Ef
ég skyldi einhverntíma komast í vandræði
þá vildi ég vera meðal ítala.
- Halldór Laxness.
Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa
ort og skrifað
um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Við
erum búin að vísa mörgum í
hús til ykkar því af þeim vefjum
ítölskum sem við skoðum þá
held ég að ykkar geri betur en flestir að
vísa til vegar á Ítalíu og
ekki síst í Róm.
...hagnýtur
og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús
stiga út á upplýsingagildið
og skemmtilegheitin ...
Við
prentuðum út margar síður af þessum
snilldarvef og notuðum sem biblíu á
10 daga ferðalagi okkar um Róm.
Lykillinn að ánægjulegri Rómardvöl er að gefa sér tíma til að njóta borgarinnar - og kannski lesa svolítið í Rómarvefnum áður en lagt er í'ann.
ÚR GYÐINGAHVERFINU Hér er rómantískt að rölta að kvöldlagi. Gömul teikning eftir Amici.
Það er margt að sjá í Róm: endalaus fjöldi safna og rústa. En, eigi ferðamaður þess nokkurn kost þá er hann hvattur til að slappa svolítið af og njóta borgarinnar; horfa í kringum sig, virða lífið í borginni fyrir sér og alls þess sem ekki er getið í ferðahandbókum. Róm getur verið dýr í evrum talið, en það er líka margt sem hægt er að gera sem kostar lítið sem ekkert.
Tíu atriði sem þú mátt bara alls ekki sleppa að gera í Róm ...
Sitja að kvöldlagi undir hitalampa með eitthvað gott í glasi á kaffihúsi á torginu framan við upplýst algyðishofið Panþeon: það er draumi líkast.
Að renna í einn vænan baccalá saltfisksbita á Dar filettaro a Santa Barbara rétt við Flórutorg, Campo de' Fiori; Largo dei Librari, 88. Opið á kvöldin, lokað sunnudaga.
Blanda geði við Trasteveringa og nærsveitunga á Bar San Callisto sem er afskaplega ódýr og afslappaður bar á samnefndu smátorgi rétt við Piazza Santa Maria in Trastevere.
Rölta um gömlu Róm seint um kvöld, t.d. Campo de' Fiori og Gyðingahverfið; enginn á ferli nema þú í þessari öldnu borg og engar áhyggjur af rómverskum ribböldum; þeir eru sofnaðir.
Strolla um í rólegheitum, stoppa, skoða, horfa upp, horfa niður, kíkja inn í húsagarða, taka eftir skjöldum og öðrum merkingum páfa liðinna alda á húshornum og öllu hinu sem gerir Róm að einstakri borg.
Líta við í sem flestum kirkjum - tekur engan tíma að skreppa inn og út og svo eru þær svalar og fínar. Kirkjur Rómar teljast margar til helstu listasafna borgarinnar; þ.e. verkin sem þau geyma eða byggingin sjálf og oft hvort tveggja.
Smakka mikið af bitapízzum, bara litla smásneið í einu og alltaf eitthvað nýtt. Gera það sama með ísinn; oft, en bara eina-tvær kúlur í senn. Á bitapizzeríunum er hægt að fá supplì sem er venjulega dulítill mozzarelluostbiti pakkaður inn með hrísgrjónum í tómatsósu, velt upp úr raspi og að lokum djúpsteikt; algjört hnossgæti.
Engilsborg, Castel Sant' Angelo, er vel þess virði að heimsækja, þó ekki væri nema fyrir kalda birru í góðu veðri uppi á svölunum með frábært útsýnið yfir Tíber og miðbæinn.
Ganga svolítið út fyrir bæinn, ef tími gefst til, t.d. um hinn forna Appíuveg og endilega að nesta í paðreimi Maxentíusar frá 4. öld. Það gerir alveg Rómarferðina.
Ganga upp á Janikúlumhæð, eða taka leigara þangað, og njóta frábærs útsýnis yfir borgina. Fá sér síðan göngutúr niður hæðina niður í Trastevere og koma jafnvel við í San Pietro in Montorio og skoða Tempietto arkitektsins Bramante frá árinu 1502.
Eldaðu
ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur
best og segja má að eitt af því
sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg
notkun hráefnis og krydda.
Söguás:
1929
Mússolíní og Píus páfi
XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs
sem sjálfstætt ríki innan ítalska
ríkisins með samningi sem kenndur er við
Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm
svo til allan febrúarmánuð og nær
hámarki á Martedí Grasso,
sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist
aðallega vera hátíð smáfólksins;
telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla
og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver
er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn
sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en
tók síðan að stunda viðskipti
og sá sér þá hag í að
stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum
og helsti ferðamáti íbúa innan
borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf
klaustur-
lífs
Það féll í hlut Benedikts frá
Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri
á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk
trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið
við altarisgöngu verður brauðið að
holdi Krists í munni honum vegna þess að
presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd
kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður
sögunnar. Hann fæddist í smábænum
Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina
og hefur æ síðan verið við þann
bæ kenndur.
ÁBÓTINN
SAGÐI ...
Rómaborg er
yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir
að virða sem þorp, því að jörð
og steinar og stræti öll eru roðin
í blóði heilagra manna.