Ef
ég skyldi einhverntíma komast í vandræði
þá vildi ég vera meðal ítala.
- Halldór Laxness.
Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa
ort og skrifað
um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Við
erum búin að vísa mörgum í
hús til ykkar því af þeim vefjum
ítölskum sem við skoðum þá
held ég að ykkar geri betur en flestir að
vísa til vegar á Ítalíu og
ekki síst í Róm.
...hagnýtur
og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús
stiga út á upplýsingagildið
og skemmtilegheitin ...
Við
prentuðum út margar síður af þessum
snilldarvef og notuðum sem biblíu á
10 daga ferðalagi okkar um Róm.
Navónutorg liggur inni á miðjum Marsvöllum og er sem vin gangandi vegfarendum, laust við bíla- og vélhjólaumferð
Hér var leikvangur Domitíanusar sem kallaðist Circus Agonalis, talinn vera byggður á árunum 81 - 96. Ofan á rústum þessa leikvangs liggur fallegasta torg Rómar og dregur nafn sitt og lögun frá leikvangnum (Agonalis varð víst með tímanum að n'Agona og svo Navona).
FJÓRFLJÓTABRUNNURINN Stórfenglegt höggmyndaverk barokkmeistarans Bernínís frá því um miðja 17. öld, en efst trónir óbiliska Dómitíanusar keisara.
Barokktorg Navónutorg liggur inni í miðjum gamla bænum (centro storico) í Róm og hlýtur að teljast eitt fegursta torg borgarinnar. Á miðju torginu stendur gosbrunnur og upp af honum bergrisar marmarahvítir á þel og hafa tyllt sér á berg sem á hvílir einsteinungur mikill egypskur. Þetta er Fjórfljótabrunnur Bernínís, Fontana dei quatro fiumi.
Á móti þessu stórkostlega furðuverki stendur tignarleg kirkja með turna tvo og íhvolft andlitið. Það er Agnesarkirkja Borrominis. Torgið sjálft er ílangt og reglulega lagað, annar endi þess hálfhringur, líkt og kór í basilíku. En það var hvorki tilviljun né úthugsað borgarskipulag sem réð þessari lögun torgsins, sem er líka eins og rómversk pízza í laginu. Nei, lögun þess á sér skýringu sem verður að leita enn lengra aftur í söguna og dýpra, eins og svo oft í þessari borg. Torgið liggur nefnilega ofan á rústum leikvangs sem byggður var seint á fyrstu öld eftir Kristsburð og hefur lögun sína nákvæmlega frá honum; hann er þarna enn, bara nokkrum metrum neðar. Svona er Róm, byggingarnar samansaumaðar vegg í vegg, grunnur á grunn ofan.
Þegar maður stendur á Navónutorgi getur maður ekki annað en látið hrífast af þessum leiktjöldum páfanna frá öldinni sautjándu. Þau eru vissulega í hlaðstíl, en allt í hófi. Barokkið átti eftir að verða öllu svæsnara og merki þess má sjá í ótal kirkjum borgarinnar. Það er eins og Halldór Laxness hafi fengið sinn skammt og gott betur af ofhlæðin" þegar hann skrifaði þetta sem hér stendur.
SKÁLDIÐ SKRIFAÐI
Á nútímamenn verkar barokkskraut í bókstaflegum skilníngi einsog óþrifnaður. Í þessum þúnglamalega íburði þar sem eingin lína er óbrotin, einginn flötur fær að vera í friði fyrir einhverju vængjuðu marmaradrasli, ... Meira
Gamalt markaðstorg Markaður var haldinn á torginu daglega frá lokum 15. aldar uns hann var færður yfir á Campo de' Fiori þar skammt frá í lok þeirrar 20. Torgið gegnir þó enn hlutverki markaðar, þó í minni mæli sé. Daglega bjóða teiknarar ferðamönnum myndir sínar af borginni eða þeim sjálfum að sitja fyrir. Og í desember breytist torgið í jólamarkað þar sem hægt er að kaupa allt í presepio; Maríur, Jesúa og Jósepa ásamt herbergisfélögum þeirra í hlöðunni forðum; hirðingjunum og lömbum þeirra - og ekki má gleyma vitringunum. Og ekki bara þetta, því á torginu er einnig komið fyrir hringekjum, skotbökkum og klessubílum og breytist því í sannkallað jólaland.
