Ef
ég skyldi einhverntíma komast í vandræði
þá vildi ég vera meðal ítala.
- Halldór Laxness.
Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa
ort og skrifað
um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Við
erum búin að vísa mörgum í
hús til ykkar því af þeim vefjum
ítölskum sem við skoðum þá
held ég að ykkar geri betur en flestir að
vísa til vegar á Ítalíu og
ekki síst í Róm.
...hagnýtur
og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús
stiga út á upplýsingagildið
og skemmtilegheitin ...
Við
prentuðum út margar síður af þessum
snilldarvef og notuðum sem biblíu á
10 daga ferðalagi okkar um Róm.
Hverfaskipulag borgarinnar nær allt aftur til þess tíma er Ágústus keisari lét skipta borginni upp í 14 númeruð hverfi og lét landamæri þeirra nokkurn veginn ráðast af aðalgötum þeim sem að bænum lágu.
Ratað um Róm Tíberfljót skiptir borginni í vinstri bakka (austur) og hægri bakka (vestur). Ekki er venjan að greina á milli bæjarhluta eða hverfa eftir því hvorum bakkanum þau tilheyra, því Tíber hlykkjast um borgina og er Trastevere t.d. á sama lengdarbaugi, ef svo má segja, dulítið sunnar en gamli miðbærinn, en samt vel inni á vesturbakkanum. Það er því örugg leið til áttavillu að taka mið af ánni þegar gengið er um gamla miðbæinn. Borgin er lágreist og þétt og því sést illa til þeirra háu bygginga, eins og Péturskirkjunnar, sem gætu verið manni kennileiti. Því er gott að taka mið af tveimur helstu götum miðbæjarins sem gagnast manni eins og tveir ásar. Lárétti ásinn er þá Corso Vittorio Emanuele II sem liggur frá ánni í vestri og austur gegnum gamla miðbæinn, um torgið Largo di Torre Argentina og næstum því að Feneyjatorgi. Lóðrétti ásinn er hins vegar via del Corso sem liggur norðan frá Popolotorgi og suður á Feneyjatorg.
Hæðirnar sjö Sagan segir að Róm hafi verið byggð á sjö hæðum, en eitthvað þykir sú tala málum blandin í dag. Og þótt maður haldi sig við hina heilögu tölu, þá er ekki vitað með vissu hvaða sjö hæðir þetta voru. En við höfum ekki áhyggjur af því og teljum fram hinar hefðbundnu hæðir.
íslenska
ítalska
Kapítólhæð
Campidoglio
Palatínushæð
Palatino
Janikúlumhæð
Gianicolo
Vatíkanhæð
Vaticano
Kvirinalhæð
Quirinale
Eskvinalhæð
Esquilino
Viminalhæð
Viminale
Þjóðirnar sem byggðu Rómarhæðir til forna voru Latínar, Sabínar og Etrúskar og bundust um síðir í Sjöhæðabandalagið, Septimontium. Hæð á ítölsku er colle/-i, en líka er talað um hæðirnar sem monte/-i (fjöll).
Gamli miðbærinn Gamli miðbærinn (centro storico) stendur á hinum fornu Marsvöllum sem Rómverjar tóku að nýta á seinni hluta 1. aldar, en á miðöldum byggðist hér upp miðbær og stendur enn. Þótt flestir kannist við Campo Marzio er miðbærinn þó almennt ekki þekktur undir því heiti í dag og nú eru aðeins eitt örtorg og ein gata sem bera nafn þessa svæðis sem hægt er að skipta niður í Navónutorg, Campo de´Fiori, Gyðingahverfi og Panþeon. Navónutorg liggur inni á miðjum Marsvöllum og er sem vin gangandi vegfarendum, laust við bíla- og vélhjólaumferð. Smelltu á myndina hér fyrir neðan til að sjá hana stærri og þar með átta þig á hvernig landið liggur í Róm.
Enn má sjá númer hverfanna (rione) á veggskjöldum við húshorn. Nú eru hverfin 19 að tölu. Gömlu hverfin eiga sér öll sitt heiti að auki, t.d. Rione della pigna, San Eustaccio. Til dæmis getum við tekið heimilisfang Madömu Lucreziu við San Marco torg, en hún er ein af talandi styttum borgarinnar:
Rione IX - Pigna Circoscrizione I Regio IX Circus Flaminius Piazza San Marco
Eldaðu
ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur
best og segja má að eitt af því
sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg
notkun hráefnis og krydda.
Söguás:
1929
Mússolíní og Píus páfi
XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs
sem sjálfstætt ríki innan ítalska
ríkisins með samningi sem kenndur er við
Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm
svo til allan febrúarmánuð og nær
hámarki á Martedí Grasso,
sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist
aðallega vera hátíð smáfólksins;
telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla
og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver
er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn
sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en
tók síðan að stunda viðskipti
og sá sér þá hag í að
stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum
og helsti ferðamáti íbúa innan
borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf
klaustur-
lífs
Það féll í hlut Benedikts frá
Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri
á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk
trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið
við altarisgöngu verður brauðið að
holdi Krists í munni honum vegna þess að
presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd
kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður
sögunnar. Hann fæddist í smábænum
Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina
og hefur æ síðan verið við þann
bæ kenndur.
ÁBÓTINN
SAGÐI ...
Rómaborg er
yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir
að virða sem þorp, því að jörð
og steinar og stræti öll eru roðin
í blóði heilagra manna.