á litla ógleymanlega veitingastaði við þjóðveginn eða inní litlu þorpunum, nú og að ekki sé minnst á að skoða innfædda! Örlítil ítölskukunnátta kemur sér vel, því innfæddir taka hana framyfir framandi tungur, þó að við höfum nú reynt af meiri vilja en mætti að bregða fyrir okkur einstaka ítölsku orði. Tillitsemi í umferðinni er eitthvað sem Ítalir hafa tamið sér undanfarin ár, að sögn innfæddra, og í þeim efnum gætum við Íslendingar lært sitthvað af þeim.

Með Montfellingum
Við höfðum pantað okkur gistingu á sveitabæ í Emilia-Romagna héraðinu, en það liggur í Appenínafjöllunum um miðja Ítalíu. Bærinn hefur verið í eigu Monti fjölskyldunnar frá því á 14. eða 15. öld og hefur hún ræktað landið og stundað búskap.

Það er gott að rata á Ítalíu. Auðvelt er að keyra um sveitavegina og er það góð leið til að berja augum öll litlu þorpin og fallegar sveitir þessa lands.
Fyrir átta árum opnuðu Monti systkinin bændagistingu, en Ítalir hafa lagt mikið upp úr því síðustu árin að efla slíka gististingu, með það að markmiði að auka fjölbreytni í ferðamennsku og styrkja bændur í að fegra umhverfi sitt. Monti systkinin reka einnig veitingastað á bænum, en hann er opinn frá fimmtudegi til sunnudags og er mest sóttur af fólki úr nágrannasveitum.

Þau rækta enn landið, aðallega apríkósur, en þau eru líka með vínber, kryddjurtir, sítrónur, korn, lavender og margt, margt fleira. Uppskeran er notuð til matargerðar á veitingastaðnum og aukinheldur framleiða þau mikið af sultum og líkjörum og selja ferðamönnum.

Matarást
Ca' Monti (Casa Monti = hús Monti fjölskyldunnar) er ákaflega þrifalegur og vinalegur áningarstaður. Það er einstök upplifun að dvelja þarna innan um náttúrufegurðina og frjósemina sem í landinu býr. Þarna fengum við líka að kynnast ítalskri matargerð þar sem kokkurinn leggur hjartað að veði við að gleðja gesti sína. Á veitingastaðnum eldar áttræð ættmóðirin og dóttir hennar, en sonur og tengdasonur sjá um að bera fram matinn og þjóna til borðs.

Menù di "Tipica" 20 - 28 Settembre 2003

Zuppa di funghi misti su crostino di pane agliato.
Tagliolini ai funghi porcini.
Tortelloni di patate allo Scalogno.                              
Lonza di maiale al forno in salsa si agrumi e olive nostrane con contorno di purè di patate e carotine al vapore.
Crostata con la marmellata di more di rovo.
Euro 31,50 a persona, compreso degustazione di 3 vini Doc dei Colli d'Imola (Bianco, Rosso, Passito)

Það er ekki bara af því að maginn er fullur sem maður hallar sér alsæll aftur í sætinu eftir slíka máltíð, heldur frekar vegna þess að kokkinum tekst af einstakri list að láta mann finna fyrir alúðinni, kærleikanum og munúðinni sem lögð er í eldamennskuna hjá þessari fjölskyldu. Að sjálfsögðu er enginn matseðill, en framreiddur er kvöldverður úr besta fáanlega hráefni hvers dags.

Ekki má gleyma bocchiavellinum sem gestir hafa aðgang að. Staðarhaldarinn kenndi okkur reglurnar og kom á daginn að þetta er hið skemmtilegasta sport sem öll fjölskyldan getur sameinast um.


Ca' Monti bændagistingin er með heimasíðuna
www.camonti.it, en þar er hægt að sjá staðsetningu,
dægradvöl og áhugaverða staði í nágrenni við bæinn.
Greinin er skrifuð 2003.
 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 08.06.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband