E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center
ÍS-ÍT: islandaoggi.com

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
  RÓM > HVERNIG LANDIÐ LIGGUR
Tíberfljót
  Tiber sígur seint og hægt í ægi,
seint og þungt - með tímans göngulagi.

- Einar Benediktsson.


ÁIN TÍBER RENNUR norðan úr Appenínafjöllunum og suður í Miðjarðarhafið við Ostíu, samtals 360 km. Segja má að Róm eigi ánni tilvist sína að þakka og út frá henni byggðist hafnarborgin Ostía, að verja ströndina og mynni árinnar.

Elfur tímans
Tíberfljót, il Tevere, skiptir borginni í vinstri bakka (austur) og hægri bakka (vestur), skv. hefð Rómverja að horfa á allt fyrir sunnan borg sína eins og séð úr norðri (en löndin norðan Rómar voru virt skv. nútíma skipulagi suður - norður) Ekki er þó venjan að greina á milli bæjarhluta eða hverfa eftir því hvorum bakkanum þau tilheyra, því Tíber hlykkjast um borgina og er Trastevere t.d. á sama lengdarbaugi, dulítið sunnar en gamli miðbærinn, en samt vel inni á vesturbakkanum. Líka er það örugg leið til áttavillu að taka mið af ánni á leið sinni um gamla miðbæinn. Munið að áin hlykkjast um bæinn; hér er ekkert slétt og fellt, ekkert hreint og beint. Hæðir og lægðir, hús byggð á hús ofan, hvert saman við annað og þröngar, bugðóttar göturnar þar á milli. Lífræn borg.

Il Biondo
Áin er kölluð “Il biondo“, ljóskan, vegna framburðar síns og hét Albula samkvæmt því í árdaga, en nafn hennar er hins vegar komið frá Tíberínusi konungi í Alba Longa suður af Róm sem drekkt var í ánni. Um 1870 hófust framkvæmdir við að hlaða upp bakka Tíbers, en allt framundir þann tíma flæddi áin hvern vetur langt yfir náttúrlega bakka sína og inn á götur bæjarins. Það ár náði miðbæjarflóðið upp yfir 2 m. háa járngirðingu sem þá var framan við Panþeon. Á Mínervukirkjuna þar rétt hjá hafa verið rist efstu flóðmörk árinnar. Leðjan sú sem fljótið ber með sér hefur með tímanum hækkað borgarlandið á eiðinu sem kallast Marsvellir og miðbærinn er byggður á.

Dýralíf er nokkurt við og í ánni og eykst með ári hverju. Brúnrottur eru nokkuð áberandi og þær sagðar ansi ágengar. Meðaltalið segja þeir 5 rottur á hvern borgarbúa í borg eins og Róm. Ekki rugla þeim þó saman við aðeins stærra vatnanagdýr, grátt á feldinn, sem ku hafa sloppið úr búi á 6. áratugnun og fjölgað ört við ánna. Í ánni er töluvert af áli og þar sjást einstaka stokkendur.

Brýrnar yfir Tíber
Ekki erfitt að ímynda sér að Tíberbrýrnar geymi marga söguna sem við ekki þekkjum, enda mikið vatn runnið til sjávar frá þeim tíma er sú elsta þeirra var byggð. Bygging brúar er að mörgu leyti táknrænni en venjuleg götulagning vegna þess að í henni felst samtenging landshluta sem ekki hafa áður átt saman að sælda. Við rennum með Tíber undir brýrnar frá norðri til suðurs.

Flaminióbrú (Ponte Flaminio) liggur nokkurn veginn norður - suður og um hana liggur hraðbrautin Corso Francia og er því líka kölluð Franciabrú. Brúin er heljarmikil, byggð af Fasistum og ber þess merki; risastórar súlur til beggja hliða hvorum meginn og fálkar á stöndum á brúnni sjálfri.

