Ef
ég skyldi einhverntíma komast í vandræði
þá vildi ég vera meðal ítala.
- Halldór Laxness.
Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa
ort og skrifað
um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Við
erum búin að vísa mörgum í
hús til ykkar því af þeim vefjum
ítölskum sem við skoðum þá
held ég að ykkar geri betur en flestir að
vísa til vegar á Ítalíu og
ekki síst í Róm.
...hagnýtur
og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús
stiga út á upplýsingagildið
og skemmtilegheitin ...
Við
prentuðum út margar síður af þessum
snilldarvef og notuðum sem biblíu á
10 daga ferðalagi okkar um Róm.
Sprelllifandi hverfi íbúðar- og veitingahúsa, lítilla fornbúða og sagan hvert sem litið er - Flórutorg óviðjafnanlegt í sínum rómverska sjarma
Torgið og þar með hverfið ku draga nafn sitt af Campus Florae - velli/völlum sem svo hétu þarna til forna og kenndir voru við blómagyðjuna rómversku, Flóru. Önnur kenning segir að Flóra þessi hafi veið ástkona Pompeiusar herstjóra (þess sem byggði leikhúsið við torgið og keppti við Cesar um völdin). Enn önnur kenning um nafn hverfisins vill rekja það til hins blómlega haga sem þarna var áður en landið byggðist og önnur til blómamarkaðar á torginu.
Hér heita margar göturnar eftir þeim iðngreinum sem þar voru stundaðar fram eftir öldum, s.s. via Giubbonari (Skraddaragata; sérhæfðu sig víst í jökkum), via dei Cappellari (Hattaragata), via dei Chiavari (Lásasmiðagata), o.s.frv. Via del Pellegrino þýðir hins vega pílagrímsgata og vísar til þess að við torgið og í nágrenni þess voru fjölmörg gistihús og matsölustaðir sem fæddu og hýstu alla þá pílagríma sem þá, eins og enn í dag, sóttu til Rómar.
Það er upplagt að skella sér í morgunmat eða seinni skatt á Campo de' Fiori torgið, þ.e. að kaupa sér brauð í bakaríinu fína og meðlæti á markaðnum; njóta þess að virða fyrir sér markaðinn og mannlífið.
Bruno Á torginu miðju stendur frekar drungarleg stytta af álútum, hettuklæddum manni. Þetta er minnisvarði um Giordano Bruno (1548-1600), ítalskan vísindaheimspeking og munk sem aðhylltist stjarnfræðikenningar Kópernikusar (1473 - 1543) um að sólin sé miðja alheims. En hann jók við hina nýju heimsmynd Pólverjans með því að halda því fram að stjörnur himins væru í rauninni fjarlægar sólir og um þær hlytu að vera hnettir og á þeim hnöttum hlyti að vera líf. Eins og nærri má geta var þetta full mikið af því góða og var hann á þessum stað brenndur aldamótaárið 1600 sem villutrúarmaður að skipan Rannsóknarréttarins spænska, en þá réðu Spánverjar ríkjum og allt frá því er Karl V. tók suðurhluta Ítalíu herskyldi 1530.
SÖGUÞRUNGIÐ TORG Horft vestur eftir torginu að styttunni af Bruno sem stendur u.þ.b. á þeim stað sem heimspekingurinn var brenndur. Mynd: RV
Pompeiusarleikhús Teatro Pompeo Handan við eystri enda torgsins er húsaröð sem sveigist í tæpan hálfhring. Bygging þessi er á grunni og hefur lögun sína frá leikhúsi Pompeiusar sem herstjórinn lét reisa um 50 f.Kr. Það er kaldhæðnislegt að Cesar skuli hafa látið líf sitt í þessari byggingu síns helsta andstæðings, en öldungaráð Rómar hélt þar fundi sína á tímabili.
Farnesetorg Piazza Farnese Farnesetorg er næsta torg við Flórutorg - örstutt á milli - og liggur á milli þess og hinnar fögru Júlíusargötu. Torgið heitir eftir höllinni sem við það stendur. Árið 1377 snýr páfinn aftur til Rómar frá Avignon með góðri hjálp Katrínar frá Síenu. Önnur kona helg var sænsk frænka okkar, heilög Birgitta, sem líka beitti sér mjög fyrir því að páfinn ræktaði garðinn sinn betur á Vatíkanhæð. Hún stofnaði reglu og enn er reglusystur hennar að finna við Farnesetorg og kirkju þeirra.
FARNESEHÖLL Nýuppgerð páfahöll frá endurreisnartíma sem fékk andlitsþvott eftir margra alda sót. Farnesetorg fyrir framan.
Farnesehöll (16. öld) Palazzo Farnese stendur við samnefnt torg. Höllin þykir eitt fegursta dæmi um byggingarlist endurreisnarinnar. Þetta er fyrrum bústaður páfa en hýsir nú franska sendiráðið. það var Alessandro Farnese kardináli og síðar Páll III. páfi sem lét byggja höll þessa í flórenskum stíl og stóðu framkvæmdir 1517 89. Antonio da Sangallo yngri hannaði höllina, en dó frá verkinu 1546 og Michelangelo tók við.
Snemma sumars 1999 voru vinnupallar teknir utan af fyrrum fölri framhliðinni eftir um árs vinnu og þá birtist hún eins og aftan úr upphafi sínu, björt og litrík skv. listfræðinganna haldi. Lestu líka um veitingahús og ítalska matarmenningu
Út að borða í Flóruhverfi Hér er nóg af littlum trattoríum langi mann í góðan hádegismat, en þá þarf að vera snemma í því ef ekki er pantað fyrirfram.
Matsölustaðir
£ Grappolo d´Oro Piazza della Cancelleria 80 | s: 0668 64118. £ Grotte del Teatro di Pompeo Via del Biscione, 73-4 | s: 0668 803686 | Þokkalegur staður, huggulegur og sérstaklega hellissalirnir innar. ££ Hostaria Costanza Piazza Paradiso, 63/65 (gengið hægra megin við Andrésarkirkju frá Corso V. Emanuele og síðan inn næstu götu til hægri og inn port til vinstri) | s: 0668 61717 / 0668 801002 | Lokað sunnud. | Eitt af þremur veitingahúsum á þessu svæði sem eru byggð inn í rústir leikhúss Pompeiusar. Þrír salir, vinstri salurinn undir einum af bogagöngum leikhússins og því upplagt að panta þar til að verða almennilega rústaður. Miðsalurinn minnstur og sístur, hægri salurinn langur og huggulegur. Þegar beðið var um reikninginn í eitt skiptið kom þjónninn með hann handskrifaðan á blokkarpappír. Var þá beðið um almennilegan reikning og þá kom hann hálfskömmustulegur með hann, en handskrifaðan. Á haus reikningsins er smá kort af leikhúsinu gamla, en öfugt. Þegar þjóninum var bent á þetta og spurt hverju sætti sagði hann myndina ekki vera öfuga heldur speglaða. Hvað getur maður sagt við svo gáfulegum svörum?. Þjónusta og matur ekki nógu góður á þessum vinsæla stað. Da Pancrazio Ristorante, Piazza del Biscione, 92 - Via Grotta Pinta, 20 | s: 0668 61246 | Staðurinn er í kjallara rústa Pompeiusarleikhússins. £ Arnaldo ai Satiri Via di Grotta Pinta, 8 | s: 0668 61915 | Lokað þriðjud. | Huggulegur staður sem telst vera á því svæði sem leikhús Pompeiusar var áður. Virðist rekinn af fyrrverandi leikhús- og/eða dansfólki; kertaljós og klassísk tónlist, sangría í könnum | Borð úti. £££ Camponeschi Piazza Farnese, 50 | s: 0668 74927 | Elegant staður við þetta fallega og oftast hljóðláta torg. £ Cooks Brasserie Piazza Campo de Fiori, 53/54 | s: 0668 75530 | Ódýr og ágætlega staðsett matstofa og bar við austurenda Flóruvallatorgs; óvíða liprari og skjótari þjónustu að finna í borginni, enda eigandinn sænskur. 13 % afsláttur fékkst af mat á sínum tíma og því alveg þess virði að höfða til frændseminnar við herra Cook. £ Dar filettaro a Santa Barbara Largo dei Librari, 88 | s: 0668 64018 | Opið á kvöldin, lokað sun. | Þessi ódýra matstofa býður upp á hreint frábæra djúpsteikta saltfisksbita á um £ 5.000, 1/4 rauðvín á 2.000 | Hægt að borða inni eða taka með sér út. Balestrari di Nazzareno Cenfi & C. Via dei Balestrari | s: 0668 65377 | Pízzería rétt við torgið, ódýr og þokkaleg - og ekkert coperti.
Vín- og bjórbarir
Vineria Reggio Campo de´Fiori 15 | s: 0668 803268 | Skemmtilega hrá og vinsæl enoteca við torgið hvar maður stendur upp á rönd eða situr á bekk upp við flöskurekkana og fær sér listauka (aperitivo fyrir matinn) eða eitthvað meltingarbætandi (amaro) eftir mat. Hún er ódýr og þar getur maður fengið bjórglas media á £ 5.000, léttvínsglas á 2.000. Antica enoteca L´angolo divino Via dei Balestrari, 12 | s: 0668 64413 | Í sömu götu og pízzerían Nazzareno, örlítið ofar. Ágætis enoteca með fínum bruschettum og öðru vínmeðlæti.
Ekki gleyma að ...
prófa saltfiskinn á Dar filettaro a Santa Barbara sem er á númer 88 við Largo dei Librari.
Eldaðu
ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur
best og segja má að eitt af því
sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg
notkun hráefnis og krydda.
Söguás:
1929
Mússolíní og Píus páfi
XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs
sem sjálfstætt ríki innan ítalska
ríkisins með samningi sem kenndur er við
Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm
svo til allan febrúarmánuð og nær
hámarki á Martedí Grasso,
sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist
aðallega vera hátíð smáfólksins;
telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla
og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver
er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn
sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en
tók síðan að stunda viðskipti
og sá sér þá hag í að
stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum
og helsti ferðamáti íbúa innan
borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf
klaustur-
lífs
Það féll í hlut Benedikts frá
Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri
á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk
trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið
við altarisgöngu verður brauðið að
holdi Krists í munni honum vegna þess að
presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd
kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður
sögunnar. Hann fæddist í smábænum
Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina
og hefur æ síðan verið við þann
bæ kenndur.
ÁBÓTINN
SAGÐI ...
Rómaborg er
yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir
að virða sem þorp, því að jörð
og steinar og stræti öll eru roðin
í blóði heilagra manna.