Triangolo della Pace Vestan við Navónutorg, á svæði sem er eins og þríhyrningur í laginu og markast af Navónutorgi í austri, Corso Vittorio Emanuele II í suðri, Tíber austan megin og via dei Coronari að norðan, er mikið vetingahúsa- og barhverfi, stundum kennt við þekktan bar, Café Pace, sem aftur kennir sig við götuna sem hann stendur við, via della Pace (Friðargata). Það sem helst einkennir þetta svæði eru nútímalegir, þ.e. amer-írsklegir, barir sem þarna er að finna. Ágætis ganga um þetta svæði, Triangolo della Pace, er frá piazza Pasquino rétt við Navónutorg upp via Banchi Nuovi og þaðan yfir á og upp via dei Coronari; ein af frægari antikbúðagötum Rómar, og þá er maður kominn aftur að Navónutorgi. Pasquino Piazza Pasquino er smátorg, eða krossgötur öllu heldur, sem tekur við af Navónutorgi við suðvesturenda þess. Sá sem heldur nafni þess á lofti, og jafnframt sá sem torgið þiggur nafn sitt frá, er gamall stytturæfill sem húkir vestan undir húsvegg Rómarsafns. Pasquino er einn af talandi styttum Rómar þar sem borgarar fyrri alda fengu útrás fyrir óánægju sína í garð valdhafanna (páfans og hans liðs) með því að hengja á þær miða með níðvísum öðrum til skemmtunar. Styttan, eða það sem eftir er af henni, á að vera úr rómverskum höggmyndahópi sem segir af grísku sagnahetjunum Menelási og Patróklosi. (Menelás var Spörtukonungur og ektamaður Helenu fögru, bróðir Agamemmons og meðforingi hans í stríði Grikkja gegn Tróju, en Patróklos var fóstbróðir Akkillesar og féll fyrir sverði Hektors í Trójustríðinu). Höggmynd þessi fannst við vegaframkvæmdir á þessum slóðum og gæti hafa prýtt leikvang Dómitíanusar hér á Navónutorgi.
NAVÓNUTORG Á þessu korti sést Navónutorg og byggingarnar sem torgið umlykja. Breiðgatan Corso Vittorio Emanuele II er sunnan við torgið og liggur svona u.þ.b. í austur-vestur. Brúnu byggingarnar eru kirkjur eða opinberar byggingar. <STÆKKA>
Út að borða á og við Navónutorg Vestan við Navonutorg, á svæði sem er eins og þríhyrningur í laginu og markast af Navónutorgi í austri, Corso Vittorio Emanuele II í suðri, Tíber austan megin og Via dei Coronari að norðan, er mikið veitingahúsa- og barhverfi, stundum kennt við þekktan bar, Café Pace, sem aftur kennir sig við götuna sem hann stendur við, Via della Pace (Friðargata). Það sem helst er einkennandi fyrir þetta svæði eru nútímalegir, þ.e. amer-írsklegir, barir sem þarna er að finna.