Milvióbrú (Ponte Milvio), eða Múlvíusarbrú, er þekktust fyrir það að við hana háðu keisaranir Konstantínus og Maxentíus sína lokaorustu. Og ekki bara þetta, heldur er brúin þekkt í Kristni fyrir það að nóttina fyrir orrustuna birtist Konstantínusi engill og boðaði honum að ef hann berðist fyrir krossinn þá myndi hann hafa sigur. Nú er haldinn stór markaður við brúna og á sumrin er fjörugt líf þar. Framan við brúna er stórt torg, Piazzale Ponte Milvio.

Aostabrú (Ponte Duca d'Aosta) liggur framan við ítalíutorg (Foro Italia, áður Foro Mussolini) þar sem Ólympíuleikvangurinn er.

Risorgimentóbrú (Ponte Risorgimento) tengir vinstri bakkann, en nálægt stendur Villa Giulia, við breiðgötuna Viale Giuseppe Mazzini sem liggur inn að Mazzinitorgi.

Matteottibrú (Ponte G. Matteotti) tengir saman Flaminioveg (nokkurn veginn) og Viale delle Milizie í Prati, sem kennd er við skrifstofubyggingar hersins sem þar eru.

Nennibrú (Ponte P. Nenni) er göngubrú að ofanverðu, en á neðri hæðinni rennur metrólestin milli bæjarhlutanna.

Margrétarbrú(Ponte Regina Margherita) tengir saman Popolotorg á vinstri bakkanum og Rienzobraut (Via Cola di Rienzo í Prati á þeim hægri sem liggur alla leið að Risorgimentotorgið þar sem segja má að þrjú hverfi mætist; Vatíkanið, Borgo og Prati.

Kavúrbrú (Ponte Cavour) er kennd við ráðherra Viktors Emanúels konungs sem átti ríkan þátt í því að ítalía náði að sameinast í eitt ríki á seinni hluta 19. aldar. Þessi brú er gengin þegar stefnan er tekin t.d. frá Cavourtorgi við Palazzo di Giustizia á hægri bakkanum upp á Spánartorg.

Úmbertóbrú (Ponte Umberto I.) liggur hins vegar beint frá Hæstaréttarhöllinni yfir á vinstri bakkann og ef haldið er áfram þá kemur fljótlega niður á Navónutorg.

Engilsbrú (Ponte Sant' Angelo; Brú Hadríanusar) Þessa brú byggði Hadríanus að grafhýsi sínu handan Marsvalla, hét eftir honum, Aelíusarbrú, og var tekin í notkunn árið 134.

Sixtusarbrú (Ponte Sisto) lét Sixtus páfi (hinn sami og reisti samnefnda páfakapellu) byggja í tilefni Júbilársins 1475 og hefur varla verið vanþörf á. Hún er nú göngubrú og gott að fara hana á leið sinni milli Campo de' Fiori og Trastevere.

Garibaldibrú (Ponte Garibaldi) flytur helstu umferðina frá gamla bænum á Marsvöllum yfir í Trastevere og um hana renna sporvagnarnir sem ferja fólk á milli Argentínutorgs og Trastevere.

Tíbereyja (Isola Tiberina) hefur frá fyrstu manna minnum verið að stórum hluta manngerð eyja. Eyjan var mótuð sem skip á leið niður ána, en í stefninu stóð hof tileinkað lækningaguðinum Eskulapíusi (gr. Asklepíos). Nú er þar spítali rekinn af munkum og á vel við. Út í eyjuna liggja tvær brýr, önnur þeirra elsta uppistandandi brú Rómar. Það er Fabriciusarbrú (Ponte Fabricio, Pons Fabricius), byggð á síðustu dögum Lýðveldisskeiðsins, 62 f.Kr., og liggur norðan frá Gyðingahverfinu á Marsvöllum.

Emelíusarbrú/Brotnabrú (Ponte Rotto; brotna brúin, Pons Aemilius) gæti átt uppruna sinn allt aftur til 3. aldar f.Kr., en alla vega endurbyggð 179 - 142 f.Kr. Sumir segja að þessi brú hafi verið ónýt frá upphafi og allar tilraunir til að koma henni í nothæft ástand hafi mistekist. Það er vel skiljanlegt ef gaumur er gefinn að staðsetningu hennar í ánni, en hún stendur í miklum straumum.

... og svo framvegis í bugðum niður að sjó.

 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 08.06.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband