Ef
ég skyldi einhverntíma komast í vandræði
þá vildi ég vera meðal ítala.
- Halldór Laxness.
Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa
ort og skrifað
um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Við
erum búin að vísa mörgum í
hús til ykkar því af þeim vefjum
ítölskum sem við skoðum þá
held ég að ykkar geri betur en flestir að
vísa til vegar á Ítalíu og
ekki síst í Róm.
...hagnýtur
og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús
stiga út á upplýsingagildið
og skemmtilegheitin ...
Við
prentuðum út margar síður af þessum
snilldarvef og notuðum sem biblíu á
10 daga ferðalagi okkar um Róm.
Borgohverfið liggur austan Vatíkansins og er því svo að segja í túnfæti páfans, en breiðgatan via Concilazione skiptir þessu litla og huggulega hverfi í tvennt
Breiðgatan via della Concilazione sem liggur upp að Péturstorginu, og getið er um í Páfagarðskaflanum, er kennd við sættir Ítalska ríkisins og Vatíkansins 1929. Nú keyra þarna rútur og þramma túristar sem áður var þéttbýlt.
Það var á 4. áratugnum sem Fasistar hófust handa við að ryðja Sáttabrautina frá Tíberbökkum upp að Péturstorgi. Þótt basilíkan mikla og torgið sjáist nú víðar að, er vel hægt að ímynda sér enn mikilfenglegri sýn er maður gekk upp þröngar götur Borgo þangað til allt í einu birtist manni þetta stórfenglega sjónarspil, þegar maður var allt í einu kominn inn á Péturstorgið. Þessa upplifun er hægt að framkalla með því að ganga inn á torgið frá hliðunum, koma innan úr súlnagöngum þess. Norðan megin þessarar Sáttabrautar og norðan Passettósins er helsta gatan Borgo Pio, kennd við Píus páfa, lífleg hverfis-, verslunar- og veitingagata. Þessi hluti Borgo liggur nokkurn veginn á milli Péturstorgsins og Engilsborgar, en norðurmörk þess er via Crescenzio, sú sem liggur í austur frá Risorgimentotorginu (Piazza Risorgimento). Lítið hverfi sunnan Sáttabrautar tilheyrir líka Borgo og þar er helsta gatan Borgo Santo.
Engilsborg - Castel Sant'Angelo Engilsborg í Róm er tignarlegur kastali og eitt af kennileitum borgarinnar þar sem hún situr á vesturbakka Tíbers. Þessi tunnulaga kastali hefur gegnt ýmsum hlutverkum í gegnum aldirnar, verið grafhýsi, virki, heimkynni páfa og nóbilmanna, hýst dýflissu, ... safn og sýningarsali, auk þess einnig skjalasafn og veitingastað á svölunum. Framan við Engilsborg er samnefnd brú sem tengir kastalann gamla bænum og eftir henni endilangri raða sér 10 englar sem lærisveinar Berninis barokkmeistara hjuggu úr marmara. Kastalinn er fornt grafhýsi Hadríanusar keisara og eftirmanna hans, reist á fyrri hluta 2. aldar.
Castel Sant'Angelo er vel þess virði að heimsækja, þó ekki væri nema fyrir kalda birru í góðu veðri á svölunum, en þó sérstaklega vegna útsýnisins yfir Tíber og miðbæinn. Opið 9-18. Svo að sjálfsögðu Ponte Castel Sant Angelo, brúin fagra þar beint fyrir framan. - Örstutt upp á Péturstorg ef vill.
Kavúrtorg Piazza Cavour er tileinkað einum af hetjum sameiningar ítalíu (Risorgimento) og er stytta hans á miðju torginu (vígð 1895). Camillo Benso di Cavour (1810 - 1861) var ráðgjafi og ráðherra Viktors Emanúels II. Sardiníukonungs og síðar hins fyrsta konungs sameinaðrar Ítalíu. Þarna horfir hann á höll eina heldur þunglamalega sem Rómverjar kalla enda Palazzaccio (sem við getum snúið sem hallærið; palazzo er höll og -ccio endingin neikvætt viðskeyti). Bygging þessi heitir annars Palazzo di Giustizia, hýsir Hæstarétt Ítalíu og var vígð 1911. Torgið er frá sama tíma og þykir sækja sinn græna stíl til Lundúnatorga. Þetta er fallegt torg og setja pálmatrén sinn suðræna svip á það. Við norðanvert torgið stendur Teatro Adriano, leikhús, nú bíó, sem muna má fífil sinn fegurri.
Út að borða í Borgóhverfi Kringum og við Borgo Pio götu er nóg af huggulegum veitingastöðum og hægt að sitja úti á götu ef vel viðrar. Þarna er líka slatti af börum, en sumir aðeins opnir á kvöldin.
£ Roberto al Passetto di Borgo Borgo Pio, 60-62 | s: 066880 3957 | lokað þri. | Huggulegur veitingastaður, matur þokkalegur. Þarna hanga uppi myndir teknar úti við staðinn er snjóaði í Róm 1971 og 1985, og svo vildi til að einmitt snjóaði nokkrum kornum það kvöld sem ég snæddi þarna fyrst. ££ La Veranda Borgo Santo Spirito, 73 (inni í húsagarði Hótels Columbus) | s: 06687 2973 | Hægt að borða úti í rúmgóðum og skjólgóðum húsagarðinum. Tilkomumikið veitingahúsnæði í 16. aldar höll.
Eldaðu
ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur
best og segja má að eitt af því
sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg
notkun hráefnis og krydda.
Söguás:
1929
Mússolíní og Píus páfi
XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs
sem sjálfstætt ríki innan ítalska
ríkisins með samningi sem kenndur er við
Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm
svo til allan febrúarmánuð og nær
hámarki á Martedí Grasso,
sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist
aðallega vera hátíð smáfólksins;
telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla
og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver
er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn
sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en
tók síðan að stunda viðskipti
og sá sér þá hag í að
stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum
og helsti ferðamáti íbúa innan
borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf
klaustur-
lífs
Það féll í hlut Benedikts frá
Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri
á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk
trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið
við altarisgöngu verður brauðið að
holdi Krists í munni honum vegna þess að
presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd
kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður
sögunnar. Hann fæddist í smábænum
Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina
og hefur æ síðan verið við þann
bæ kenndur.
ÁBÓTINN
SAGÐI ...
Rómaborg er
yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir
að virða sem þorp, því að jörð
og steinar og stræti öll eru roðin
í blóði heilagra manna.