Ef
ég skyldi einhverntíma komast í vandræði
þá vildi ég vera meðal ítala.
- Halldór Laxness.
Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa
ort og skrifað
um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Við
erum búin að vísa mörgum í
hús til ykkar því af þeim vefjum
ítölskum sem við skoðum þá
held ég að ykkar geri betur en flestir að
vísa til vegar á Ítalíu og
ekki síst í Róm.
...hagnýtur
og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús
stiga út á upplýsingagildið
og skemmtilegheitin ...
Við
prentuðum út margar síður af þessum
snilldarvef og notuðum sem biblíu á
10 daga ferðalagi okkar um Róm.
Treví er einn frægasti gosbrunnur í heimi, ef ekki sá frægasti. En brunnur þessi er ekki gosbrunnur í eiginlegum skilningi, því vatnið í honum gýs ekki. Hvað er þá svona merkilegt við hann?
TREVÍBRUNNURINN Í RÓM er eitt helsta kennileiti borgarinnar og sífelldur straumur ferðamanna að honum og frá, allan ársins hring. Brunnurinn er í miðbænum austanverðum, rétt við rætur Kvirínalhæðar. Ofar trónir forsetahöllin en miklir garðar þar í kring. Vinsæll göngutúr um bæinn er að ganga tiltölulega beina leið eftir Strikinu, sem ég nefni svo; stutta fjögurra torga leið sem hefst á Navónutorgi og endar við Treví. Liggur leiðin um Panþeon og leifar Hadríanusarhofs við Pietratorg. Hadríanus keisari byggði Algyðishofið á fyrri hluta 2. aldar, en hið síðarnefnda var reist að honum látnum.
Stór brunnur, lítið torg Torgið og vatnsbrunnurinn bera sama nafn og mun tilkomið vegna vegamótanna sem þar liggja; hægt að ganga þrjá vegu - tri-via. Trevítorg er lítið og umlukið litríkum húsum og tveimur kirkjum. Trevíbrunnurinn tekur um helming torgsins og liggur að húsgafli Polihallar. Það var Klemens páfi XII. sem fékk arkitektinn Nikulás Salvi til að gera nýja umgjörð eldri brunni sem hafði svalað bæjarbúum um aldir. Smíði hans hófst 1732, tók þrjátíu ár og nokkrum breytingum á þeim tíma. Var byggingin fjármögnuð með happdrætti og vínskatti á borgarana og sögðu þá gárungarnir að páfi byði þeim léleg býti á vatni í stað víns. Salvi var félagi í Lúkasarakademíunni sem nú er til húsa í Carpegnahöll við Treví, en Bertel Thorvaldsen veitti þeim skóla eitt sinn forstöðu.
Ókeanus og Trítonar Þröngar götur liggja að Trevítorgi en þegar þangað kemur blasir brunnurinn við í allri sinni dýrð: Upp af að því er virðist venjulegri framhlið húss rís sigurbogi og undir sjálfum steinboganum, sem er opinn fram á torgið en hefur kór að baki, stendur hárprúð mannvera með vind í klæðum, en neðar klárar tveir ásamt hirðum sínum og svo seitlandi vatn um skeljar og steina niður í laug eina mikla. Gróður hér og þar og allt úr steini. Mann undrar í fyrstu að þvílíkri dýrð hafi verið valinn svo þröngur staður. En þegar betur er að gáð myndar þetta allt eina heild fegurðar og mikilfengleika innan þess nauðsynlega ramma sem torgið og húsin í kring eru brunninum. Ekki má láta mannmergðina á sig fá heldur ganga tröppurnar niður að brunninum, fá sér sæti og gefa sér tíma til að virða fyrir sér eitt af meistaraverkum rokokkótímabilsins. Eins og hæfir vatnsbrunni sem þessum - athugið að vatnið gýs ekki heldur fellur prýða persónugervingar náttúruaflanna umgjörð hans. Ókeanus, tákngerfingur úthafanna, er hér í aðalhlutverki, stendur tignarlegur í opinni skel sem dregin er áfram af vængjuðum sæfákum sem Trítonar tveir reyna að hafa taumhald á. Öðrum Neptúnusarsyninum hefur tekist að temja náttúruna í sínum fáki, en í hinum prjónar hún eins og öldur hafsins. Milli súlna beggja vegna bogans standa gyðjur gnægtar og heilbrigði.
Vaðið eftir björginni Rómverji nokkur, sem virt hefur að vettugi ný lög sem banna að smápeningar séu veiddir upp úr Trevi gosbrunninum í Róm, var handtekinn í dag með fullan poka af smámynt. Að sögn ítalskra fjölmiðla vó pokinn 22 kg. Maðurinn, sem segist vera atvinnuleysingi að atvinnu, var fluttur á lögreglustöð og ákærður fyrir þjófnað og að veita mótspyrnu við handtöku.
