Ef
ég skyldi einhverntíma komast í vandræði
þá vildi ég vera meðal ítala.
- Halldór Laxness.
Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa
ort og skrifað
um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Við
erum búin að vísa mörgum í
hús til ykkar því af þeim vefjum
ítölskum sem við skoðum þá
held ég að ykkar geri betur en flestir að
vísa til vegar á Ítalíu og
ekki síst í Róm.
...hagnýtur
og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús
stiga út á upplýsingagildið
og skemmtilegheitin ...
Við
prentuðum út margar síður af þessum
snilldarvef og notuðum sem biblíu á
10 daga ferðalagi okkar um Róm.
Páfagarður liggur á Vatíkanshæð á vesturbakka Tíbers og hefur nafn sitt af hennni. Vatíkanið er sjálfstætt ríki innan Ítalíu og það minnsta í heimi
Páfastóll hefur frá frumkristni verið í Róm, en því fer fjarri að páfi hafi alltaf setið á Vatíkanhæð. Páfagarður lá löngum austar í borginni, eða í Lateran. En hér var kirkja hins vegar reist á 4. öld og hefur staðið síðan. Almenningur kemst ekki til þess að spásíera innan blómlegra garða páfans, en kirkjan er að sjálfsögðu öllum opin og söfnin.
Péturskirkjan "Sanktipéturs basilicam" (Basilica San Pietro) hlýtur að teljast með helstu táknum kristninnar, og ekki bara þeirrar kaþólsku, því það var m.a. vegna byggingar hennar sem kirkjan klofnaði í tvær megin fylkingar á 16. öld. Péturskirkjan er byggð á grunni hinnar eldri Péturskirkju sem Konstantínus keisari stofnaði til á 4. öld á þeim stað sem Pétur hafði látið lífið fyrir trú sína. Innviði basilikunnar gömlu, Konstantínusarbasilíku, má m.a. sjá á einni af freskunum sem segja frá baráttu konstantínusar við Maxentíus í einu af herbergjum Rafaels (Stanze di Rafaello) í Vatíkansöfnunum, og grunn hennar í kjallara núverandi Péturskirkju. Gamla basilikan var byggð á rústum grafhýsa, necropolis, þar sem Pétur hafði verið lagður eftir píslardauða á krossi inni á miðjum leikvangi Kallikúlu og Nerós þar fyrir neðan, en rústir leikvangsins liggja í jörðu samhliða Péturskirkjunni sunnanmeginn. Gröf Péturs er beint undir hvolfi kirkjunnar, en fannst þó ekki fyrr en um miðja 20. öldina.
Bygging hinnar nýju Péturskirkju hófst 1506 samkvæmt teikningum Bramantes. Áttu kirkjuskipin að vera jafn löng og breið og mynda grískan kross (jafnarma), en upp af miðskipinu átti að rísa ein heljarmikil hvelfing. Er sagt að með þessu hafi Bramante viljað sameina tvær stórkostlegar byggingar fornaldar; reisa Panþeon yfir basilíku Konstantínusar (þá sem enn stendur að hluta í Fóruminu).
Skrýtilegur afdalakall Sannfróðir autores telja að sá auðugi Jóhann frá Medici, öðru nafni Leó tíundi [1513 - 21], hafi verið fjölvís höfðíngi af Epicuri skóla og ekki einusinni hvarflað að honum að trúa á sálina ... Stundum getur manni fundist Marteinn Lúter hafa verið skrýtilegur afdalakall, að fara að deila um frelsi sálarinnar við slíkan mann. Meira
Péturstorgið Hin alltumvefjandi umgjörð Péturstorgsins er sköpunarverk meistara Bernínís, sem lét ekkert í Róm vera sér óviðkomandi. Á torginu eru gosbrunnar tveir samhverfir, þó ekki byggðir samtímis, og er sá eystri (hægra meginn séð að kirkju) nokkru eldri. Óbeliskinn á torginu miðju stóð áður steinsnar frá í miðjum sirkusi Nerós og Kalikúlu.
Breiðgata sú sem liggur upp að Péturstorginu heitir Via del Concilazione og er kennd við sættir Ítalska ríkisins og Vatíkansins 1929. Hér var áður þéttbýlt áður en Mússolíni ruddi sáttinni braut.
Útsýni Frábært útsýni er að hafa ofan úr hjálmi Péturskirkjunnar. Fyrst er tekin lyfta upp á þakið og þaðan gengið innan í hvolfinu upp í lampann s.k. þar sem sér vítt yfir páfagarð og alla Róm. Gangan upp hvolfið er ekki fyrir mjög styrða eða feita. Þeir sem ekki treysta sér, geta hins vega látið sér nægja að fara upp á þakið, sem er áfangi á leiðinni upp á hvolfþakið. Þar eru salerni, minjagripaverslun, símar og póstkassar. Janikúlumhæð er önnur helsta hæðin á vesturbakkanum og þaðan sér bestyfir miðbæ Rómar. Hæðin liggur langsum meðfram Tíber í suður frá Vatíkaninu. Stutt að ganga þaðan niður í Trastevere með viðkomu í San Pietro in Montorio.
VATIKANHÆÐ
Spásagnarhæð Utan borgarmúranna og hinum megin Tiberfljóts að útnorðan rís upp Mons Vaticanus, það er Spásagnarhæð, eitt hundrað feta yfir Miðjarðarhafi, talið frá sjávarfleti. Sumir halda, að nafnið sé sprottið af því, að þar hafi verið véfrétt Etrúska. Garðana á þessari hæð átti Agrippína, móðir Nerós, og þann veg komust þeir í hans eigu; þar höfðu þeir Kaligúla og Kládíus gera látið skeiðvelli til kappaksturs, og var Neró þar tíður gestur. Markið, sem ekið var frá, var súla frá Heliopolis, og stóð þar nærri sem nú er háaltarið í Péturskirkju. Súlan gnæfir upp úr miðjum þessum mikla skeiðfleti með svo hljóðandi áletrun: Kristur sigrar, Kristur ríkir, Kristur stýrir; Kristur ver sína þjóð fyrir öllum óheillum. Orðin fela í sér heila bylting og heila sögu. Meira
Ekki gleyma að ...
koma við í San Pétró og nudda aðeins fótinn á Sánki Pétri.
Eldaðu
ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur
best og segja má að eitt af því
sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg
notkun hráefnis og krydda.
Söguás:
1929
Mússolíní og Píus páfi
XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs
sem sjálfstætt ríki innan ítalska
ríkisins með samningi sem kenndur er við
Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm
svo til allan febrúarmánuð og nær
hámarki á Martedí Grasso,
sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist
aðallega vera hátíð smáfólksins;
telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla
og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver
er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn
sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en
tók síðan að stunda viðskipti
og sá sér þá hag í að
stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum
og helsti ferðamáti íbúa innan
borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf
klaustur-
lífs
Það féll í hlut Benedikts frá
Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri
á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk
trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið
við altarisgöngu verður brauðið að
holdi Krists í munni honum vegna þess að
presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd
kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður
sögunnar. Hann fæddist í smábænum
Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina
og hefur æ síðan verið við þann
bæ kenndur.
ÁBÓTINN
SAGÐI ...
Rómaborg er
yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir
að virða sem þorp, því að jörð
og steinar og stræti öll eru roðin
í blóði heilagra manna.