E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center
ÍS-ÍT: islandaoggi.com

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
  HVERFI RÓMAR
TRASTEVERE
Trastevere er líflegt hverfi, þéttbyggt og skrautlegt með veitingahúsum sínum og börum kringum Maríukirkjuna
Nafn hverfisins kemur úr latínu, Trans Tiberium, og þýðir handan (trans varð að tras) Tíber, þar eð hverfið er á vesturbakkanum og handan elsta bæjarhlutans austan megin.

Trastevere er líflegt hverfi, þéttbyggt og skrautlegt. Kvöld- og næturlíf þess er þó öllu þekktara, því veitingahús og barir, kaffihús og ísbúðir og sölubásar ýmiskonar þéttraða sér á göturnar sem liggja að hjarta hverfisins, torginu sem kennt er við kirkjuna fornu og forkunnarfögru, Söntu Maríu in Trastevere.

Ratað í og um hverfið
Það er örstutt úr miðbænum yfir í Trastevere - og er það tekið fram hér, því farvegur Tíber ruglar mann dulítið í áttum. Auðvelt og stutt er að ganga frá Campo de'Fiori hverfinu yfir í ekki ólíflegra hverfi Trastevere. Þá er t.d. tekin Via dei Giubbonari frá Campo de'Fiori torgi og svo beygt niður (t.h.) via del Arco del Monte og haldið áfram via dei Pettinari sem tekur beint við af henni. Þá er maður kominn niður að Tíber og að enda Júlíugötu. Við blasir Sixtusarbrú sem Sixtus páfi IV. lét byggja fyrir júbilárið 1475 og var gerð upp í tilefni síðasta Júbileums árið 2000. Þessa gömlu göngubrú gengur maður yfir á vesturbakkann og er þá komið á Trilussatorg sem kennt er við ítalska skáldið svokallaða.

Þá er um tvær leiðir helstar að velja inn í hverfið og ef þær eru báðar gengnar þá fæst ágætis útsýnishringur. Til þess að komast beint inn á Maríutorg er tekin Máragata (via del Moro) sem er manni á vinstri hönd, henni fylgt út á enda og þá sést á hægri hönd inn á torg Söntu Maríu í Trastevere. Hin leiðin er að ganga upp götuna á hægri hönd við gosbrunninn og torgið, via di Benedetta, og beygja svo trax til vinstri inn vicolo del Bologna og svo aftur strax upp til hægri. Þá kemur inn á lítið torg, piazza della Scala, en beygt inn t.v. samnefndra götu, via della Scala, og hún gengin að piazza Egidio torginu og þá beygir maður t.v. niður þrönga götu sem liggur að Maríutorgi.

Einnig er auðvelt að ganga út í hverfið frá Largo di Torre Argentina torginu (þaðan rennur einnig sporvagn númer 8 frá leikhúsinu fræga, en tekur því tæpast) og niður via Arenula, yfir Ponte Garibaldi brúnna og þá er maður kominn. Svo beygt til hægri og gengið eftir via della Lungaretta til að komast inn á aðaltorgið piazza Santa Maria in Trastevere.


Lestu líka um veitingahús og ítalska matarmenningu

Út að borða í Trastevere
Trastevere hlýtur að teljast vinsælasta matar- og barhverfi Rómar, enda nóg af skemmtilegum veitingastöðum, stórum sem litlum, inni og úti.


Matsölustaðir
• ££ La Sora Lella | Isola Tiberina (Tíbereyju) | s: 0668 61601 - rómversk eldamennska.
Il Pastarellaro di Severino | Via S. Crisogono 33-5 | s: 0658 10871 - rómversk eldamennska.
Paris | við Piazza San Callisto (við Santa Maria in Trastevere).
• ££ Osteria della Gensola | Piazza della Gensola 15 | s: 0658 332 758 | lokað sunnud. | Ágætis matur og þjónusta fyrir minni pening en ætla mætti austan megin við Viale di Trastevere, en rétt við Tíber.
• £ Pizzeria s. Calisto | Piazza S. Calisto, 9/A. | Hreint mjög góðar pizzur, stórar, þunnar og rómverskar.
• ££ Sabatini in Trastevere | Piazza S. Maria in Trastevere, 13 (einnig gengið inn til hliðar hægra megin, frá Vicolo S. M. in T.) | s: 0658 12026/0658 18307 | Mjög hlýlegur og huggulegur staður, skaplegt verð miðað við góðan mat og þjónustu. Hljómlistarmenn ganga á milli og spila eftir pöntun. Ath. að panta kannski í stærri salnum framan eða aftan til.
Vín- og bjórbarir
Bar San Callisto | við Piazza S. C., rétt við Piazza S. M. in T. (ódýrt lókal) - gott að sitja úti og gæða sér á einstaklega ódýrum bjór miðað við staðsetninguna. Gerist ekki ódýrara, nema kaupa sér bjórflösku í næstu alimentariu eða kaffibar og tylla sér niður við gosbrunninn á Maríutorginu í Trastevere.
Stardust | V.lo (de´) Renzi, 4 | s: 0658 320875 | Lítill og huggulegur djassbar, oggulítið djasslókal í kjallaranum.

Ekki gleyma að ...

  • Rölta um hverfið líka að deginum til og sjá muninn á nætur- og daglífinu.
  • Skoða hina öldnu en fallegu Maríukirkju.
 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 08.06.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband