Ef
ég skyldi einhverntíma komast í vandræði
þá vildi ég vera meðal ítala.
- Halldór Laxness.
Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa
ort og skrifað
um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Við
erum búin að vísa mörgum í
hús til ykkar því af þeim vefjum
ítölskum sem við skoðum þá
held ég að ykkar geri betur en flestir að
vísa til vegar á Ítalíu og
ekki síst í Róm.
...hagnýtur
og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús
stiga út á upplýsingagildið
og skemmtilegheitin ...
Við
prentuðum út margar síður af þessum
snilldarvef og notuðum sem biblíu á
10 daga ferðalagi okkar um Róm.
Pratihverfið er á vesturbakkanum, norðan Vatíkansins og Borgo og byggðist upp úr sameiningu Ítalíu. Þess má sjá stað í örnefnum hverfisins
Hverfið heitir eftir landinu sem það var byggt á, Prati di Castello, og hefur væntanlega verið kennt við kastalann Engilsborg. Prato hefur svipaða merkingu og campo og þýðir engi.
Prati er tiltölulega ungt hverfi á mælikvarða Rómar, en það byggðist upp við fulla sameiningu Ítalíu árið 1870 þegar Róm var gerð að höfuðborg hins nýja konungsveldis. Sagt er að vegna andstöðu páfans við sameiningu Ítalíu hafi skipulagningu hverfisins verið þannig háttað að þaðan sjáist hvergi í Péturskirkjuna. Hér má því virða fyrir sér nokkuð heilsteypta mynda af Róm á mörkum aldanna 19. og 20.: breiðar götur og beinar eins og við þekkjum frá París og Lundúnum þess tíma, gullfalleg fjölbýlishús í stíl Art Nouveau eða Liberty eins og Ítalir kalla stefnuna. Nöfn gatna og torga bera tíðinni vitni: Frelsistorg, Piazza della Libertá, og Risorgimentotorg. En götur eru einnig kenndar við helstu keisara Rómar eins og þá Júlíus Sesar og Oktavíanus, sem síðar var nefndur Ágústus, en þessi nöfn eru trúlega frá því snemma á þriðja áratug 20. aldar þegar þjóðernissinnaður fasismi var allsráðand og Ítalir litu mjög til fornrar frægðar.
Frá Risorgimentotorgi liggur leiðin frá Vatíkaninu og inn í Prati. Ef maður gengur Crescenzioveg frá Risorgimentotorgi í austur þá kemur maður á Covourtorg. Frelsistorg (Piazza della Libertá) er svo Pratimegin þar sem Margrétarbrú liggur yfir að Popolotorgi.
Stararnir í Pratí Þar eð hverfið er nokkuð nýlegt fyrir þessa öldnu borg hefur það breiðar götur og tré þar meðfram, svona eins og menn þekkja úr Parísarborg. Haust hvert sækir stari nokkur í tré þessi í Pratí og við kastalann Engilsborg til vetursetu og ekki einsamall heldur með miljónum bræðra sinna og systra. Það er sjón að sjá fuglana flykkjast um loftin ofan við Prati; fluglag þeirra minnir á sund fiskitorfa sem breyta eldsnöggt um stefnu og virðast ekki vera að fara neitt sérstakt. Eitt sinn horfði ég frá góðum útsýnisstað niður á velli Prati. Það sem mér sýndist í fyrstu vera svört reykjarslæða stíga upp frá hverfinu sá ég seinna að voru fuglar og flugu um eins væru þeir þyrilstrókur sem gengur saman og sundur, upp og niður. Ekki eru íbúar hverfisins ánægðir með þessa veturgesti sína, því engar eru pípulagnirnar í trjánum og því drita fuglarnir hvar sem þeim sýnist, en gangandi vegfarendur þurfa í staðinn á regnhlífum sínum að halda í tíma og ótíma gegn þessari ofurnáttúrlegu ofankomu.
Eldaðu
ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur
best og segja má að eitt af því
sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg
notkun hráefnis og krydda.
Söguás:
1929
Mússolíní og Píus páfi
XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs
sem sjálfstætt ríki innan ítalska
ríkisins með samningi sem kenndur er við
Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm
svo til allan febrúarmánuð og nær
hámarki á Martedí Grasso,
sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist
aðallega vera hátíð smáfólksins;
telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla
og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver
er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn
sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en
tók síðan að stunda viðskipti
og sá sér þá hag í að
stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum
og helsti ferðamáti íbúa innan
borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf
klaustur-
lífs
Það féll í hlut Benedikts frá
Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri
á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk
trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið
við altarisgöngu verður brauðið að
holdi Krists í munni honum vegna þess að
presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd
kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður
sögunnar. Hann fæddist í smábænum
Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina
og hefur æ síðan verið við þann
bæ kenndur.
ÁBÓTINN
SAGÐI ...
Rómaborg er
yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir
að virða sem þorp, því að jörð
og steinar og stræti öll eru roðin
í blóði heilagra manna.