Túkall útí Treví Af öllum þeim fjölda ferðamanna sem kemur við á Treví hendir hver einn og einasti þeirra ekki einum heldur tveimur peningum í brunninn! Ekki er vitað með vissu hvenær sú hefð skapaðist en gamalt er það minni sem tengir óskir við vatnsbrunna. Venjan er að snúa baki í brunninn og henda tveimur smápeningum aftur fyrir sig í hann; sá fyrri á að tryggja endurkomu til Rómar, hinn síðari uppfyllingu óskar að eigin vali. Hún ætti að vera dálagleg tekjan eftir daginn, hvað þá vikuna. Tvo vetur átti sá sem hér ritar leið nánast daglega fram hjá brunninum og í matarhléum tyllti hann sér ósjaldan þar niður. Lengi hafði mig langað að sjá brunninn þrifinn, hafði heyrt að hann væri tæmdur á mánudagsmorgnum og peningunum sópað saman. Einn daginn var ég loks nógu snemma á ferðinni og kom nú í ljós að ekki þarf að tæma brunninn, heldur dugar að skrúfa fyrir rennslið og vatnssuga notuð til að moka upp myntinni í strigasekki. Aðspurður sagði einn vinnumannanna að klinkið fyllti þrjá tugi sekkja. Það ætti að duga fyrir viðhaldi og gott betur.
Ekki bara til skrauts Saga brunnsins er sögð í tveimur lágmyndum beggja vegna Ókeanusar. Þar segir af meyjunni frá Albanhæðum austan borgarinnar sem vísaði þyrstum rómverskum hermönnum á lind þá sem var síðan við hana kennd, Aqua Virgo. Það var svo Agrippa, tengdasonur Ágústusar keisara, sem lét leiða vatnið úr meyjarlindinni til borgarinnar í baðhús sitt aftan við Panþeon árið 19 f.Kr. Vatnsleiðslan var ein sú stysta sem Rómverjar byggðu og þar að auki að mestu grafin í holt og hæðir. Ólíkt öðrum Miðjarðarhafsborgum er kranavatn Rómar vel drykkjarhæft og meira að segja afar bragðgott. Lindarvatnið í Trevíbrunni þótti sérstaklega gott og allt fram eftir 19. öldinni var sopinn þangað sóttur fyrir páfann á Vatikanhæð. Frá Treví er stutt yfir á Spánartorg og hafi maður augun hjá sér á leiðinni má sjá leifar vatnsveitunnar nokkrum metrum neðan götuhæðar.
Treví og kvikmyndirnar Kvikmyndirnar eiga eflaust helstan þátt í heimsfrægð brunnsins. Frægust er Hið ljúfa líf Fellínís, La dolce vita, en fleiri leikstjórar hafa og heillast af þeim stórkostlegu leiktjöldum sem torgið býður upp á. Í Hinu ljúfa lífi eru þau Ekberg og Mastroianni að strolsa um þröngar og dimmar götur bæjarins á heitri sumarnóttu þegar Anita allt í einu rambar inn á mannlaust torgið. Þar sér hún brunninn baðaðan tunglskini og fær ekki staðist að baða sig sjálfa í svölu vatninu. Svona lítur þetta út á filmu Fellínís, en í raun lét leikstjórinn sína sænsku Anitu baða sig hér á kaldri vetrarnóttu, en Marcello þurfti að hella í sig koníaki svo hann gæti vaðið útí til valkyrjunnar. Atriði þetta er svo frægt í sögunni að ekki er að vita hvort Trevíbrunnurinn er þekktari sem hann sjálfur eða sem leiksvið meistara Fellínís.
HVENÆR? Trevíbrunninn lét gera Klemens páfi XII. og fékk til þess arkitektinn Nikulás Salvi. Smíðin hófst 1732 og tók þrjátíu ár. HVAR? Trevíbrunnurinn stendur við Trevítorg, piazza di Trevi, sem er skammt austan aðalgötunnar Corso, en vestan undir Kvirínalhæðinni. HVERSU MIKIÐ? Sagt er að daglega séu um 1.250 evrur veiddar upp úr Treví og renna peningarnir til góðgerðastofnunarinnar Caritas sem notar þá til að hjálpa alnæmissjúklingum.
Láttu það eftir þér ... Á göngu um Róm er upplagt að æja við Trevíbrunn, því hvort tveggja er áningarstaðurinn fallegur og stutt í nestið. Við Trevítorg er nýlenduvöruverslun, alimentaria, sem selur allt í nestið við venjulegu Rómarverði og Pizzeria Trevi á númer 14 við Via delle Muratte (næsta gata) sem hinn spaugsami Paoli Alfonso rekur ásamt konu sinni. Bitapízzería þessi á fátt sameiginlegt í útliti með nafna sínum gosbrunninum, en hún er ódýr, vinsæl og góð.
Eldaðu
ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur
best og segja má að eitt af því
sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg
notkun hráefnis og krydda.
Söguás:
1929
Mússolíní og Píus páfi
XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs
sem sjálfstætt ríki innan ítalska
ríkisins með samningi sem kenndur er við
Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm
svo til allan febrúarmánuð og nær
hámarki á Martedí Grasso,
sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist
aðallega vera hátíð smáfólksins;
telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla
og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver
er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn
sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en
tók síðan að stunda viðskipti
og sá sér þá hag í að
stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum
og helsti ferðamáti íbúa innan
borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf
klaustur-
lífs
Það féll í hlut Benedikts frá
Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri
á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk
trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið
við altarisgöngu verður brauðið að
holdi Krists í munni honum vegna þess að
presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd
kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður
sögunnar. Hann fæddist í smábænum
Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina
og hefur æ síðan verið við þann
bæ kenndur.
ÁBÓTINN
SAGÐI ...
Rómaborg er
yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir
að virða sem þorp, því að jörð
og steinar og stræti öll eru roðin
í blóði heilagra manna.