£££ Il Convivio Via dell´Orso, 44 | s: 0668 69432. | Eitt af örfáum veitingahúsum í Róm sem skrýðast Micelinestjörnu. ££ Pietro Lítil trattoria í betri og dýrari kanntinum sem hefur verið afar vinsæl síðustu árin. Pétur eldar, en húsmóðirin reiðir fram. Gott að koma við í hádeginu og panta fyrir kvöldið, þá heyrir maður hund þeirra hjóna gelta inni fyrir | Opið á kvöldin. ££ Trattoria/pizzeria della Pace Via della Pace, 1 | s: 0668 64802 | Ágætur matur, en í dýrari kantinum | Borð úti. ££ Il Cantuccio Corso Rinascimento, 71-73-75 (Piazza Navona Senato) | s: 0668 802982, 0668 33567 | Huggulegur staður rétt á móti Öldungadeildinni, myndir af frægum gestum upp um veggi. ££ Alfredo alla Scrofa Via della Scrofa, 104 | s: 0665 40163 / 0668 64219/0668 806163. Lokað þriðjud. Heiðarlegur sessanta staður með fínum mat en sérstaklega góðri þjónustu. Einn af þeim stöðum þar sem stjörnur 7. áratugsins sóttu við leik eða störf í borginni og ekki vantar ljósmyndirnar, oft áritaðar, því til sönnunar. £ Pizzeria La Montecarlo Vicolo Savelli, 13 (í einni af götunum litlu sem eru á milli Via del Governo Vecchio og Corso Vittorio Emanuele) | s: 0668 61877 / 0668 72200 | Lokað mán. | Ódýr staður og er einnig með pasta.
Vín- og bjórbarir
Á NAVÓNUTORGI Bevitoria (fá kannski að sjá kjallarann) eða þar við hliðina. Caffè Dolce Vita finnst mér huggulegasti staðurin til að setjast niður og drekka vínglas meðan maður virðir fyrir sér mannlífið á torginu og fegurð þess frá hreint ágætu sjónarhorni, auk þess sem hann liggur vel við sól. Nokkur sæti inni líka, selur mat og ís. Ciampini - inni og úti. TRIANGOLO DELLA PACE Bar del Fico Piazza del Fico 26/28 | Opið 8-02 alla daga | Léttur og lifandi bar í Triangolo della Pace. Dregur nafn sitt af fíkjutré einu sem skýlir þeim sem úti sitja. Jonathan's Angels ... er bar sem hefur að geyma eitt frægasta salerni Ítalíu. Þangað flykkjast ferðamenn, innlendir sem erlendir, en ekki vegna þæginda þess eða fegurðar, heldur furðulegs útlits. Salernið er skrautlegt, en ekki bara það heldur allur staðurinn. Passa l'olio í Panicógötu. Baronato Quattro Bellezze Piano Bar, Via di Panico, 23 | s: 0668 72865 | Huggulegur og sérstakur bar, hálfgerður kabarettbar þar sem á fimmtudagskvöldum eru haldnar söngskemmtanir. Einn þriggja eigenda staðarins vann með Fellini á sínum tíma og kom fram í La dolce vita. Vinirnir þrír hafa rekið staðinn í um tvo áratugi og eignast fasta viðskiptavini. Þarf að hringja bjöllu til að komast inn - verið óhrædd.
Ekki gleyma að ...
að koma við hjá Pasquino kallinum og sjá hvað hann hefur um málefni líðandi stundar að segja.
Eldaðu
ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur
best og segja má að eitt af því
sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg
notkun hráefnis og krydda.
Söguás:
1929
Mússolíní og Píus páfi
XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs
sem sjálfstætt ríki innan ítalska
ríkisins með samningi sem kenndur er við
Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm
svo til allan febrúarmánuð og nær
hámarki á Martedí Grasso,
sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist
aðallega vera hátíð smáfólksins;
telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla
og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver
er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn
sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en
tók síðan að stunda viðskipti
og sá sér þá hag í að
stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum
og helsti ferðamáti íbúa innan
borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf
klaustur-
lífs
Það féll í hlut Benedikts frá
Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri
á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk
trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið
við altarisgöngu verður brauðið að
holdi Krists í munni honum vegna þess að
presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd
kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður
sögunnar. Hann fæddist í smábænum
Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina
og hefur æ síðan verið við þann
bæ kenndur.
ÁBÓTINN
SAGÐI ...
Rómaborg er
yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir
að virða sem þorp, því að jörð
og steinar og stræti öll eru roðin
í blóði heilagra manna.